
Skarfar halda sig venjulega við sjóinn. Þessi var hins vegar kominn lengst upp í sveit fyrir skömmu, nánar tiltekið við Reykjadalsá miðja vegu milli Grímsstaða og Kópareykja. Líklega hefur fuglinn verið á höttunum eftir seiðum úr ánni. Fuglinn fældist ekki manninn og komst Björn Húnbogi Sveinsson ljósmyndari býsna nálægt honum.Lesa meira








