Fréttir

true

Verið að tryggja áframhald fiskmarkaðar á Akranesi

Orðrómur hefur verið uppi um að til stæði að loka útibúi Fiskmarkaðs Íslands á Akranesi. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri segir að þótt vissulega hafi staðið tæpt með framtíð markaðarins síðan í ágúst, þá sjái hann fram á farsæla lausn og að áfram verði rekinn markaður, en með breyttu verkfyrirkomulagi. Það megi þakka  frumkvæði Gísla Gíslasonar…Lesa meira

true

Fjölbrautaskóli Vesturlands er fertugur

Fjölbrautaskólinn á Akranesi, síðar Fjölbrautaskóli Vesturlands (FVA), fagnar 40 ára starfsafmæli í ár. FVA var stofnaður formlega árið 1987 með undirritun samnings milli 32 sveitarfélaga á Vesturlandi og menntamálaráðuneytis um rekstur sameiginlegs framhaldsskóla. Byggt var á grunni Fjölbrautaskólans á Akranesi sem tók til starfa 12. september 1977 þegar Gagnfræðaskólinn á Akranesi og Iðnskólinn á Akranesi…Lesa meira

true

Stendur réttarvaktina á 93. aldursári

Eyjólfur Andrésson í Síðumúla var staddur í Þverárrétt síðastliðinn mánudag líkt og undanfarin ár og áratugi. Sjálfur hætti hann búskap fyrir ríflega tveimur áratugum, en mætir engu að síður í réttina og hefur sitt fasta hlutverk að vera hliðvörður þegar rekið er inn í almenninginn og að reka á eftir fénu við innreksturinn. Eyjólfur kveðst…Lesa meira

true

Blóð, sviti, tár og drulla í leðjubolta

Síðastliðinn fimmtudag stóð Nemendafélag Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri fyrir árlegum viðburði á meðal nemenda. Var það leðjubolti sem fór fram í sjávarborðinu við engjarnar fyrir neðan gamla skólann, skammt frá ósum Hvítár við Borgarfjörð. Um leið og kennslu lauk síðdegis hófst keppnin svo hún myndi örugglega klárast áður en keppnisvöllurinn færi á flot á háflóði.…Lesa meira

true

Lindex verslun opnuð á Akranesi í byrjun nóvember

Forráðamenn Lindex á Íslandi hafa ákveðið að opna nýja verslun á Akranesi laugardaginn 4. nóvember næstkomandi. Albert Þór Magnússon, umboðsaðili Lindex á Íslandi, segist í samtali við Skessuhorn vera spenntur fyrir þessu verkefni. Lindex er ein stærsta tískufatakeðja Norður-Evrópu með um 500 verslanir í 16 löndum. Verslunin býður tískufatnað fyrir konur, undirföt, snyrtivörur og fylgihluti,…Lesa meira

true

Sauðfjárslátrun hefst í Borgarnesi í næstu viku

Fyrirhugað er að hefja í næstu viku sauðfjárslátrun í Sláturhúsi Vesturlands í Brákarey. Öll tilskilin leyfi eru til slátrunar í húsinu og því ekkert að vanbúnaði að hefja þar starfsemi. „Við erum hópur fólks úr héraði sem hefur undirbúið þetta að undanförnu og búið er að taka húsið á leigu af eigendum þess sem ekki…Lesa meira

true

Tæpir þrír milljarðar í nýjan Landspítala

Framlög til byggingar nýs Landspítala verða 2,8 milljarðar króna á árinu 2018. Er það hækkun um 1,5 milljarð frá fjármálaáætlun. Bygging spítalans hefst seinni hluta næsta árs og þá verður sömuleiðis hafist handa við byggingu meðferðarkjarna við Hringbraut. Þetta kemur fram í kynningu á fjárlögum ársins 2018 á vef stjórnarráðsins. Þar segir að haldið verði…Lesa meira

true

Fresta hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustu

Virðisaukaskattur á ferðaþjónustu mun hækka í 22,5% um áramótin 2018/2019 samhliða almennri lækkun efra virðisaukaskattsþreps úr 24% í 22,5%. Áður hafði verið stefnt að því í fjármálaáætlun að færa gistiþjónustu og aðra ferðaþjónustutengda starfsemi úr neðra þrepi í þrep almenns virðisaukaskatts 1. júlí 2018. Sú breyting frestast því um hálft ár. Þetta er meðal þess…Lesa meira

true

Viljayfirlýsing um kaup Fisk Seafood á Soffaníasi Cecilssyni í Grundarfirði

Búið er að skrifa undir viljayfirlýsingu þess efnis að Fisk Seafood ehf. á Sauðárkróki kaupi öll hlutabréf í sjávarútvegsfyrirtækinu Soffaníasi Cecilssyni hf. í Grundarfirði. Samkomulagið er með fyrirvörum, m.a. um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem send hefur verið fjölmiðlum. „Með þessu hyggst Fisk Seafood ehf. styrkja sig í sessi sem eitt öflugasta…Lesa meira

true

Fyrsta prjónakaffið í Rifssaumi

Vel var mætt í fyrsta prjónakaffi vetrarins hjá Rifssaumi í Rifi síðasta laugardag. Þar voru saman komnar konur til að hittast, prjóna, læra af hvor annarri og hafa gaman. Rifssaumur hefur staðið fyrir prjónakaffi í nokkur ár í miðri viku. Til stendur að hafa fleiri svona hittinga og líklega á þessum tíma þar sem hann…Lesa meira