Fréttir

true

Valdís Þóra keppir á úrtökumóti fyrir Opna breska

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi, leikur í dag á úrtökumóti fyrir Opna breska meistaramótið sem hefst í Skotlandi á fimmtudaginn. Úrtökumótið sem Valdís keppir á fer fram á Castle Course í St. Andrews í Skotlandi. Hún á rástíma kl. 11.00, eða eftir eina klukkustund. Aðeins leikinn einn 18 holu hringur í…Lesa meira

true

Búið að opna Viðvík

Veitingastaðurinn Viðvík Resturant var formlega opnaður laugardaginn 22. júlí sl. á Hellissandi. Viðvík er við þjóðveginn þegar ekið er frá Sandi og suður fyrir jökul. Húsnæðið sem hann er í hefur verið mikið endurbætt og er staðurinn allur hinn glæsilegasti. Opnuninni var fagnað kvöldið áður og gestum boðið að skoða húsnæðið og fagna með eigendum.…Lesa meira

true

Bjóða út byggingu frístundamiðstöðvar við Garðavöll

Golfklúbburinn Leynir á Akranesi er nú að undirbúa framkvæmdir við byggingu nýrrar frístundamiðstöðvar við Garðavöll. Verkefnið er unnið í nánu samstarfi við Akraneskaupstað. Eins og komið hefur fram í fréttum Skessuhorns samþykkti bæjarstjórn að fara af stað með verkefnið í samstarfi við golfklúbbinn. „Nú erum við að bjóða út steypuhluta byggingarinnar, þ.e. grunn og sökkla,…Lesa meira

true

Bera saman ástand sjávar í nokkrum löndum

Tíðindamaður Skessuhorns rakst nýverið á hjónin Gala og Justin Judge frá Belfast á Írlandi þar sem þau voru stödd í Álftafirði á Snæfellsnesi. Þar voru þau við sýnatöku vegna rannsóknar Justins sem er hluti af doktorsverkefni hans við Queens Háskólann í Belfast. Í rannsókn sinni ætlar Justin að athuga hvort hækkandi hitastig hafsins; súrnun sjávar…Lesa meira

true

„Vona að við þurfum ekki að ganga Druslugöngu í framtíðinni“

„Druslugangan er alþjóðleg baráttuhreyfing sem berst gegn því óréttlæti sem þolendur kynferðisglæpa þurfa að lifa við. Í göngunni kemur saman fjöldinn allur af fólki sem eru ýmist þolendur, aðstandendur og/eða aðilar sem styðja málstaðinn og taka afstöðu. Gangan var upphaflega gengin í Toronto í Kanada árið 2011 vegna umdeildra ummæla lögreglustjórans í borginni. Hann sagði…Lesa meira

true

Nýtt gervigras lagt í Akraneshöllinni

Nú er unnið að því að skipta um gervigras í Akraneshöllinni en stefnt er að því að ljúka verkinu síðari hluta ágústmánaðar. Í vor samþykkti Akraneskaupstaður 38 milljóna króna tilboð Metratron í verkið. Gervigrasið er vottað af FIFA og stenst staðalinn Fifa Quality pro field test. Gúmmímotta verður undir gervigrasinu sjálfu og ofan á gervigrasið…Lesa meira

true

Ungur miðvörður til ÍA

ÍA hefur náð samkomulagi við Viktor Örn Margeirsson og mun hann leika með liðinu út sumarið 2017 á lánssamningi frá Breiðabliki. Viktor er fæddur árið 1994 og leikur stöðu miðvarðar. Hann lék sína fyrstu meistaraflokksleiki með Augnabliki sumarið 2013 og sumarið eftir lék hann 19 leiki með HK í 1. deildinni. Hann gekk síðan til…Lesa meira

true

Gert klárt fyrir malbikun

Verktakafyrirtækið JK&Co slf. er þessa dagana að bera efni og þjappa í planið fyrir utan íþróttamiðstöð Grundarfjarðar. Þarna hefur verið malarplan í mörg ár sem hefur töluvert verið til vandræða enda myndast leiðinda holur á því og leðja. Nú stendur til að malbika planið og verður það mikil bót á aðstöðu fyrir gesti og gangandi.Lesa meira

true

Gamli og nýi tíminn mætast

Ljósmyndari Skessuhorns rakst á þetta skemmtilega myndefni í Brákarey Borgarnesi í liðinni viku. Þarna stóðu þeir hlið við hlið fulltrúar gamla og nýja tímans ef svo má segja, tveir bílar sem báðir þóttu stórir þegar þeir runnu af færibandinu. Sá gamli fyrir sjötíu árum er Dodge árgerð 1947. Hann þótti stór á sínum tíma, var…Lesa meira

true

Framkvæmdum við Jaðarsbakkalaug fer senn að ljúka

Í lok síðasta árs var hafist handa við framkvæmdir á sundlaugarvæðinu á Jaðarsbökkum á Akranesi. Framkvæmdirnar snúa að ýmsum þáttum og hefur m.a. verið skipt um lagnir og nýir miðlunartankar teknir í notkun. Stærsta breytingin er sú að heitu pottarnir sem fyrir voru hafa verið teknir í burtu auk vaðlaugarinnar. Í staðinn kemur vaðlaug samtengd…Lesa meira