Fréttir

true

Fréttaannáll ársins 2017

Ágæti lesandi, blaðamanni langar að draga upp myndir fyrir þig. Drátthagur er hann ekki en getur þó dregið til stafs, með aðstoð lyklaborðs og því teiknað með orðum: Blaðamaður setur blek í penna og fyllir blaðfákinn af eldsneyti áður en hann ekur áleiðis út á Snæfellsnes og hittir þar fólk sem er að stofna fyrirtæki,…Lesa meira

true

Sagnaritari samtímans

Mjög víða stunda áhugaljósmyndarar ómetanlega samtímaskráningu fyrir sín byggðarlög, atvinnusöguna, menningarsöguna og fleira. Samtímaskráning af þessu tagi er oft vanmetin. Hér á Vesturlandi eru fjölmargir sem stunda áhugaljósmyndun af kappi. Í jólablöðum Skessuhorns á liðnum tveimur áratugum hafa áhugaljósmyndarar á Vesturlandi verið kynntir, einn á hverju ári. Við köllum þetta fólk sagnaritara samtímans, fólkið sem…Lesa meira

true

Hefur alltaf verið mikið í félagsstörfum

„Ég er alinn upp á Akranesi en hins vegar fæddur í Brákarey í Borgarnesi 28. apríl 1946 nánar tiltekið í Fúsaskála, sem þar stóð, en það hús var gistiheimili og um leið endastöð Norðurleiðarrútunnar,“ segir Ingvar Ingvarsson fyrrum kennari, skólastjóri, sveitarstjóri og bæjarfulltrúi þegar sest er niður með honum á heimili hans á Akranesi. „Norðurleiðarrútan…Lesa meira

true

Steinunn Einarsdóttir heimsflakkari tekin tali

Fyrir rétt um ári tók Steinunn Einarsdóttir, ung kona úr Borgarfirði, ákvörðun um að hún væri komin með nóg af kuldanum og skammdeginu á Íslandi. Á þessum tíma vann hún í fiskvinnslu í Vestmannaeyjum og var nýbúin að fá útborgað. Steinunn ákvað að nú skyldi hún finna ódýrt flug til útlanda og taka sér frí.…Lesa meira

true

Lögreglan lýsir eftir bifreið í tengslum við stórfelldan þjófnað

Lögreglan á Vesturlandi lýsir eftir bifreiðinni LR-538 sem er blá sendibifreið af gerðinni Volkswagen Transporter árgerð 1998. Lýst er eftir bifreiðinni í tengslum við rannsókn á stórfelldum þjófnaði á tölvubúnaði sem átti sér stað í Borgarnesi aðfararnótt 15. desember síðastliðinn. Allir sem hafa orðið varir við þessa bifreið, eða vita hvar hún er niðurkomin, er…Lesa meira

true

„Ef þú ætlaðir að borða eitthvað þurftirðu að veiða það“

Á suðvesturströnd Grænlands, stærstu eyju í heimi þar sem búa tæplega 56 þúsund manns, stendur þyrping nokkurra smáhýsa í lítilli vík sem heitir Kugssuangup. Þessir kofar eru í eigu íslenska fyrirtækisins Laxár. Laxá hefur í um 30 ár selt veiðileyfi í margar lax- og silungsveiðiár á Íslandi en einnig í Skotlandi, Rússlandi og á Grænlandi.…Lesa meira

true

„Það halda margir að ég sé vitlausari en ég er“

Handtakið er þétt hjá Sigurði Hrafni Jökulssyni bónda á Vatni þegar hann tekur á móti blaðamanni. „Ég var að vona að þú fyndir einhvern merkilegri en mig til að tala við. Ég er ekkert fyrir þetta sviðsljós þótt ég sé í ferðaþjónustu og svoleiðis. Held kannski að það sé af því að ég kann ekki…Lesa meira

true

„Hef aldrei gert annað en að smíða síðan ég var tólf ára gamall“

„Ég er fæddur á Hellissandi árið 1924 og uppalinn þar. Þaðan fór ég 16 ára gamall til Reykjavíkur í stríðsbyrjun til að vinna á flugvellinum. Ég var einn af þeim fyrstu sem var við byggingu Reykjavíkurflugvallar,“ segir Vigfús Vigfússon, húsasmiður í Ólafsvík, í samtali við Skessuhorn. „Þá voru allir mínir félagar á Sandi farnir suður…Lesa meira

true

„Búinn að keyra alla vega tvisvar til tunglsins”

Nýverið hætti einn reynslumesti olíubílstjóri landsins störfum hjá Olíudreifingu eftir 43 ára starf. Hér er um að ræða Mýramanninn Birgi Pálsson sem hefur ekið með olíuna – súrefni hagkerfisins – milljónir kílómetra á þessum mörgu árum. Skessuhorn heimsótti þennan glaðbeitta og söngelska bílstjóra á dögunum og litið var yfir farinn veg. Mýramaður í húð og…Lesa meira

true

Hjólar fyrir Geðhjálp á Þorláksmessu

Yggdrasill markþjálfun og Metabolic Akranesi standa í sameiningu fyrir góðgerðarsöfnun fyrir Geðhjálp í aðdraganda jólanna. Hún felst í því að Ingólfur Pétursson, eigandi Yggdrasils, ætlar að hjóla hvorki meira né minna en eitt þúsund kaloríur á Assault bike þrekhjóli til styrktar Geðhjálp, án þess að stíga nokkrun tímann af hjólinu á meðan. „Þúsund kaloríur er…Lesa meira