Fréttir

true

Akranesleikarnir fóru fram um helgina

Akranesleikarnir í sundi fóru fram um síðastliðna helgi í Jaðarsbakkalaug á Akranesi. 265 sundmenn frá tíu félögum tóku þátt á mótinu að þessu sinni en það er aðeins færra en síðustu ár. Mótið er stigakeppni milli liða þar sem fimm fyrstu keppendurnir í hverri grein fá stig og í boðsundi tvöfaldast svo stigafjöldinn. Sundfélag Akraness…Lesa meira

true

Gistihús af Guðs náð

Síðastliðinn föstudag var gengið fram á ferðamenn sem gert höfðu sig heimkomna í Reykhólakirkju. Þeir höfðu eytt nóttinni í kirkjunni og eldað sér þar mat. Þeim var vísað út og kirkjunni læst í kjölfarið. Að sögn heimamanna þótti ferðaönnunum alveg sjálfsagt að finna sér næturstað í kirkjunni en héldu þó sína leið eftir að þeim…Lesa meira

true

Víkingar sóttu stig í Kaplakrika

Víkingar léku gegn Íslandsmeisturum FH í sjöttu umferð Pepsi deildar karla í gær. Víkingar áttu í smá erfiðleikum varnarlega í fyrri hálfleik sem varð til þess að FH fékk nokkur mjög góð færi. Á tíundu mínútu fékk FH gott færi þegar boltinn datt fyrir fætur Davíðs Þórs Viðarssonar en skoti hans var naumlega bjargað af…Lesa meira

true

Alsæll ferðamaður með fiskinn sinn

Þessi þýski ferðamaður réði sér vart fyrir kæti þegar hann fékk fisk að gjöf frá einum trillukarlinum í Ólafsvík í gær. Rauk hann strax af stað til þess að reyna að flaka fiskinn á borði sem er við höfnina. Viðstöddum var ljóst að ekki var vanur flakari á ferð, en viljinn er allt sem þarf. Leikar…Lesa meira

true

Dýfingar af Jóni Forseta á Sjómannadaginn

Í tilefni af Hátíð hafsins stendur Sjóbaðsfélag Akraness, í samvinnu við Björgunarfélag Akraness, fyrir dýfingakeppni í sjónum við Langasand á Akranesi. Dýfingarnar munu fara fram af bátnum Jóni forseta, sem mun lóna á mátulegu dýpi út af ströndinni. Björgunarfélagið verður með báta á staðnum og sér um skutl á sjó ef þörf krefur. Viðburður þessi…Lesa meira

true

Rallýmenn tæta af stað á föstudaginn

Rallýáhugafólk landsins bíður næstu helgar með óþreyju en fyrsta umferð í Íslandsmótinu í rallý 2016 verður ekin á Suðurnesjum dagana 3. og 4. júní. Að venju er það Akstursíþróttafélag Suðurnesja sem sér um þessa fyrstu keppni; Orkurallýið. Alls eru fjórtán áhafnir skráðar til leiks og má þar sjá bæði reynslubolta í bland við nýliða ásamt…Lesa meira

true

Blóðsöfnun á Akranesi í dag

Blóðbankabíllinn verður við Ráðhúsið, Stillholti 16-18 á Akranesi í dag, þriðjudaginn 31. maí frá kl. 10:00 til 17:00. Í tilkynningu frá Blóðbankanum kemur fram að 70 blóðgjafa þurfi á dag til að viðhalda lágmarks birgðum í landinu.Lesa meira

true

Tóbakslausi dagurinn er í dag

Norrænu krabbameinssamtökin standa í dag fyrir Tóbakslausa deginum. “Á alþjóðadegi gegn tóbaki, setja norrænu krabbameinsfélögin fram sameiginlegt markmið um að koma í veg fyrir að unglingar ánetjist tóbaki. Norrænu krabbameinsfélögin kalla eftir innleiðingu á einsleitum umbúðum á öllum Norðurlöndunum,“ segir í tilkynningu. Árlegt þing krabbameinssamtaka Norðurlandanna stendur nú yfir á Íslandi en Ragnheiður Haraldsdóttir, fyrrverandi…Lesa meira

true

Kallaðir út vegna hjartveiks manns við Glym

Fyrir stundu voru björgunarsveitir Landsbjargar á Vesturlandi kallaðar út vegna hjartveiks manns við fossinn Glym í Hvalfirði. Kenndi hann sér meins á göngu við fossinn og var haft samband við Neyðarlínuna. Aðstæður  voru metnar erfiðar og sýnt að bera þyrfti hinn sjúka langan veg niður að bílastæðunum. Þyrla Landhelgisgæslu var því kölluð út og tók…Lesa meira

true

Brautskráning frá Menntaskóla Borgarfjarðar

Föstudaginn 27. maí voru 26 nemendur brautskráðir frá Menntaskóla Borgarfjarðar. Nemendur voru útskrifaðir af félagsfræðibraut, félagsfræðibraut – íþróttasviði, náttúrufræðibraut, náttúrufræðibraut – íþróttasviði, náttúrufræðibraut – búfræðisviði og með viðbótarpróf til stúdentsprófs. Guðrún Björg Aðalsteinsdóttir skólameistari setti athöfnina og Lilja S. Ólafsdóttir, aðstoðarskólameistari fór yfir annál skólaársins. Gestaávarp flutti Sigursteinn Sigurðsson arkitekt og fulltrúi Hugheima. Ísak Sigfússon…Lesa meira