Fréttir

true

Kynningarfundur síðdegis í dag um byggingarmál grunnskólans

Í dag, miðvikudaginn 23. ágúst, er boðað til kynningarfundar um fyrirhugaðar framkvæmdir og endurbætur á húsnæði Grunnskólans í Borgarnesi og viðbyggingu hans. Ráðist verður í verulegar endurbætur á núverandi húsnæði ásamt því að hafist verður handa við byggingu mötuneytis og salar í viðbyggingu við skólann. Fulltrúi frá verkfræðistofunni Eflu fer á fundinum yfir núverandi stöðu…Lesa meira

true

Ármann Smári kemur Jón Þór til aðstoðar

Knattspyrnufélag ÍA hefur ráðið Ármann Smára Björnsson fyrrum leikmann ÍA sem aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla hjá félaginu. Einnig munu þeir Þórður Guðjónsson og Sigurður Jónsson koma til með að aðstoða Jón Þór og Ármann í þeim verkefnum sem framundan eru. Eins og fram kom í fréttum í gær steig Gunnlaugur Jónsson til hliðar sem þjálfari liðsins…Lesa meira

true

Framkvæmdir héldu áfram við gömlu réttina í Ólafsvík

Framkvæmdir héldu áfram í sumar við endurhleðslu á gömlu réttinni í Ólafsvík. Undirbúningur við verkið fór fram árið 2014 og hefur hleðslufólk komið síðustu sumur að vinnu, átta daga árið 2015 og níu daga í fyrrasumar. Í sumar kom hleðslufólkið 6. júlí og var í átta daga. Með því voru þrír sjálfboðaliðar og hefur verkinu…Lesa meira

true

Síðasta af þremur skipum í raðsmíðaverkefni

„Þessu miðar ágætlega hjá okkur og við erum að miða við að skipið verði komið heim fyrir jól. Það er að styttast í prufukeyrslu á vélbúnaði og verður ljósavélum startað í vikunni,“ segir Þórarinn Sigurbjörnsson, skipaeftirlitsmaður HB Granda sem staddur er í Céliktrans skipasmíðastöðinni í Tyrklandi. Í stöðinni er nú unnið að smíði og frágangi…Lesa meira

true

Ráðherra vill að sauðfé verði fækkað um fimmtung

Ríkisútvarpið greindi í gær því í frétt að í hugmyndum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, til að leysa vanda sauðfjárbænda, sé gert ráð fyrir að sauðfé verði fækkað um allt að 20% til lengri tíma. Þær hugmyndir voru kynntar í atvinnuveganefnd Alþingis og forsvarsmönnum sauðfjárbænda í gær. Þorgerður Katrín sagði í samtali við fréttastofu…Lesa meira

true

Leiktæki komin í Krúsina við Grundaskóla

Miklar endurbætur hafa verið gerðar á skólalóð Grundaskóla á Akranesi í sumar og nýjum leiktækjum verið komið fyrir í Krúsinni, norðvestan við skólann. Að sögn Sigurðar Arnar Sigurðssonar skólastjóra er auk þess verið að framkvæma innan dyra. „Umfangsmiklar endurbætur eru framundan á smíðastofu og fyrirhugað að opna þar sérstaka listasmiðju sem leggur áherslu á samþættingu…Lesa meira

true

Komið að malbikun Kveldúlfsgötu

Íbúar við Kveldúlfsgötu í Borgarnesi sjá nú fram á langþráða stund þegar framkvæmdum við götuna lýkur. Í raun er nú verið að ljúka við tvö verk. Haustið 2015 var samið við Borgarverk um endurnýjun gangstétta og í ljós kom að jarðvegsskipta þurfti undir götunni einnig. Samið var um það verk á síðasta ári. Eftir framkvæmdirnar…Lesa meira

true

Gunnlaugur Jónsson hættir með Skagamenn

Knattspyrnufélag ÍA sendi frá sér yfirlýsingu nú rétt í þessu þar sem kemur fram að Gunnlaugur Jónsson hafi óskað eftir því við stjórn félagsins að stíga til hliðar sem þjálfari meistaraflokks ÍA. Stjórnin samþykkti beiðni Gunnlaugs og hefur falið Jóni Þór Haukssyni, aðstoðarmanni Gunnlaugs, að stjórna liðinu út tímabilið. Stjórn Knattspyrnufélags ÍA vill koma á…Lesa meira

true

Banna dreifingu mjólkur frá bæ í Skagafirði

„Dreifing mjólkur hefur verið stöðvuð til bráðabirgða frá bænum Viðvík í Skagafirði. Ástæða dreifingarbanns er að eftirlitsmanni Matvælastofnunar var meinaður aðgangur að eftirlitsstað,“ segir í tilkynningu sem Matvælastofnun var að senda. „Ef ekki er unnt að framkvæma eftirlit getur stofnunin ekki sannreynt að framleiðslan uppfylli ákvæði laga um hollustuhætti í matvælaframleiðslu. Á meðan slíkt ástand…Lesa meira

true

Nýir kvensjúkdómalæknar til starfa

Á kvennadeild HVE á Akranesi eru tvö stöðugildi sérfræðinga í kvensjúkdómum og fæðingarhjálp. Nýverið voru tveir kvensjúkdómalæknar ráðnir í hlutastöður og von er á þriðja sérfræðingnum og þegar sú ráðning gengur í gegn verður hægt að fylla upp í stöðugildin tvö. „Þetta er mikil breyting frá því var fyrir nokkrum mánuðum og raunar í mörg…Lesa meira