Fréttir

Þjóðbúningafræðsla í Norska húsinu – BSH

Gestir frá Heimilisiðnaðarfélagi Íslands koma í heimsókn í Norska húsið mánudaginn 19. júní kl. 17-20. Þetta eru þær Oddný Kristjánsdóttir klæðskeri og kennari í þjóðbúningasaumi, Inda Dan Benjamínsdóttir kennari í baldýringu og flauelsskurði og Guðbjörg Inga Hrafnsdóttir kniplkennari. Boðið verður upp á fræðslu um þjóðbúninga og þá sérstaklega geymslu þeirra og varðveislu. Gestum býðst að…Lesa meira

true

Hafmeyjan mætt að nýju í Skallagrímsgarð

Steinsmiðurinn Gerhard König hefur að undanförnu unnið að endurgerð á styttunni Hafmeyjunni eftir Guðmund Einarsson frá Miðdal, en listaverkinu var upphaflega komið fyrir í grosbrunninum í Skallagrímsgarði í Borgarnesi árið 1962. Það var Kvenfélag Borgarness sem gaf verkið á 25 ára afmæli félagsins. Var Hafmeyjan jafnframt fyrsta listaverkið sem komið var fyrir í garðinum. Í…Lesa meira

true

Reikigjöld eiga að falla niður frá deginum í dag

Frá og með deginum í dag, 15. júní, munu sérstök gjöld á reiki innan EES-svæðisins falla niður. Eftir að sú breyting tekur gildi munu símnotendur frá þeim löndum sem tilheyra svæðinu borga það sama fyrir símanotkun og gagnamagn á ferðalögum innan EES-svæðisins og þeir greiða heima fyrir. Þetta er samkvæmt reglugerð ESB sem tekin hefur…Lesa meira

true

Nýir meðeigendur komnir að Krauma og framkvæmdir að hefjast

Búið er að skrifa undir samning um kaup nýrra fjárfesta á 66,6% hlut í Krauma við Deildartunguhver. Fyrri eigendur halda þriðjungshlut í fyrirtækinu en fyrirtækið Jökull Invest kaupir meirihlutann. Það er sama félag og stendur á bak við rekstur Hótel Hafnar í Hornafirði. Pétur Jónsson rekstrarhagfræðingur hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Krauma. Hann segir í…Lesa meira

true

Opnað fyrir veiði á Arnarvatnsheiði

Í dag var opnað fyrir sölu veiðileyfa á Arnarvatnsheiði. „Útlitið á heiðinni er óvenju gott eftir mildan vetur og gott vor, samt er vatnsstaðan í vötnunum fín. Vonumst við því eftir að aflinn verði feitur og flottur eftir gott vor,“ segir í frétt frá veiðifélaginu. Nú í byrjun veiðitímans eru því allir vegarslóðar færir og…Lesa meira

true

Manchester City og West Ham mætast á Laugardalvelli

Hin frægu knattspyrnulið Manchester City og West Ham munu mætast í æfingaleik á Laugardalsvelli í The Super Match föstudaginn 4. ágúst kl. 14 en lið úr ensku úrvalsdeildinni hafa aldrei áður mæst hér á landi. The Super Match skipuleggur stóra knattspyrnuleiki á Norðurlöndunum en þar keppa tvö af bestu liðum veraldar hverju sinni. Lið eins…Lesa meira

true

Skagamenn gerðu markalaust jafntefli

Leikið var í sjöundu umferð Pepsideildar karla í knattspyrnu í gær. Skagamenn héldu til Akureyrar til að mæta nýliðum KA. Skagamenn hafa verið í basli í deildinni það sem af er sumri og aðeins sigrað einn leik og voru því í næstneðsta sæti fyrir leikinn með þrjú stig. KA hefur farið betur af stað og…Lesa meira

true

Viðbrögð við Costco umfram væntingar stjórnenda

Viðskiptavinir sem heimsóttu verslun Costco í Kauptúni í Garðabæ í gær gripu hálfpartinn í tómt. Ástæða er til að benda þeim á sem um lengri veg þurfa að fara að kynna sér ástandið í versluninni áður en haldið er í verslunarferð. Fjölmargar vöruhillur voru tómar og afar takmarkað úrval til í ýmsum vöruflokkum. Að sögn…Lesa meira

true

Búið að enduropna Sjóminjasafnið á Hellissandi

Miklar breytingar hafa verið gerðar á Sjóminjasafninu á Hellissandi síðan í fyrra. Var safnið enduropnað um liðna helgi. Á safninu eru nú tvær nýjar sýningar. Annars vegar „Sjósókn undir Jökli“ en hún er í bátaskýlinu. Þar er Blikinn í aðalhlutverki og þeir safngripir sem tilheyra sjósókn og ekki síst árabátaöldinni. Þar má einnig sjá gamalt…Lesa meira

true

Myndlistarsýning opnuð á laugardaginn í Listasal Stykkishólmskirkju

Næstkomandi laugardag, 17. júní, verður opnuð myndlistarsýning í Listasal Stykkishólmskirkju, en salurinn var tekinn í notkun á síðasta ári.  Það er Listvinafélag Stykkishólmskirkju sem sér um listviðburði í kirkjunni ár hvert og skipuleggur þessa sýningu. Tónlistarviðburðir hafa verið fastur liður í starfsemi félagsins allt frá því að kirkjan var vígð fyrir rúmum 25 árum. Hafa…Lesa meira