Fréttir

true

Aldrei fleiri Vestlendingar á Mannamóti

Markaðsstofur landshlutanna stóðu fyrir ferðasýningunni Mannamót 2017 fimmtudaginn 19. janúar í flugskýli Ernis við Reykjavíkurflugvöll. Tilgangurinn var að auka dreifingu ferðamanna um landið með því að mynda og efla tengsl milli ferðaþjónustufyrirtækja á Íslandi því þrátt fyrir fjölgun ferðamanna til landsins síðustu ár eru enn mörg ónýtt sóknarfæri á landsbyggðinni og ferðaþjónustan í stakk búin…Lesa meira

true

Hálka og snjóþekja á fjallvegum

Greiðfært er að mestu um vegi á Vesturlandi. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að snjóþekja er á Holtavörðuheiði og hálka á Bröttubrekku. Hálkublettir eru á Vatnaleið og á Fróðárheiði.Lesa meira

true

Stefnt að stærstu útgáfu frá upphafi af ferðablaði um Vesturland

Útgáfuþjónusta Skessuhorns er nú byrjuð af krafti kynningu á væntanlegri útgáfu ferðablaðs fyrir Vesturland, Travel West Iceland 2017-2018. Blaðið verður á ensku og íslensku og gefið út í 50 þúsund eintökum. Jafnframt verður dreifing blaðsins aukin frá fyrri árum og gerð markvissari til að mæta kröfum ferðaþjónustufyrirtækja á Vesturlandi. Meðfylgjandi er auglýsing þar sem fólk…Lesa meira

true

Krambúð opnuð á Akranesi á morgun

Á morgun, fimmtudag klukkan 13:00, verður opnuð ný verslun við Garðagrund 1 á Akranesi þar sem Grundaval og síðast Samkaup Strax hafa verið til húsa. Verslunin er undir nýju vörumerki sem Samkaupskeðjan er að byggja upp og nefnist Krambúð og er verslunin á Akranesi fjórða þessarar tegundar á landinu. Ein er staðsett við Skólavörðustíg í…Lesa meira

true

Óska eftir tilboðum í framkvæmdir við Vesturgötu

Líkt og greint hefur verið frá í Skessuhorni mun endurgerð Vesturgötu á Akranesi hefjast á vormánuðum. Gatan var fræst síðastliðið vor og í framhaldinu kom í ljós að óhjákvæmilegt er talið að endurbyggja götuna að fullu. Jarðvegsskipt verður í götunni og hún malbikuð en jafnframt verða lagnir veitufyrirtækja í götunni endurnýjar eða endurbættar, eftir því…Lesa meira

true

Æfingar í frjálsum hafnar á Akranesi

Frjálsíþróttaæfingar eru hafnar hjá Ungmennafélaginu Skipaskaga á Akranesi. Æft er í Akraneshöllinni á mánudögum og miðvikudögum frá klukkan 17:30-19:00 báða dagana. Æfingarnar miðast við aldurinn 6 ára og uppúr. Þjálfari er Ómar Ólafsson og er síminn hans 841-8065. Allir eru velkomnir að taka þátt, segir í fréttatilkynningu frá Umf. Skipaskaga.Lesa meira

true

Harður árekstur tveggja bíla

Umferðaróhapp varð á Smiðjuvöllum á Akranesi fyrir hádegi í dag, til móts við ÞÞÞ flutningafyrirtækið. Tveir bílar skullu saman á gatnamótum með þeim afleiðingum að önnur bifreiðin valt á hliðina. Að sögn lögreglu urðu engin meiðsl á fólki en báðir bílarnir eru töluvert skemmdir.Lesa meira

true

Skipuleggja dimman föstudag í Borgarbyggð

Þær Eva Hlín Alfreðsdóttir og Heiður Hörn Hjartardóttir í Borgarnesi hafa boðað athyglisvert verkefni í Borgarbyggð föstudaginn 27. janúar. Hvetja þær til að íbúar í sveitarfélaginu taki hvíld frá raftækjum á föstudaginn og taki þátt í Föstudeginum Dimma.  „Um er að ræða algerlega sjálfsprottna viðburði sem ætlað er að hvetja til umhugsunar um raftækjanotkun, skjátíma…Lesa meira

true

Boðið á ráðstefnu um lyfjanotkun í íþróttum

Síðdegis á morgun, fimmtudag, mun Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Íþróttabandalag Reykjavíkur standa fyrir ráðstefnu um lyfjamál í íþróttum. Fer hún fram klukkan 17:30-20:30 í Háskólanum í Reykjavík og er hluti af WOW Reykjavik International Games 2017. Í tilkynningu segir að þetta sé einstakt tækifæri til þess að fá að heyra um eitt stærsta málefni…Lesa meira

true

Góð reynsla af vinaliðaverkefni í Grunnskóla Snæfellsbæjar

Vinaliðarnir í Grunnskóla Snæfellsbæjar fóru í vinaliðaferðina sína í síðustu viku. Vinaliðar eru valdir tvisvar sinnum á ári í 3. til 7. bekk en skólinn tekur þátt í verkefni sem gengur út á að hvetja nemendur til meiri þátttöku í afþreyingu í frímínútum og skapa betri skólaanda. Markmiðið er að sem flestir nemendur skólans finni…Lesa meira