Fréttir

true

Telja brýnt að fjölga lögregluþjónum á Vesturlandi

Á haustfundi SSV sem fram fór í síðustu viku var meðal annars samþykkt ályktun um löggæslu á Vesturlandi. Í greinargerð segir að dulin búseta á Vesturlandi vegna fjölda sumarhúsa, háskólanema, mikillar fjölgunar ferðamanna og uppbyggingar á Grundartanga, kalli á aukna löggæslu á starfssvæðinu. Ástand vega og aukning ferðamanna kallar á stóraukna löggæslu á vegum úti.…Lesa meira

true

Níu framboð í Norðvesturkjördæmi

Framboðsfrestur fyrir alþingiskosningarnar 28. október nk. rann út á hádegi í dag. Að sögn Inga Tryggvasonar formanns yfirkjörstjórnar í NV kjördæmi er búið að yfirfara listana lauslega og segir hann allt líta í fljótu bragði út fyrir að vera eins og til var ætlast, nægilegur fjöldi meðmælenda og slíkt. Níu flokkar bjóða fram í Norðvesturkjördæmi.…Lesa meira

true

Miðflokkurinn kynnir framboðslista í Norðvesturkjördæmi

Miðflokkurinn, nýr flokkur undir forystu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, hefur nú kynnt framboðslista sinn í Norðvesturkjördæmi. Flokkurinn býður fram undir listabókstafnum M. Efsta sæti listans skipar Bergþór Ólason framkvæmdastjóri á Akranesi. Í öðru sæti er Sigurður Páll Jónsson, útgerðarmaður í Stykkishólmi og í þriðja sæti er Jón Þór Þorvaldsson flugstjóri, búsettur í Reykjavík en frá Reykholti…Lesa meira

true

Magnús Þór efstur á lista Flokks fólksins

Flokkur fólksins býður fram í Norðvesturkjördæmi undir listabókstafnum F. Í efsta sæti listans er Magnús Þór Hafsteinsson fv. alþingismaður, fiskifræðingur og rithöfundur á Akranesi. Í öðru sæti er Hjördís Heiða Ásmundsdóttir, húsmóðir í Borgarnesi, í þriðja sæti Júlíus Ragnar Pétursson, sjómaður Patreksfirði, í fjórða sæti Ágúst Heiðar Ólafsson kerfóðrari Akranesi og í fimmta sæti Erna…Lesa meira

true

Íbúðir Íbúðalánasjóðs verði langtímaleiguíbúðir

Þorsteinn Víglundsson, ráðherra húsnæðismála, hefur falið Íbúðalánasjóði að grípa til sérstakra aðgerða vegna erfiðrar stöðu leigjenda. Í nýrri könnun sjóðsins kemur fram að hlutfall fólks á leigumarkaði sé enn að aukast. Í aðgerðunum nú felst að greiðsla húsnæðisbóta mun færast til sjóðsins frá Vinnumálastofnun, sem annast þær nú. Mun sjóðurinn fara í sérstakt átak til…Lesa meira

true

Næturlokanir í Hvalfjarðargöngum í næstu viku

Vegagerðin vekur athygli á því að Hvalfjarðargöng verða lokuð fyrir umferð í þrjár nætur í næstu viku (42. viku) vegna viðhalds og hreingerningar. Lokað verður aðfararnætur þriðjudags 17., miðvikudags 18. og fimmtudags 19. október frá miðnætti til kl. 6 að morgni. Það er árlegur viðburður í rekstri ganganna að loka þeim í nokkrar nætur að…Lesa meira

true

Háskólamenntuðum landsmönnum heldur áfram að fjölga

Háskólamenntuðum landsmönnum á aldrinum 25–64 ára heldur áfram að fjölga en þeir voru rúm 40% landsmanna í fyrra, alls 68.300. Þeim hefur fjölgað stöðugt frá árinu 2010 eða um 7,8 prósentustig. Þeir sem eingöngu hafa grunnmenntun voru 37.200 í fyrra eða 22% í þessum sama aldurshópi. Þeim fækkaði um 3,4 prósentustig frá árinu á undan.…Lesa meira

true

Málþing haldið í Borgarnesi um reiðvegi á Íslandi

Á morgun, laugardaginn 14. október, stendur Landssamband hestamannafélaga fyrir málþingi í Menntaskóla Borgarfjarðar um úrbætur í reiðvegamálum. Hér er á ferðinni afar mikilvægt málefni hestamanna. Fjármagn til reiðvega hefur staðið í stað í langan tíma og dugar vart til að viðhalda þeim reiðvegum sem fyrir eru. Málþinginu er ætlað að setja saman áskorun til yfirvalda…Lesa meira

true

Helgi valinn efnilegasti leikmaður Fram

Borgfirðingurinn Helgi Guðjónsson, sem spilar með meistaraflokki Fram í knattspyrnu, var á uppskeruhátíð félagsins fyrr í vikunni valinn efnilegasti leikmaður liðsins. Guðmundur Magnússon var valinn besti leikmaðurinn. „Helgi, sem fæddur er árið 1999, var að leika sitt annað tímabil með meistaraflokki Fram og kom hann við sögu í 21 deildar- og bikarleik á tímabilinu og…Lesa meira

true

UMFÍ heldur fimmtugasta sambandsþing sitt

Fimmtugasta sambandsþing UMFÍ verður haldið á Hótel Hallormsstað helgina 14.-15. október, hefst klukkan 11 í fyrramálið. Sambandsþing er æðsta vald í málefnum UMFÍ og haldið annað hvert ár. Á þingið hafa boðað komu sína 150 fulltrúar sambandsaðila UMFÍ, auk stjórnar og starfsfólks. Á sambandsþingi sitja þeir fulltrúar sem sambandsaðilar UMFÍ kjósa til setu.Lesa meira