Fréttir

true

Sprotafyrirtæki í ferðaþjónustu geta sótt um Startup Tourism

Næstkomandi mánudag rennur út frestur til að sækja um þátttöku í Startup Tourism. Um er að ræða tíu vikna viðskiptahraðal sem sniðinn er að þörfum nýrra fyrirtækja í ferðaþjónustu. Ár hvert eru allt að tíu sérvalin sprotafyrirtæki valin til þátttöku og fá þau tækifæri til að þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar undir leiðsögn reyndra frumkvöðla, fjárfesta…Lesa meira

true

Opið í vetur í Samkomuhúsinu á Arnarstapa

Í Samkomuhúsinu á Arnarstapa á Snæfellsnesi er nú í fyrsta skipti reglulegur opnunartími yfir vetrartímann. Opið er mánudaga til laugardaga frá klukkan 12-19, en lokað á sunnudögum. Blaðamaður heyrði í Ólínu Gunnlaugsdóttur framkvæmdastjóra í Samkomuhúsinu. „Við höfum alltaf verið meira og minna með opið yfir vetrartímann en við höfum aldrei verið með svona fastan opnunartíma…Lesa meira

true

Krossgátan endurbirt

Vegna mistaka var sama krossgáta birt í Skessuhorni í þessari viku og var í blaði síðustu viku. Beðist er velvirðingar á þessu.Lesa meira

true

Myndir frá fyrri degi opinberrar heimsóknar forseta Íslands í Dalina

Guðni Th Jóhannesson forseti Íslands er nú í opinberri heimsókn í Dalabyggð ásamt eiginkonu sinni Elizu Reid. Heimsóknin heldur áfram í dag og hefst með því að forsetinn og fylgdarlið hans aka um Skarðsströnd og Fellsströnd og heimsækja fólk og koma við á nokkrum merkisstöðum beggja vegna Klofnings. Fyrir hádegi verður heimsókn í Auðarskóla en…Lesa meira

true

Snæfell lá gegn Stjörnunni

Snæfell tapaði fyrir Stjörnunni, 75-53, í fremur ójöfnum leik þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Garðabænum og Snæfellskonur mættu fáliðaðar til leiks, með aðeins átta leikmenn á skýrslu. Það skipti engu í upphafi leiks. Snæfell hafði heldur yfirhöndina framan af fyrsta leikhluta, leiddi í byrjun leiks áður…Lesa meira

true

Meistararnir of stór biti fyrir Skallagrím

Skallagrímskonur urðu að játa sig sigraðar, 73-87, þegar þær tóku á móti Íslands- og bikarmeisturum Keflavíkur í Domino‘s deild kvenna í gær. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi leiks, liðin skiptust á að skora og að leiða. Leikurinn var hraður og bæði lið léku vel. Keflavík leiddi með þremur stigum að upphafsfjórðungnum loknum, 19-22.…Lesa meira

true

Vestri/Skallagrímur í undanúrslit tíunda flokks

Sameiginlegt lið Skallagríms og Vestra í körfubolta lagði Íslandsmeistara KR að velli í hörku leik í átta liða úrslitum bikarkeppninnar í DHL höllinni 3. desember sl. Leikurinn endaði 53-60. Drengirnir úr Vestra/Skallagrími spiluðu glimrandi körfubolta. Náðu þeir að mynda gott flæði sín á milli og endurspegluðu góða liðsheild. Þrátt fyrir það var það fyrst og…Lesa meira

true

Útvarp Óðal fer í loftið í næstu viku

Að stilla útvarpstækin á FM 101,3 er orðinn fastur liður í aðdraganda jólanna í Borgarnesi. Á þeirri tíðni ómar Útvarp Óðal í Borgarnesi ár hvert um miðjan desembermánuð. Að þessu sinni hefjast útsendingar mánudaginn 11. desember og standa yfir alla vikuna þar til síðdegis á föstudag. Það er nemendafélag Grunnskólans í Borgarnesi sem stendur að…Lesa meira

true

Vitakaffi á Akranesi verður breytt í írskan bar

Eigandaskipti hafa orðið á Vitakaffi við Stillholt á Akranesi, en Bjarni Kristófersson hefur nú selt kaffihúsið og ætlar að snúa sér að öðru. Skagamaðurinn Steinþór Árnason er nýr eigandi og hyggst hann opna þar írskan pöbb á næsta ári. Um er að ræða svokallaðan „gastropub“ þar sem boðið verður upp á fínni pöbba-matseðil. „Pöbbinn mun…Lesa meira

true

Rafmagnsverkstæði í Borgarnesi lokað

Rafmagnsverkstæði Límtré Vírnets í Borgarnesi verður lokað um næstu áramót. Í tilkynningu frá Límtré Vírneti segir að í hartnær tvo áratugi hafi fyrirtækið rekið rafmagnsdeild í Borgarnesi með það að markmiði að þjónusta fyrirtæki og einstaklinga í Borgarbyggð. „Deildin hefur sinnt bæði viðhaldi og nýlögnum, auk þess að reka rafmagnsverkstæði sem sinnt hefur viðgerðarþjónustu á…Lesa meira