Fréttir

true

Sjúkraflug á Snæfellsnes

Þyrlu Landhelgisgæslunnar var seint í gærkvöldi flogið til móts við sjúkrabíl af Snæfellsnesi og sótti mikið veikan mann sem ekið var til móts við þyrluna. Lenti þyrlan við Vegamót og flutti manninn á Landspítalann þar sem lent var um klukkan 1:30 í nótt. Mbl.is greindi frá.Lesa meira

true

Forsetabíllinn fékk hluta Dalaveganna í nesti

Í opinberri heimsókn forseta Íslands um Dalasýslu í liðinni viku var meðal annars farið fyrir strandir eins og það er kallað, þegar ekið var um Skarðsströnd og Fellsströnd. Vegirnir á þessari leið eru malar- og leirbornir. Í næsta stoppi, sem var í Búðardal, fékk ökumaður forsetans aðstöðu hjá Valdísi Gunnarsdóttur til að skola af bílnum.…Lesa meira

true

Vínlandssetur og Kaja Organic hlutu öndvegisstyrki

Í síðustu viku voru veittir tveir öndvegisstyrkir úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands. Komu þeir í hlut Vínlandsseturs í Búðardal og Kaju Organic á Akranesi. Á haustmánuðum var auglýst eftir hugmyndum að verkefnum sem hlotið gætu öndvegisstyrk úr sjóðnum. Alls bárust tíu tillögur. Var það niðurstaða stjórnar Uppbyggingarsjóðs Vesturlands að velja þrjú verkefni sem fengju stuðning til að…Lesa meira

true

Bræður munu lesa og árita á Landnámssetrinu

Bræðurnir Guðni Líndal og Ævar Þór Benediktssynir munu mæta í Landnámssetrið í Borgarnesi næstkomandi mánudag milli klukkan 18 og 19 og lesa upp úr bókum sínum fyrir börnin. Þeir munu síðan árita bækur og plaköt að lestri loknum. „Upplagt er að mæta aðeins fyrr og ná sér í kakó með rjóma á kaffihúsinu,“ segir í…Lesa meira

true

Uppfærð frétt – Hætt við mótmæli

Frá því var greint í frétt í morgun að boðað hefði verið til mótmæla klukkan 12:30 í dag, föstudaginn 15. desember, utan við skrifstofur Klakka við Ármúla 1 í Reykjavík. „Viðstöddum verður boðið að taka sér stöðu í mótmælaskyni og hlýða á stutt ávörp. Ávörpin flytja Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR og Vilhjálmur Birgisson formaður…Lesa meira

true

Ábendingar óskast um Vestlending ársins

Skessuhorn mun nú sem fyrr standa fyrir vali á Vestlendingi ársins; þeim sem á einhvern hátt hefur skarað framúr á árinu og verðskuldar sæmdarheitið Vestlendingur ársins 2017. Skilyrði er að viðkomandi hafi búsetu á Vesturlandi. Íbúar á Vesturlandi geta sent ábendingar inn á ristjórn Skessuhorns á netfangið skessuhorn@skessuhorn.is  fyrir 20. desember nk. Einnig má póstleggja…Lesa meira

true

Rökkurró í Hofsstaðaskógi

Foreldrafélögin á sunnanverðu Snæfellsnesi, í samvinnu við Sögufylgjur, buðu síðastliðinn laugardag upp á Rökkurró í Hofsstaðaskógi. Var viðburðurinn vel sóttur og úr varð skemmtileg fjölskyldustund. Farið var í ratleik, sungið, sagðar fallegar jólasögur og boðið upp á jólakökur og heitt kakó og kaffi. Að sjálfsögðu birtist svo jólasveinninn börnunum til ennþá meiri gleði. Voru krakkarnir…Lesa meira

true

Endurbættur einkennisfatnaður björgunarsveitafólks

Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur tekið í notkun endurbættan einkennisfatnað fyrir björgunarsveitafólk. Uppfyllir hann kröfur um aukinn sýnileika. Gallinn er komin í sölu á skrifstofu félagsins í Skógarhlíð í Reykjavík. Tekið er fram í orðsendingu til björgunarsveitarfólks að jakkar með kvennmannssniði eru ekki væntanlegir fyrr en í janúar 2018. Verðið á jakkanum er 33.000 kr. og buxunum…Lesa meira

true

Sjö Vestlendingar í úrvalshópi í hópfimleikum

Yfirþjálfarar landsliða og landsliðsþjálfarar í hópfimleikum hafa valið úrtakshóp vegna Evrópumótsins í hópfimleikum sem fram fer á næsta ári. Um 200 iðkendur mættu á fyrstu úrtaksæfingu landsliðsins og alls voru hundrað iðkendur frá átta félögum valdir í fyrsta úrvalshópinn. Þrjár stúlkur úr Fimleikafélagi Akraness voru valdar í úrvalshóp stúlkna. Það eru þær Guðný Sigurrós Jóhannsdóttir,…Lesa meira

true

Frumvörp um notendastýrða persónulega aðstoð

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, mun á næstu dögum leggja fyrir Alþingi frumvörp um lögfestingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA) við fatlað fólk. Ríkisstjórnin samþykkti tillögu hans þessa efnis á fundi sínum í gær. Í frumvarpi til fjárlaga næsta ár er gert ráð fyrir tæplega 290 milljóna króna fjárheimild til samninga um notendastýrða persónulega aðstoð.…Lesa meira