Fréttir

true

UDN og Snæfell hefja samstarf í knattspyrnu

Ungmennasamband Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga og Snæfell hafa gert samstarfssamning um meistaraflokk karla í knattspyrnu. Sameiginlegt lið félaganna mun taka þátt í Lengjubikarnum þar sem liðið er í riðli með Álftanesi, Árborg, Mídasi, Stál-Úlfi og Ými. Fyrsti leikurinn verður gegn Mídasi í Akraneshöllinni föstudaginn 10. mars næstkomandi. Einnig mun sameiginlegt lið UDN og Snæfells taka þátt…Lesa meira

true

Vestlenskir framhaldsskólanemar í Háskólahermi

Um 300 nemendur úr þrettán framhaldsskólum landsins munu taka virkan þátt í háskólasamfélaginu dagana 2. og 3. febrúar þegar Háskólahermirinn fer fram í Háskóla Íslands. Allir þrír framhaldsskólarnir á Vesturlandi eru þar á meðal, þ.e. Fjölbrautaskóli Vesturlands, Fjölbrautaskóli Snæfellinga og Menntaskóli Borgarfjarðar. Öll fræðasvið HÍ hafa undirbúið fjölbreytta dagskrá. Háskóli Íslands hleypti verkefninu Háskólaherminum af…Lesa meira

true

Rætur reifaðar og tengsl toguð í Borgfirðingasögum

Þriðjudaginn 7. febrúar nk. verður fyrsta námskeiðskvöld vetrarins á vegum Snorrastofu, Landnámsseturs Íslands og Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi. Það er upphaf námskeiðs í höndum Óskars Guðmundssonar rithöfundar í Véum, sem flytur fyrirlestra með hefðbundnu sniði og efnir til umræðna meðal þátttakenda. Þetta fyrsta kvöld verður í Landnámssetrinu í Borgarnesi og hefst kl. 20. Stofnanirnar þrjár hafa…Lesa meira

true

Nafn mannsins sem lést í snjóflóði í Esjuhlíðum

Maðurinn sem lést þegar snjóflóð féll úr hlíðum Esju síðdegis á laugardaginn hét Birgir Pétursson. Birgir var 25 ára búsettur í Reykjavík en var frá Stykkishólmi. Það var mbl.is sem greindi frá. Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að aðstandendur hins látna vilji koma á framfæri þakklæti til þeirra sem þátt tóku í leitinni.Lesa meira

true

Akranes áfram í Útsvari

Akranes bar sigurorð af Sandgerði í Útsvari, spurningakeppni sveitarfélaganna á RÚV, þegar liðin mættust að kvöldi síðasta föstudags. Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir, Vilborg Þórunn Guðbjartsdóttir og Örn Arnarson skipuðu sem fyrr lið Skagamanna. Nokkuð jafnt var á með liðunum framan af viðureigninni, Skagamenn höfðu þó heldur undirtökin framan af en Sandgerðingar náðu að minnka muninn í…Lesa meira

true

Hraunfossar í vetrarham

Hraunfossar og Barnafoss í Hallmundarhrauni eru fallegir á öllum árstímum. Þangað koma hópar af ferðamönnum dag hvern óháð árstímum. Iðnaðarmenn sem eru nú að störfum við uppbyggingu veitingahúss við Hraunfossa segja með ólíkindum sú mikla umferð sem er að fossunum nú um hávetur. Meðfylgjandi mynd tók starfsmaður Into the Glacier, fyrirtækisins sem heldur uppi reglulegum…Lesa meira

true

Sýrlenskt flóttafólk boðið velkomið með heimboði á Bessastaði

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands hefur ákveðið að bjóða sýrlenskum flóttamönnum sem koma til Íslands síðdegis í dag til móttöku á Bessastöðum. Þetta er þriðji hópur sýrlenskra flóttamanna sem kemur hingað til lands á rúmlega ári. Athygli vekur að ákvörðun um móttökuna á Bessastöðum er tekin eftir mikla umræðu síðustu daga víða um heim vegna…Lesa meira

true

Snæfell stakk af í lokafjórðungnum

Snæfell tók á móti Haukum í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik á laugardag. Þessa dagana heyja liðin sínar orrustur á sitthvorum enda deildarinnar, Snæfell við toppinn en Haukar við botninn. Úrslit leiksins bera nokkurn keim af stöðu liðanna í deildinni því Snæfell vann stóran sigur, 73-49. Snæfell byrjaði af miklum krafti en gestirnir komust hvorki…Lesa meira

true

Komst í úrslit í keppni söngnemenda

Borgnesingurinn Unnur Helga Vífilsdóttir, nemandi á miðstigi í Tónlistarskóla Borgarfjarðar, tók um liðna helgi þátt í söngkeppninni Vox Domini í Salnum í Kópavogi. Komst hún í úrslit og varð í fjórða sæti í sínum flokki. Keppt var í þremur flokkum; miðstigsflokki, framhaldsflokki og opnum flokki. Á úrslitakvöldinu var einnig valin rödd ársins og var það…Lesa meira

true

Skallagrímskonur tylltu sér á toppinn

Skallagrímur tók á móti Keflavík í stórleik 18. umferðar Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik á laugardag. Fyrir leikinn voru liðin jöfn að stigum á toppi deildarinnar, Keflavík í 1. sæti en Skallagrímur í 2. sæti. Fyrirfram var búist við hörkuleik og sú varð einmitt raunin. Að lokum fór svo að Skallagrímskonur sigruðu með tveimur stigum…Lesa meira