Fréttir

true

Einu lífrænt vottuðu verslanirnar á landinu

Verslunin Matarbúr Kaju var fyrst opnuð á Akranesi sumarið 2014 og í dag hefur kaffihús bæst við og önnur verslun verið opnuð í Reykjavík. Þetta eru einu verslanirnar á landinu sem hafa fengið lífræna vottun og fyrsta kaffihúsið. „Til að fá lífræna vottun þurfa allar vörurnar sem við seljum í lausu að vera ræktaðar og…Lesa meira

true

„Kjötborðið eitt það dýrmætasta sem verslunin hefur“

Hafsteinn Kjartansson kjötiðnaðarmaður hefur staðið vaktina í kjötborðinu í Verzlun Einars Ólafssonar á Akranesi undanfarin 19 ár. „Ég byrjaði hérna 1. mars 1998 og er því búinn að vera hér í 19 ár,“ segir Hafsteinn og brosir. Frá því hann stóð fyrstu vaktina í kjötborðinu í Einarsbúð hefur ýmislegt breyst í verslun í landshlutanum og…Lesa meira

true

Guðmundur Runólfsson hf eykur fisksölu innanlands

Guðmundur Runólfsson hf í Grundarfirði er rótgróið fiskvinnslufyrirtæki sem hefur ætið selt allan sinn afla á markaði erlendis. Fyrir um það bil tveimur árum fór fyrirtækið að fikra sig áfram á innanlandsmarkaði. Rósa Guðmundsdóttir framleiðslustjóri segir að lítill hluti framleiðslunnar fari á innanlandsmarkað en það hlutfall sé þó að aukast. „Það er mikill vilji innan…Lesa meira

true

Ferðaþjónusta sérhæfð í matarferðum um Vesturland

Crisscross er nýtt ferðaþjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í matarferðum um Vesturland. Bændur og smáframleiðendur eru heimsóttir og ferðalöngum gefst tækifæri til að kynnast bústörfum og gæða sér á ljúffengum matarhandverki beint frá býli. Á bak við fyrirtækið stendur Sigríður Anna Ásgeirsdóttir. Hún er sjálf matarfrumkvöðull, en hún framleiðir Íslandus mysudrykk og Íslandus kex úr mysu…Lesa meira

true

Klæðning Stjórnsýsluhúss lekur

Stjórnsýsluhúsið við Stillholt 16-18 á Akranesi er í eigu nokkurra fyrirtækja og stofnana, meðal annars Akraneskaupstaðar, sem á um fimmtung í húsinu, fasteigna Ríkissjóðs og Regins, auk eigenda að smærri eignarhlutum. Í nokkurn tíma hefur það legið fyrir að ástand klæðningar á húsinu er ábótavant og hún talin leka. Því var í upphafi þessa árs…Lesa meira

true

Telur að hefja eigi að nýju sauðaostaframleiðslu á Íslandi

Sveinn Hallgrímsson kynbótafræðingur, fyrrum sauðfjárræktarráðunautur og skólastjóri Bændaskólans á Hvanneyri er mikill áhugamaður um nýtingu sauðfjárafurða og í seinni tíð einn helsti framámaður um sauðaostagerð á Íslandi. Sjálfur býr hann með sauðfé á Vatnshömrum í Andakíl. Árið 1983 stóð Sveinn fyrir tilraun með mjöltun áa og framleiðslu sauðaosta að Kastalabrekku í Ásahreppi. Árin 1996 til…Lesa meira

true

Karfan brátt að hefjast

Næstkomandi sunnudagur markar upphaf Íslandsmótsins í körfubolta, en þá verður leikið um titilinn „meistari meistaranna“. Skallagrímur mætir Keflavík í kvennaflokki, en síðarnefnda liðið vann tvöfalt á síðasta tímabili, hampaði bæði Íslands- og bikarmeistaratitlinum. Skallagrímur mætti Keflavík í úrslitaleik bikarkeppninnar og liðin mætast því á sunnudaginn í upphafi keppnistímabilsins. Í karlaflokki mætast KR og Þór frá…Lesa meira

true

„Það geta allir eldað ef þeim er bara kennt það“

Rúnar Marvinsson var ungur þegar hann byrjaði að grúska í matargerð og segir að í dag sé fátt, ef eitthvað, sem gæti komið honum á óvart í þeim efnum. „Amma mín var kokkur í mötuneyti fyrir verkamenn og hún tók mig stundum með sér í vinnuna. Þá byrjaði ég svona að væflast um eldhúsið og…Lesa meira

true

Íbúðarhús úr krosslímdum viði risið á Akranesi

Um þessar mundir er í byggingu fyrsta íbúðarhúsið á Íslandi, svo vitað sé, sem byggt er alfarið úr krosslímdum timbureiningum. Um er að ræða parhús á tveimur hæðum við Seljuskóga á Akranesi. Hvor íbúðin um sig rétt tæpir 200 fermetrar að stærð. Það eru þeir Bjarni Ingi Björnsson og Jón Þór Jónsson sem byggja húsið.…Lesa meira

true

Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í NV leggur til óbreyttan framboðslista

Sjálfstæðisflokkurinn í Norðvesturkjördæmi undirbýr kosningar 28. október næstkomandi líkt og aðrir flokkar og framboð sem hyggjast bjóða fram. Flokkurinn á nú þrjá þingmenn, þau Harald Benediktsson, Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur og Teit Björn Einarsson. Kjördæmisráð flokksins í NV kjördæmi leggur til að sami listi verði boðinn fram og fyrir réttu ári. Í bréfi til flokksbundinna…Lesa meira