Fréttir

true

Leggja til að nyrsti hluti Langasands verði endurheimtur

Tveir menn sem eiga rætur sínar á Akranesi skrifa í Skessuhorn vikunnar grein þar sem þeir leggja til róttækar breytingar varðandi fyrirhugaða landnýtingu á fyrrum athafnasvæði Sementsverksmiðjunnar á Akranesi. Þeir Már Karlsson verkfræðingur og Ormar Þór Guðmundsson arkitekt leggja til að Skagamenn endurheimti  þann hluta Langasands sem hvarf undir sementsþróna á sínum tíma þegar verksmiðjan…Lesa meira

true

Tíu ár frá stofnun Menntaskóla Borgarfjarðar

Síðastliðinn föstudag var boðið til veislu í Hjálmakletti í Borgarnesi, en þá var þess minnst að tíu ár eru liðin frá því Menntaskóli Borgarfjarðar hóf starfsemi. Guðrún Björg Aðalsteinsdóttir skólameistari bauð gesti velkomna og stýrði dagskrá. Sagði hún frá því að 22. ágúst 2007 hafi skólinn verið settur í fyrsta skipti og var það gert…Lesa meira

true

Jarðvegsvinna að hefjast vegna blokkarbyggingar við Stillholt

Starfsmenn verktakafyrirtækisins Þróttar á Akranesi voru í dag að grafa holur í væntanlegt grunnstæði fyrir íbúðablokk við Stillholt 21 á Akranesi. Nú í framhaldinu verður síðan farið í jarðvegsskipti og framkvæmdir við bygginguna. Þarna mun samkvæmt upplýsingum frá tæknisviði Akraneskaupstaðar fyrirtækið Skagatorg ehf. byggja 37 íbúða blokk, sambærilega þeirri sem fyrirtækið byggði einnig á næstu…Lesa meira

true

Verið að tryggja áframhald fiskmarkaðar á Akranesi

Orðrómur hefur verið uppi um að til stæði að loka útibúi Fiskmarkaðs Íslands á Akranesi. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri segir að þótt vissulega hafi staðið tæpt með framtíð markaðarins síðan í ágúst, þá sjái hann fram á farsæla lausn og að áfram verði rekinn markaður, en með breyttu verkfyrirkomulagi. Það megi þakka  frumkvæði Gísla Gíslasonar…Lesa meira

true

Fjölbrautaskóli Vesturlands er fertugur

Fjölbrautaskólinn á Akranesi, síðar Fjölbrautaskóli Vesturlands (FVA), fagnar 40 ára starfsafmæli í ár. FVA var stofnaður formlega árið 1987 með undirritun samnings milli 32 sveitarfélaga á Vesturlandi og menntamálaráðuneytis um rekstur sameiginlegs framhaldsskóla. Byggt var á grunni Fjölbrautaskólans á Akranesi sem tók til starfa 12. september 1977 þegar Gagnfræðaskólinn á Akranesi og Iðnskólinn á Akranesi…Lesa meira

true

Stendur réttarvaktina á 93. aldursári

Eyjólfur Andrésson í Síðumúla var staddur í Þverárrétt síðastliðinn mánudag líkt og undanfarin ár og áratugi. Sjálfur hætti hann búskap fyrir ríflega tveimur áratugum, en mætir engu að síður í réttina og hefur sitt fasta hlutverk að vera hliðvörður þegar rekið er inn í almenninginn og að reka á eftir fénu við innreksturinn. Eyjólfur kveðst…Lesa meira

true

Blóð, sviti, tár og drulla í leðjubolta

Síðastliðinn fimmtudag stóð Nemendafélag Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri fyrir árlegum viðburði á meðal nemenda. Var það leðjubolti sem fór fram í sjávarborðinu við engjarnar fyrir neðan gamla skólann, skammt frá ósum Hvítár við Borgarfjörð. Um leið og kennslu lauk síðdegis hófst keppnin svo hún myndi örugglega klárast áður en keppnisvöllurinn færi á flot á háflóði.…Lesa meira

true

Lindex verslun opnuð á Akranesi í byrjun nóvember

Forráðamenn Lindex á Íslandi hafa ákveðið að opna nýja verslun á Akranesi laugardaginn 4. nóvember næstkomandi. Albert Þór Magnússon, umboðsaðili Lindex á Íslandi, segist í samtali við Skessuhorn vera spenntur fyrir þessu verkefni. Lindex er ein stærsta tískufatakeðja Norður-Evrópu með um 500 verslanir í 16 löndum. Verslunin býður tískufatnað fyrir konur, undirföt, snyrtivörur og fylgihluti,…Lesa meira

true

Sauðfjárslátrun hefst í Borgarnesi í næstu viku

Fyrirhugað er að hefja í næstu viku sauðfjárslátrun í Sláturhúsi Vesturlands í Brákarey. Öll tilskilin leyfi eru til slátrunar í húsinu og því ekkert að vanbúnaði að hefja þar starfsemi. „Við erum hópur fólks úr héraði sem hefur undirbúið þetta að undanförnu og búið er að taka húsið á leigu af eigendum þess sem ekki…Lesa meira

true

Tæpir þrír milljarðar í nýjan Landspítala

Framlög til byggingar nýs Landspítala verða 2,8 milljarðar króna á árinu 2018. Er það hækkun um 1,5 milljarð frá fjármálaáætlun. Bygging spítalans hefst seinni hluta næsta árs og þá verður sömuleiðis hafist handa við byggingu meðferðarkjarna við Hringbraut. Þetta kemur fram í kynningu á fjárlögum ársins 2018 á vef stjórnarráðsins. Þar segir að haldið verði…Lesa meira