Fréttir

true

Meistararnir of stór biti fyrir Skallagrím

Skallagrímskonur urðu að játa sig sigraðar, 73-87, þegar þær tóku á móti Íslands- og bikarmeisturum Keflavíkur í Domino‘s deild kvenna í gær. Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi leiks, liðin skiptust á að skora og að leiða. Leikurinn var hraður og bæði lið léku vel. Keflavík leiddi með þremur stigum að upphafsfjórðungnum loknum, 19-22.…Lesa meira

true

Vestri/Skallagrímur í undanúrslit tíunda flokks

Sameiginlegt lið Skallagríms og Vestra í körfubolta lagði Íslandsmeistara KR að velli í hörku leik í átta liða úrslitum bikarkeppninnar í DHL höllinni 3. desember sl. Leikurinn endaði 53-60. Drengirnir úr Vestra/Skallagrími spiluðu glimrandi körfubolta. Náðu þeir að mynda gott flæði sín á milli og endurspegluðu góða liðsheild. Þrátt fyrir það var það fyrst og…Lesa meira

true

Útvarp Óðal fer í loftið í næstu viku

Að stilla útvarpstækin á FM 101,3 er orðinn fastur liður í aðdraganda jólanna í Borgarnesi. Á þeirri tíðni ómar Útvarp Óðal í Borgarnesi ár hvert um miðjan desembermánuð. Að þessu sinni hefjast útsendingar mánudaginn 11. desember og standa yfir alla vikuna þar til síðdegis á föstudag. Það er nemendafélag Grunnskólans í Borgarnesi sem stendur að…Lesa meira

true

Vitakaffi á Akranesi verður breytt í írskan bar

Eigandaskipti hafa orðið á Vitakaffi við Stillholt á Akranesi, en Bjarni Kristófersson hefur nú selt kaffihúsið og ætlar að snúa sér að öðru. Skagamaðurinn Steinþór Árnason er nýr eigandi og hyggst hann opna þar írskan pöbb á næsta ári. Um er að ræða svokallaðan „gastropub“ þar sem boðið verður upp á fínni pöbba-matseðil. „Pöbbinn mun…Lesa meira

true

Rafmagnsverkstæði í Borgarnesi lokað

Rafmagnsverkstæði Límtré Vírnets í Borgarnesi verður lokað um næstu áramót. Í tilkynningu frá Límtré Vírneti segir að í hartnær tvo áratugi hafi fyrirtækið rekið rafmagnsdeild í Borgarnesi með það að markmiði að þjónusta fyrirtæki og einstaklinga í Borgarbyggð. „Deildin hefur sinnt bæði viðhaldi og nýlögnum, auk þess að reka rafmagnsverkstæði sem sinnt hefur viðgerðarþjónustu á…Lesa meira

true

Jólavertíðin hafin í Sauðfjársæðingastöð Vesturlands

Fengitími sauðkindarinnar hefst á næstu vikum. Ærnar beiða í aðdraganda jólanna og hrútunum er hleypt til ánna. Hrútalyktin boðar komu hátíðanna í hugum margra sauðfjárbænda og upphaf jólavertíðarinnar í Sauðfjársæðingastöð Vesturlands í Borgarnesi. Þar er safnað sæði úr þeim hrútum sem notaðir eru til sæðinga víða um landið, allt að 1400 skammtar á dag þegar…Lesa meira

true

Kann vel við sig í Borgarnesi

„Borgarnes er að mínu mati besti staður í heimi,“ segir Guðmundur Karl Sigríðarson, framkvæmdastjóri Landnámsseturs Íslands í Borgarnesi. Hann ætti að vita þetta, enda búinn að búa ansi víða um heiminn. Guðmundur er fæddur Reykjavík en flutti fimm mánaða til Englands. Frá sjö ára ólst hann að mestu upp í Vesturbæ Reykjavíkur. Hann bjó í…Lesa meira

true

Lesa Aðventu Gunnars Gunnarssonar á aðventu

„Það er nokkurs konar skyndiviðburður hjá okkur. Við fengum góða ábendingu um að gaman væri ef Aðventa yrði lesin hjá okkur á aðventunni og tókum viðkomandi á orðinu. Aðventa er bók Gunnars Gunnarssonar rithöfundar, sígilt verk og þekkt. Starfsfólk Safnahúss Borgarfjarðar og sjálfboðaliðar, fólk úr áhugahópi um verkefnið, tekur þátt í lestrinum sem hefst kl.…Lesa meira

true

Opinber heimsókn forseta Íslands í Dalina

Í dag og á morgun munu forsetahjónin Guðni Th Jóhannesson og frú Eliza Reid heimsækja Dalabyggð. Af þessu tilefni er flaggað við Ráðhúsið í Búðardal. Þarna er einnig finnski þjóðfáninn á lofti í tilefni 100 ára afmælis finnska lýðveldisins. Þá er fæðingardagur fyrrum forseta Íslands, Kristjáns Eldjárns, sem fæddist 6. desember 1916. Skemmtilegt við meðfylgjandi…Lesa meira

true

Starfsfólki Bylgjunnar sagt upp

Tilkynningar um a.m.k. þrjár fjöldauppsagnir bárust Vinnumálastofnun fyrir liðin mánaðamót. Þar á meðal ein af Vesturlandi. Öllu starfsfólki Fiskiðjunnar Bylgjunnar í Ólafsvík, um þrjátíu talsins, var fyrir mánaðamótin afhent uppsagnarbréf. Aðspurður vildi Baldvin Leifur Ívarsson framkvæmdastjóri Bylgjunnar ekkert láta hafa eftir sér um ástæður uppsagna starfsfólks og rekstrarerfiðleika fyrirtækisins þegar eftir því var leitað. Að…Lesa meira