Fréttir

true

Formannsefni kynna sig á sunnudaginn

Fjórir bjóða sig fram til formennsku í Samfylkingunni. Þetta eru þau Guðmundur Ari Sigurjónsson, Helgi Hjörvar, Magnús Orri Schram og Oddný Harðardóttir. Þau munu heimsækja Akranes næstkomandi sunnudag og halda fund á Stillholti 16-18 klukkan 15. Frambjóðendurnir kynna sig og stefnumál sín og svara spurningum gesta. -fréttatilkynning    Lesa meira

true

Æðarkollu komið til hjálpar

Þessi æðarkolla gerði sér nýverið hreiður í skjóli við skemmuvegg á bænum Tröðum í Hraunhreppi. Hún áttaði sig hins vegar ekki á því að hreiðrið var beint undir niðurfalli af þakrennunni. Því hefði vætu og vosbúðar verið að vænta ef ekki hefði komið til hjálp frá mannfólkinu. Hann Óskar Þór Óskarsson vélamaður og æðarbóndi í…Lesa meira

true

Beðið eftir niðurstöðu HEV og Skipulagsstofnunar

Eins og kunnugt er var tillaga um breytingu á deiliskipulagi Breiðarsvæðis á Akranesi samþykkt í bæjarstjórn síðastliðið þriðjudagskvöld. Nær tillagan til lóðanna að Breiðargötu 8, 8A og 8B sem eru í eigu HB Granda. Samþykkt deiliskipulag var forsenda þess að fyrirtækið geti byggt á þeim stað nýja fiskþurrkunarverksmiðju. Aðspurður um næstu skref varðandi stækkun, segir…Lesa meira

true

Lýsa miklum vonbrigðum með ákvörðun bæjarstjórnar

Samtökin Betra Akranes hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna ákvörðunar bæjarstjórnar Akraness í fyrrakvöld um að samþykkja nýtt deiliskipulag á Breið sem heimilar stækkun fiskþurrkunar HB Granda á Akranesi. „Betra Akranes lýsir yfir vonbrigðum með ákvörðun bæjarstjórnar Akraness sem samþykkti á fundi sínum 24. maí 2016 að leyfa breytt deiliskipulag á athafnasvæði HB-Granda á Breið…Lesa meira

true

Millidómstig verður til á Íslandi

Lagafrumvörp Ólafar Nordal innanríkisráðherra um stofnun millidómstigs var samþykkt á Alþingi í dag. Með breytingunum verður til nýr áfrýjunardómstóll, Landsréttur. Mun hann hafa aðsetur í Reykjavík. Gert er ráð fyrir að lögin taki gildi 1. janúar 2018. Þetta kemur fram á vef innanríkisráðuneytisins. Verður því sú grundvallarbreyting á íslenskri réttarskipan að stað tveggja dómstiga áður…Lesa meira

true

Gallup kannaði fylgi forsetaframbjóðenda

Gallup framkvæmdi netkönnun dagana 19. til 25. maí um fylgi frambjóðenda til embættis forseta Íslands. Í úrtaki voru 1.429 og svöruðu 57,2% spurningunni. 3% segjast ætla að skila auðu en 12,4% tóku ekki afstöðu. Niðurstaðan var sú að Guðni Th Jóhannesson sagnfræðingur mældist með 57% fylgi. Davíð Oddsson ritstjóri nýtur stuðnings 22% og Andri Snær…Lesa meira

true

Atvinnuleysi var 4,9% í apríl

Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 198.800 manns á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í apríl 2016, sem jafngildir 84,1% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 188.900 starfandi og 9.800 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 79,9% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 4,9%. Samanburður mælinga fyrir apríl 2015 og 2016 sýnir…Lesa meira

true

Lagadagur á Bifröst

Lagadagur Nomos, félags laganema við Háskólann á Bifröst, verður haldinn laugardaginn 28. maí næstkomandi. Á deginum verður meðal annars kynnt nýtt meistaranám í viðskiptalögfræði við Háskólann á Bifröst, sem nú er í mótun, en auk þess eru áhugaverð erindi og málstofa á dagskrá. Skráning er ókeypis og er dagurinn öllum opinn. Dagskráin verður sem hér…Lesa meira

true

Níu verða á framboðslistanum

Innanríkisráðuneytið hefur gefið út auglýsingu um hverjir verði í framboði til kjörs forseta Íslands 25. júní næstkomandi. Níu verða í framboði en eitt framboð var dæmt ógilt þar sem skorti á fjölda meðmælenda. Ákvörðun sú byggir á lögum um framboð og kjör forseta Íslands, nr. 36/1945, með síðari breytingum. Forsetaframbjóðendur verða:   Andri Snær Magnason,…Lesa meira

true

Óku eftir Google Map og festust á Haukadalsskarði

Erlend hjón lentu í hremmingum á þriðjudagskvöldið þegar þau ætluðu frá Ólafsvík og norður til Akureyrar.  Hjónin óku sem leið lá um Dali og treystu á Google Map til að finna stystu leiðina til Akureyrar. Þau voru á fjórhjóladrifnum bíl og voru komin langleiðina upp á skarðið þegar þau festu bílinn í snjó en ekki…Lesa meira