Fréttir

true

Hyggjast hreinsa strendur og mál sama daginn

Í ár ber Alþjóða strandhreinsunardaginn upp á Dag íslenskrar náttúru sem haldinn er hátíðlegur 16. september ár hvert. Í plastlausum september vekur Landvernd því athygli á þeim hættum sem fylgja plastmengun í hafi. „Við hvetjum fólk til að skipuleggja sína eigin hreinsun og taka þátt í plastlausum september. Auðvelt er að minnka notkun plasts, kaupa…Lesa meira

true

FSN og Hópferðabílar Svans endurnýja aksturssamning

Fjölbrautaskóli Snæfellinga og Hópferðabílar Svans Kristófers ehf endurnýjuðu samning um rútuakstur nemenda á dögunum. Samningurinn er til þriggja ára með möguleika á framlengingu sé þess óskað. Fyrirtækið hefur séð um aksturinn undanfarin fimm ár og hefur hann gengið hnökralaust fyrir sig og er mikil ánægja með samstarfið af beggja hálfu.Lesa meira

true

Listakona spjallar við gesti á sunnudaginn

Nokkrir dagar eru nú eftir af einkasýningu Hildar Björnsdóttur í Akranesvita á Akranes. Á síðasta degi sýningarinnar, næstkomandi sunnudag, ætlar hún að vera til staðar í vitanum frá klukkan 13 til 15. Þá gefst gestum tækifæri til að spjalla við listamanninn og sjá sýninguna sem hefur verið vel sótt í sumar. Verk Hildar eru unnin…Lesa meira

true

Framkvæmdir við Urðarfellsvirkjun ganga vel

Nú er búið að steypa upp inntaksmannvirki Urðarfellsvirkjunar í landi Húsafells í Borgarfirði. Mannvirkið sjálft verður síðan að hluta niðurgrafið og fellt inn í landslagið þannig að sem minnst beri á því. Frá inntakshúsinu er lögð 3,1 kílómetra fallvatnslögn niður í stöðvarhús sem reist verður í Reyðarfellsskógi. Það mun hýsa túrbínu, rafal og spenni, en…Lesa meira

true

Stórafmæli Tónlistarskóla Borgarfjarðar er á morgun

Á morgun, fimmtudaginn 7. september, verða 50 ár liðin frá stofnun Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Eins og fram kom í viðtali við Theodóru Þorsteinsdóttur skólastjóra í síðasta Skessuhorni, verður haldið upp á daginn með opnu húsi á sjálfan afmælisdaginn. Skólinn mun bjóða upp á hádegissnarl í skólanum. Einnig er gestum velkomið að fylgjast með kennslu allan daginn.…Lesa meira

true

Átakið Göngum í skólann hefst á morgun

Átakið Göngum saman verður formlega sett á morgun, miðvikudag. Markmið þess er að hvetja nemendur og foreldra á Íslandi til að ganga, hjóla eða nota annan virkan ferðamáta til og frá skóla. Um leið er ætlunin að hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann…Lesa meira

true

Framkvæmdir við Grundarfjarðarvöll

Grundarfjarðarbær hefur ákveðið að nýta tækifærið á meðan malbikunarframkvæmdir standa yfir á Snæfellsnesi og malbika hluta af hringnum í kringum íþróttavöll bæjarins. Verktakar voru að undirbúa malbikunina þegar ljósmyndara bar að garði en það á að gera hlaupabraut og tilhlaupsbrautir fyrir stökkgryfjur í þessari atrennu. Þetta mun bæta aðstöðuna fyrir frjálsíþróttir til muna en fyrir…Lesa meira

true

Tónlistarhátíðin Tene-Rif endapunktur sumardagskrár í Frystiklefanum

Um liðna helgi fór tónlistarhátíðin Tene-Rif fram í Frystiklefanum í Rifi. Heppnaðist hún mjög vel og fór framúr væntingum skipuleggjenda. 110 miðar seldust á hátíðina og voru um 90 manns á hvoru kvöldi. Á föstudagskvöldið komu fram Rómantíski ástardúettinn, Karlakórinn Heiðbjört, Þrír, Dísa Jakobs og Emmsjé Gauti sem lokaði kvöldinu. Á laugardagskvöldið voru það Gunna…Lesa meira

true

Ráðherra leggur til aðgerðir vegna erfiðleika í sauðfjárbúskap

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir landbúnaðarráðherra kynnti í dag á vef Stjórnarráðsins tillögur sínar til að bregðast við vanda sauðfjárbænda. Meginmarkið þeirra er að draga úr framleiðslu dilkakjöts um 20%, mæta kjaraskerðingu bænda, styðja við sauðfjárbúskap á jaðarsvæðum og gera úttekt á birgðum sauðfjárafurða og afurðastöðvakerfinu. Jafnframt boðar ráðherra að tillögur um aðgerðir og áherslur fara nú…Lesa meira

true

Skagakonur höfðu sigur í Ólafsvík – Víkingskonur fallnar

Víkingur Ó. og ÍA mættust í Vesturlandsslag 1. deildar kvenna í knattspyrnu síðastliðinn laugardag. Leikið var í Ólafsvík þar sem aðstæður til knattspyrnuiðkunar voru ekki þær bestu. Rigning og ekki síst rokið átti eftir að setja verulega mark sitt á leikinn sem Skagakonur sigruðu með tveimur mörkum gegn einu. Heimakonur voru betri í upphafi leiks…Lesa meira