Fréttir

true

Þingmenn VG húsvitja á Akranesi

Á sama tíma og forusta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar bagsar við að koma saman ríkisstjórn í námunda við Austurvöll er forystufólk Vinstri hreifingarinnar græns framboðs í heimsóknum á Akranesi. Á meðfylgjandi mynd er hópurinn í kaffi á skrifstofum Akraneskaupstaðar. Þarna eru meðal annarra þau Katrín Jakobsdóttir formaður VG, Andrés Ingi Jónsson alþingismaður, Bjarki Þór…Lesa meira

true

Hægt að sækja um í verkefnið Startup Tourism

Umsóknarfrestur í samstarfsverkefnið Startup Tourism rennur út 16. janúar næstkomandi, en þetta er í annað skipti sem hægt er að sækja um þátttöku. Startup Tourism er tíu vikna viðskiptahraðall þar sem tíu valin fyrirtæki í ferðaþjónustu fá tækifæri til að þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar undir leiðsögn reyndra frumkvöðla, fjárfesta og annarra sérfræðinga þeim að kostnaðarlausu.…Lesa meira

true

Ölvun og vetrarfærð kom við sögu í dagbók lögreglu

Sex umferðaróhöpp komu inn á borð Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku, öll án teljandi meiðsla á fólki. Vetrarfærð kom að einhverju leyti við sögu í þessum málum. Að sögn lögreglu er grunur um ölvun við akstur í einu óhappinu en tveir aðilar voru þar á ferð og báðir grunaður um að vera ölvaðir og/eða…Lesa meira

true

Snjóþekja og hálka á vegum

Snjóþekja eða hálka er á flestum vegum á Vesturlandi og sumsstaðar auk þess éljagangur. Hálka er á Vatnaleið, Fróðárheiði og á norðanverðu Snæfellsnesi en hálkublettir sunnanmeginn á Nesinu.Lesa meira

true

Gunnhildur er íþróttamaður Snæfells

Gunnhildur Gunnarsdóttir, landsliðskona í körfuknattleik og fyrirliði Snæfells, hefur verið valin íþróttamaður Snæfells 2016. Frá þessu er greint á heimasíðu Snæfells. Sem fyrirliði Snæfells lyfti hún bæði Íslands- og bikarmeistaratitlunum síðastliðið vor. Hún var valin í úrvalslið beggja umferða Domino‘s deildar kvenna síðasta vetur og úrvalslið KKÍ. Auk þess er Gunnhildur lykilmanneskja í landsliðinu og…Lesa meira

true

Það þarf Kraft til að takast á við krabbamein

Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, boðar til vitundarvakningar um ungt fólk og krabbamein. Félagsmenn Krafts eru krabbameinsgreindir einstaklingar á aldrinum 18 – 40 ára og aðstandendur. Megin markmið átaksins er að vekja athygli á aðstæðum þessa fólks. Auk þess verður leitað til almennings að gerast mánaðarlegir styrktaraðilar til…Lesa meira

true

Sveitarfélög á köldum svæðum mótmæla hækkun raforkuverðs

Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum hafa sent iðnaðar- og viðskiptaráðherra erindi þar sem lýst er yfir miklum vonbrigðum með þær hækkanir sem hafa orðið á raforku frá 2013, en hækkun á tímabilinu er langt umfram hækkun á vísitölu. „Svo virðist sem sölufyrirtækin hafi nýtt sér þá staðreynd að hækkun hefur orðið á niðurgreiðslum til íbúa…Lesa meira

true

Ingvar Þór Kale til liðs við ÍA

Knattspyrnufélag ÍA hefur samið við markvörðinn Ingvar Þór Kale til eins leiktímabils. Mun hann því standa á milli stanganna með Skagamönnum í Pepsi deild karla í knattspyrnu á sumri komanda. Leysir Ingvar markvörðinn Árna Snæ Ólafsson af, en hann sleit krossband í hné í byrjun nóvember og fór í uppskurð rétt fyrir jól. Verður hann…Lesa meira

true

Þingmenn VG verða á ferðinni

Á morgun, þriðjudaginn 10. janúar, verða þrír þingmenn Vinstri hreifingarinnar græns framboðs á ferðinni á Vesturlandi, þau Katrín Jakobsdóttir, Andrés Ingi Jónsson og Lilja Rafney Magnúsdóttir, ásamt varaþingmanni NV-kjördæmis, Bjarna Jónssyni. Verða þau á ferð og flugi um Akranes og Borgarnes. Farið verður í heimsóknir í Ráðhúsið, Landmælingar og Höfða á Akranesi að deginum og…Lesa meira

true

Lokað fyrir rafmagn til GMR

RARIK hefur lokað fyrir rafmagns til fyrirtækisins GMR á Grundartanga vegna vangoldinna rafmagnsreikninga. Vísir greinir frá. GMR starfar sem kunnugt er á sviði málmendurvinnslu. Starfsmenn fyrirtækisins eru um 20 talsins. Óvissa ríkir um áframhaldandi rekstur fyrirtækisins, sem hefur verið strembinn alveg frá byrjun. Á Vísi er haft eftir Daða Jóhannessyni að bakslag hafi komið í…Lesa meira