
Í dag, föstudaginn 8. september, er fagnað tíu ára afmæli Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. Íbúum er boðið til fagnaðar í skólanum í dag klukkan 14 og í kjölfar dagskrár verður boðið upp á léttar veitingar. Allir eru velkomnir.Lesa meira

Í dag, föstudaginn 8. september, er fagnað tíu ára afmæli Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. Íbúum er boðið til fagnaðar í skólanum í dag klukkan 14 og í kjölfar dagskrár verður boðið upp á léttar veitingar. Allir eru velkomnir.Lesa meira

Golfklúbburinn Leynir og Akraneskaupstaður skrifuðu í gær undir samninga um uppbyggingu frístundamiðstöðvar við Garðavöll á Akranesi. Þetta nýja hús verður rúmlega þúsund fermetrar að flatarmáli og skiptist í 700 m2 jarðhæð og 310 m2 kjallara. Húsið verður byggt úr forsteyptum einingum og mun rísa á sömu lóð og núverandi klúbbhús Leynis er og stefnt að…Lesa meira

Undanfarið hafa staðið yfir töluverðar malbikunarframkvæmdir í Stykkishólmi. „Malbikunaraðgerðir hófust um miðjan ágúst og lauk um síðustu helgi, það er að segja þær aðgerðir sem varða verkefni sem snúa að bænum. Síðan verður áframhald malbikunar hjá fyrirtækjum og einstaklingum hér í bæjarfélaginu,“ segir Sturla Böðvarsson bæjarstjóri í samtali við Skessuhorn. Það var Kraftfag ehf. sem…Lesa meira

Íslandsmeistaramótin í réttstöðulyftu, bekkpressu og klassískri bekkpressu fara fram nú um helgina í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Keppt verður í bekkpressu á morgun, laugardag, fyrst í klassískri bekkpressu frá klukkan 10 að morgni og síðan bekkpressu með útbúnaði frá klukkan 15. Á sunnudeginum verður síðan keppt í réttstöðulyftu. Það mót hefst klukkan 12 á…Lesa meira

Um liðna helgi fór tónlistarhátíðin Tene-Rif fram í Frystiklefanum í Rifi. Heppnaðist hún mjög vel og fór framúr væntingum skipuleggjenda. 110 miðar seldust á hátíðina og voru um 90 manns á hvoru kvöldi. Á föstudagskvöldið komu fram Rómantíski ástardúettinn, Karlakórinn Heiðbjört, Þrír, Dísa Jakobs og Emmsjé Gauti sem lokaði kvöldinu. Á laugardagskvöldið voru það Gunna…Lesa meira

Vinna við lagningu ljósleiðara í dreifbýli Reykhólahrepps gengur afar vel, að sögn Ingibjargar Birnu Erlingsdóttur sveitarstjóra. „Að mínu mati gengur þetta vonum framar,“ segir hún í samtali við Skessuhorn. „Farið var af stað seint í maí, þegar komið var undir mánaðamót. Þá var farið frá Miðhúsum og út Reykjanes. Þar er búið að leggja niður…Lesa meira

Tónlistarskóli Borgarfjarðar er fimmtíu ára í dag, fimmtudaginn 7. september. Í tilefni afmælisins var boðið til hádegissnarls í húsnæði skólans að Borgarbraut 23 í Borgarnesi. Þar voru flutt stutt ávörp, gefnar gjafir og eðli málsins samkvæmt voru leikin lög og söngvar sungnir. Opið hús er í tónlistarskólanum í dag þar sem gestum og gangandi býðst…Lesa meira

Víða um land eru göngur nú að hefjast, bændur og búalið heldur til fjalla og smalar fé til rétta. Um næstu helgi og vikurnar í kjölfarið verður réttað um allt land. Meðfylgjandi mynd tók Íris Þórlaug Ármannsdóttir bóndi á Kjalvararstöðum í Borgarfirði í morgun við Reykjavatn, suðaustan Arnarvatnshæða. Þessir leitarmenn úr Hálsasveit og Reykholtsdal héldu…Lesa meira

Norræna skólahlaupið verður sett á morgun. Um er að ræða árlegt verkefni sem grunnskólum á Norðurlöndunum býðst að taka þátt í. Markmiðið með Norræna skólahlaupinu er að hvetja nemendur til að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Á síðasta ári tóku rúmlega 15 þúsund grunnskólanemendur frá 63 skólum á Íslandi…Lesa meira

Samningar hafa náðst milli tölvuleikjaframleiðandans EA SPORTS og Knattspyrnusambands Íslands um að íslenska karlalandsliðið verði með í FIFA 18, en leikurinn er einn sá vinsælasti í heimi. Eru þetta ánægjulegar fréttir fyrir þá tugi þúsunda spilara sem spila leikinn hérlendis og að sjálfsögðu FIFA spilara um allan heim sem hafa hrifist af gengi íslenska landsliðsins undanfarin…Lesa meira