
Héraðsdómur Vesturlands hefur sakfellt konu á fertugsaldri fyrir ítrekað umferðarlagabrot. Það var Lögreglustjórinn á Vesturlandi sem lagði fram kæru. Hafði konan lagt bifreið sinni á gangstétt við verslunina Nettó í Borgarnesi og síðan ekið henni ótryggðri. Þá þótti konan auk þess óhæf til að stjórna bifreiðinni vegna áhrifa ólöglegra ávana- og fíkniefna og var hún svipt ökuréttindum.…Lesa meira








