Fréttir

true

Spennandi vetur framundan í Landnámssetrinu

Nú er menningarveturinn að hefjast og við byrjum hann á því að frumsýna nýja sýningu á Söguloftinu:  Auður djúpúðga – sagan öll. Það er hinn vinsæli rithöfundur Vilborg Davíðsdóttir sem hér stígur á stokk en hún lýkur í haust þríleik sínum um konuna sem á engan sinn líka í landnámssögunni með sjálfstæðri bók um siglinguna…Lesa meira

true

Sjónhverfing dregur úr umferðarhraða á gangbraut

Nýstárlegri hraðahindrun hefur nú verið komið upp á Hafnarstræti á Ísafirði. Á fréttavef BB.is er greint frá þessu en þar segir að nýja gangbrautin minni á pappalöggurnar frægu sem stillt var upp á Reykjanesi um árið, sem að vísu vöktu takmarkaða lukku. Hraðahindrunin á Ísafirði er nokkurs konar sjónhverfing og hefur þann kost að geta…Lesa meira

true

Dr. Sæmundur Sveinsson skipaður í stöðu rektors LbhÍ

Að fenginni tillögu háskólaráðs Landbúnaðarháskóla Íslands hefur Kristján Þór Júlíusson menntamálaráðherra skipað dr. Sæmund Sveinsson í stöðu rektors til eins árs frá og með 1. október nk. Tekur hann við starfinu af Dr. Birni Þorsteinssyni. Á árunum 2010 til 2014 var Sæmundur aðstoðarkennari við grasafræðideild háskólans í Bresku Kólumbíu í Vancouver í Kanada. Eftir að…Lesa meira

true

Matarmenningu á Vesturlandi gerð skil í næstu viku

Með Skessuhorni í næstu viku fylgir veglegt sérblað um mat og matarmenningu. Það nefnist Matarauður Vesturlands. Áhersla verður lögð á að kynna viðburði og tilboð á veitingastöðum sem og matarmarkaði sem framundan eru í október á Vesturlandi. Auk þess eru ýmis viðtöl, greinar og efni sem tengjast mat. Verkefni þetta er samstarf Skessuhorns og verkefnisstjórnar…Lesa meira

true

Nýr Bárður SH verður stærsti trefjaplastbátur landsins

Pétur Pétursson, útgerðarmaður og skipstjóri á Arnarstapa skrifaði í síðustu viku undir samning við dönsku skipasmíðastöðnia Bredgaard Bådeværft um smíði á nýjum báti. Samningurinn var undirritaður á Íslensku sjávarútvegssýningunni sem haldin var í Kópavogi. Nýi báturinn mun leysa af hólmi hinn fengsæla Bárð SH-81 sem Pétur hefur gert út síðan 2001. Pétur hóf útgerð frá…Lesa meira

true

Vesturgata malbikuð fyrir lok mánudags

Endurgerð Vesturgötu á Akranesi, milli Stillholts og Merkigerðis, hefur verið eitt stærsta verkefni Akraneskaupstaðar á árinu 2017. Vegna umfangs verksins var því skipt upp í tvo áfanga en er komið langt á leið, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Akraneskaupstaðar.  Stefnt er að því að ljúka malbikun fyrsta áfanga næsta mánudag, 25.…Lesa meira

true

Samfylkingin í NV kjördæmi boðar til kjördæmisþings

Kjördæmisráð Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi hefur boðar til kjördæmisþings laugardaginn 23. september kl. 12. Þar verður ákveðin aðferð við val á framboðslista fyrir komandi alþingiskosningar. Fundað verður á Stillholti 16-18 á Akranesi. „Stjórn kjördæmisráðs hvetur alla félagsmenn til að mæta á kjördæmisþingið og taka þátt í undirbúningi og umræðum vegna komandi alþingiskosninga,“ segir í tilkynningu sem…Lesa meira

true

Fangaði gleði og náttúru Hvalfjarðarsveitar í verðlaunamynd

Blásið var til ljósmyndasamkeppni í tengslum við hátíðina Hvalfjarðardaga, sem haldin var í lok ágústmánaðar. Stóð hún yfir alla helgina og þemað var: Gleði og náttúra í Hvalfjarðarsveit. Dómnefnd kom saman í byrjun septembermánaðar til að velja vinningsmyndina úr þeim sem bárust í keppnina. Við valið á verðlaunamyndinni fékk dómnefnd einungis upplýsingar um innsendingarnúmer myndanna.…Lesa meira

true

Gott á snurvoðinni úti af Vestfjörðum

Vel hefur fiskast að undanförnu hjá þeim snurvoðarbátum sem farið hafa til veiða út af Vestfjörðum. Hefur aðallega veiðst yfir ljósaskiptin og yfir nóttina, en minna á daginn. Steinunn SH landaði 65 tonnum í fjórum löndunum, Esjar SH landaði tæpum 60 tonnum í þremur löndunum en bæði skipin lönduðu á Bolungarvík. Matthías SH landaði 44…Lesa meira

true

Fjörutíu ára afmælishátíð Fjölbrautaskóla Vesturlands

Það var hátíðarstemning í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi þegar blásið var til veislu í opnu húsi í tilefni af 40 ára afmæli skólans síðastliðinn laugardag. Húsið var opnað klukkan 14 en formleg dagskrá, sem hófst á stuttum hátíðarræðum en lauk með stórtónleikum á sal skólans, stóð frá kl. 14.30 til 18.30 auk þess sem myndir,…Lesa meira