Fréttir

true

Stórsigur ÍA stúlkna í lokaleik 1. deildar

Stelpurnar í 1. deild ÍA í knattspyrnu áttu í gær stórleik í lokaumferð deildarinnar í sumar. Mættu þær Sindra frá Hornafirði á Akranesvelli og endaði viðureignin 6:0 fyrir gestgjafana. Skagastúlkur höfðu mikla yfirburði í leiknum, héldu boltanum vel og spiluðu almennt góðan fótbolta. Fyrsta markið kom á þriðju mínútu leiksins þegar Bergdís Fanney Einarsdóttir renndi…Lesa meira

true

Borgarbyggð vill efla lýðræði og upplýsingagjöf

Hjá sveitarfélaginu Borgarbyggð er búið að stofna nýja nefnd sem sinna á upplýsinga- og lýðræðismálum í sveitarfélaginu og mun hún eiga að starfa til loka kjörtímabilsins næsta vor. Hlutverk nefndarinnar er að “styrkja þróun og stöðu upplýsingamála hjá Borgarbyggð og efla enn frekar lýðræðislega umræðu meðal íbúa sveitarfélagsins,” eins og segir í tilkynningu. Nefndin er…Lesa meira

true

Óli Palli og frú á leið á Skagann

Útvarpsmaðurinn góðkunni og Skagamaðurinn, Ólafur Páll Gunnarsson og eiginkona hans Stella María Sigurðardóttir, hafa sett glæsihús sitt í Hafnarfirði á sölu og hyggjast, ef áætlanir þeirra ganga eftir, flytja á Akranes innan tíðar. Þessu greindi hann frá á Facebook síðu sinni. Eins og fram hefur komið í Skessuhorni keypti Óli Palli húsið Sunnuhvol við Skólabraut…Lesa meira

true

Skrifað undir samning um byggingu frístundamiðstöðvar við Garðavöll

Golfklúbburinn Leynir og Akraneskaupstaður skrifuðu í gær undir samninga um uppbyggingu frístundamiðstöðvar við Garðavöll á Akranesi. Þetta nýja hús verður rúmlega þúsund fermetrar að flatarmáli og skiptist í 700 m2 jarðhæð og 310 m2 kjallara. Húsið verður byggt úr forsteyptum einingum og mun rísa á sömu lóð og núverandi klúbbhús Leynis er og stefnt að…Lesa meira

true

Malbikað í Stykkishólmi

Undanfarið hafa staðið yfir töluverðar malbikunarframkvæmdir í Stykkishólmi. „Malbikunaraðgerðir hófust um miðjan ágúst og lauk um síðustu helgi, það er að segja þær aðgerðir sem varða verkefni sem snúa að bænum. Síðan verður áframhald malbikunar hjá fyrirtækjum og einstaklingum hér í bæjarfélaginu,“ segir Sturla Böðvarsson bæjarstjóri í samtali við Skessuhorn. Það var Kraftfag ehf. sem…Lesa meira

true

„Þetta verður svakaleg kraftlyftingaveisla“

Íslandsmeistaramótin í réttstöðulyftu, bekkpressu og klassískri bekkpressu fara fram nú um helgina í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Keppt verður í bekkpressu á morgun, laugardag, fyrst í klassískri bekkpressu frá klukkan 10 að morgni og síðan bekkpressu með útbúnaði frá klukkan 15. Á sunnudeginum verður síðan keppt í réttstöðulyftu. Það mót hefst klukkan 12 á…Lesa meira

true

Tónlistarhátíðin Tene-Rif markaði lok sumarstarfs í Frystiklefanum

Um liðna helgi fór tónlistarhátíðin Tene-Rif fram í Frystiklefanum í Rifi. Heppnaðist hún mjög vel og fór framúr væntingum skipuleggjenda. 110 miðar seldust á hátíðina og voru um 90 manns á hvoru kvöldi. Á föstudagskvöldið komu fram Rómantíski ástardúettinn, Karlakórinn Heiðbjört, Þrír, Dísa Jakobs og Emmsjé Gauti sem lokaði kvöldinu. Á laugardagskvöldið voru það Gunna…Lesa meira

true

Afar vel gengur að leggja ljósleiðara í Reykhólahreppi

Vinna við lagningu ljósleiðara í dreifbýli Reykhólahrepps gengur afar vel, að sögn Ingibjargar Birnu Erlingsdóttur sveitarstjóra. „Að mínu mati gengur þetta vonum framar,“ segir hún í samtali við Skessuhorn. „Farið var af stað seint í maí, þegar komið var undir mánaðamót. Þá var farið frá Miðhúsum og út Reykjanes. Þar er búið að leggja niður…Lesa meira

true

Tónlistarskóli Borgarfjarðar er fimmtugur í dag

Tónlistarskóli Borgarfjarðar er fimmtíu ára í dag, fimmtudaginn 7. september. Í tilefni afmælisins var boðið til hádegissnarls í húsnæði skólans að Borgarbraut 23 í Borgarnesi. Þar voru flutt stutt ávörp, gefnar gjafir og eðli málsins samkvæmt voru leikin lög og söngvar sungnir. Opið hús er í tónlistarskólanum í dag þar sem gestum og gangandi býðst…Lesa meira