Fréttir

true

Viðsnúningur hjá Búmönnum

Í september á síðasta ári var kjörinn nýr formaður stjórnar samvinnufélagsins Búmanna, stjórn endurnýjuð að hluta og öll varastjórn endurnýjuð. „Þegar stjórnin tók við var félagið í frjálsu falli. Það var í greiðslustöðvun og ekkert annað blasti við en gjaldþrot félagsins. Ný stjórn hafði það erfiða verk fyrir höndum að bjarga félaginu frá gjaldþroti,“ var meðal…Lesa meira

true

Sjómannadagsblað Skessuhorns í næstu viku

Í næstu viku verður hið árlega Sjómannadagsblað Skessuhorns gefið út. Komið verður víða við í efnistökum. Allar góðar ábendingar eru þó vel þegnar frá lesendum um efni sem gæti átt heima í blaðinu. Skemmtilegar veiðimyndir af sjó eða jafnvel úr höfnum, veiðisögur, reynslusögur eða hvaðeina er vel þegið og óskast sent á ritstjórn sem fyrst.…Lesa meira

true

Skagakonur töpuðu fyrir Selfyssingum

Þriðja umferð Pepsi deildar kvenna í knattspyrnu var leikin í gær. ÍA tók á móti Selfossi og mátti sætta sig við 0-2 tap. Leikið var í Akraneshöll, en leikurinn var færður inn með skömmum fyrirvara vegna veðurs. Talsvert mikið rok var á Akranesvelli og vart boðlegt að leika þar knattspyrnu við slíkar aðstæður. Nokkuð jafnræði…Lesa meira

true

Fá óhöpp í umferðinni í vikunni sem leið

Aðeins urðu þrjú minniháttar umferðaróhöpp í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í síðustu viku. Miðað við umferðarþunga gleðst lögregla yfir þeim árangri. „Hverju það má þakka er ekki víst, en batnandi ökumönnum er best að lifa,“ segir Theódór Þórðarson lögregluvarðstjóri. „Hluti af vorverkum lögreglunnar er að heimsækja skóla í umdæminu og fara yfir umferðarreglurnar með börnunum…Lesa meira

true

Hérumbil safn Gunna Jóns í Borgarnesi

Öll bæjarfélög luma á litlum og stórum leyndarmálum. Fram til þessa, eða þar til að þessi frétt birtist hér, er lítið smámunasafn í Borgarnesi sem fáir hafa vitað af. Það er Gunnar Jónsson smiður og múrari hjá Nesafli í Borgarnesi sem hóf fyrir nokkru að halda til haga ýmsum munum sem tengjast sögunni, einkum hans…Lesa meira

true

Umdeilt deiliskipulag samþykkt í bæjarstjórn

Á fundi bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar síðdegis í dag var fyrsta mál á dagskrá afgreiðsla á tillögu um breytt deiliskipulag fyrir Breiðarsvæðið á Akranesi. Eins og margir þekkja hefur málið verið mjög umdeilt í bæjarfélaginu, hópar fólks bæði lagst á sveif með tillögunni og gegn henni. Skipulagið gerir ráð fyrir að HB Granda verði kleift að stækka til…Lesa meira

true

Formlega búið að stofna Viðreisn

Nýja stjórnmálaaflið Viðreisn var formlega stofnað síðdegis í dag á fundi í Hörpunni. Fundurinn var vel sóttur og troðfullt en hátt í 400 manns mættu. Grunnstefnumið voru samþykkt og stjórn kjörin. Ræðumenn á fundinum voru Geir Finnsson markaðsstjóri, Hulda Þórisdóttir lektor í stjórnmálafræði við HÍ, Bjarni Halldór Janusson háskólanemi, Helga Valfells forstöðumaður Nýsköpunarsjóðs og Benedikt…Lesa meira

true

Ofar skýjum með friðarkyndil

Hlauparar náðu í dag á topp Snæfellsjökuls með kyndil Sri Chinmoy heimseiningar friðarhlaupsins. Í dag og gær komu hlauparar við í skólum á Vesturlandi og verða á morgun og hinn daginn einnig á Vesturlandi, sbr frétt hér á vefnum fyrr í dag. Friðarkyndillinn verður sendur frá Íslandi áfram til Slóvakíu, en öll lönd í Evrópu…Lesa meira

true

Byrjað að rífa Suðurgötu 64

Í gær hófst niðurrif á Suðurgötu 64 á Akranesi. Húsið hefur verið í eigu Akraneskaupstaðar frá 2014 og staðið autt um hríð. Suðurgata 64 er við Akratorg og er húsið þriggja hæða og var áður nýtt sem íbúðarhús. Líkt og fram kom í Skessuhorni í síðustu viku verður gengið frá svæðinu með þökulögn eftir að húsið…Lesa meira

true

Tók við framkvæmdastjórn Pírata

Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Pírata á Íslandi. Sigríður Bylgja er með BA gráðu í HHS frá Háskólanum á Bifröst og MSc í Mannvistfræði frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð. Áður en hún hóf nám á Bifröst starfaði hún sem verkefnastjóri hjá Starfsgreinasambandi Íslands og Landvernd en einnig hefur hún starfað hjá Utanríkisráðuneytinu…Lesa meira