Fréttir

true

Styttist í ferjusiglingar á Akranes

Haldinn var opinn hádegisfundur um ferðaþjónustu á Akranesi síðastliðinn föstudag. Viðstaddir voru m.a. Gunnlaugur Grettisson, framkvæmdastjóri Sæferða og Ólafur William Hand, upplýsinga- og markaðsstjóri Eimskipa. Greindu þeir frá fyrirhuguðum ferjusiglingum Sæferða milli Akraness og Reykjavíkur í sumar. Gunnlaugur sagði frá því að Sæferðir hefðu samið við norskt fyrirtæki um leigu á ferjunni Tedno, sem er…Lesa meira

true

Efnið malað í malarhluta Fróðárheiðar

Framkvæmdir stóðu yfir á Fróðárheiði á laugardaginn. Þá var lagfærður eini malarkaflann á heiðinni en hann er upp að norðanverðu. Voru allar stikur teknar upp og heflað upp úr köntunum inn á veginn. Efnið var þvínæst brotið niður með malarbrjót sem er aftan í dráttarvél og það síðan heflað út að nýju. Ekki voru veðurguðirnir…Lesa meira

true

Viðburðasumar að hefjast í Frystiklefanum í Rifi

Fimmtudaginn 1. júní hefst Viðburðasumar í Frystiklefanum í Rifi. Á dagskrá eru 90 menningarviðburðir á jafn mörgum dögum. „Þetta verður sannkallað viðburðamaraþon hjá okkur. Á dagskránni í sumar verður meðal annars söngleikurinn Journey to the centre of the earth, gestaleiksýningin Purgatorio, kvikmyndin Hrútar og fjöldinn allur af tónleikum. Ber þar helst að nefna Mugison, Valdimar,…Lesa meira

true

Undirbúningsfundur annað kvöld – Brákarhátíð verður 24. júní

„Opinn undirbúningsfundur fyrir Brákarhátiðina verður haldinn í Landnámssetrinu miðvikudaginn 31. maí kl. 20.Við hvetjum alla sem langar til að koma að dagskránni, hafa hugmyndir um eitthvað nýtt sem gaman væri að gera eða vilja á einhvern hátt leggja sitt af mörkum, að mæta á fundinn. Forsvarsmenn félagasamtaka sem áður hafa tekið þátt í dagskránni eru…Lesa meira

true

Góð þátttaka og glæsihross á gæðingamóti

Gæðingamót hestamannafélaganna Faxa og Skugga fór fram síðstliðinn laugardag í Borgarnesi. Mótið var jafnfram úrtaka fyrir Fjórðungsmót Vesturlands sem haldið verður á sama stað seinnipartinn í júní. Bæði Skuggi og Faxi mega senda sex keppendur í hvern flokk á FM. Skráning á mótið var mjög góð og margar flottar sýningar. Efstu hestar í hverjum flokki…Lesa meira

true

Ráðherrar svöruðu fyrirspurnum um sjávarrof og sjóvarnir

Fyrir skemmstu bárust svör þriggja ráðherra við spurningum Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur alþingismanns VG í Norðvesturkjördæmi um sjávarrof, sjávarflóð og sjóvarnir. Sjávarrof hefur valdið landeyðingu víða um land og orði til þess að minjar um búsetu og lífsbaráttu genginna kynslóða eru horfnar eða í hættu og í sumum tilvikum á þetta einnig við um mannvirki sem…Lesa meira

true

Mark á lokamínútunni réði úrslitum

Víkingur Ó. mætti Þrótti R. í þriðju umferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu í gær. Leikið var í Reykjavík. Víkingsliðið kom mun ákveðnara til leiks og réði ferðinni í upphafi, án þess þó að skapa sér afgerandi marktækifæri. Eftir því sem leið á komst Þróttur betur inn í leikinn og það voru þær sem áttu…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík tapaði gegn Breiðabliki

Í Kópavogi á sunnudag kepptu lið Breiðabliks og Víkings Ólafsvíkur í fimmtu umferð Pepsideildar karla í knattspyrnu. Mikil eftirvænting var fyrir leiknum og þá sérstaklega í ljósi þess að Milos Milojevic, nýráðinn þjálfari Breiðabliks, stýrði liðinu í fyrsta sinn í leiknum en hann hóf tímabilið sem þjálfari Víkings Reykjavíkur. Það var slæmur kafli í fyrri…Lesa meira

true

Skagamenn sóttu þrjú stig til Vestmannaeyja

Um síðustu helgi var leikin fimmta umferð í Pepsideild karla í knattspyrnu. Í Vestmannaeyjum fór fram leikur ÍBV og ÍA. Fyrir leikinn voru Eyjamenn með sjö stig en Skagamenn sátu stigalausir á botni deildarinnar. Skagamenn voru því í erfiðri stöðu fyrir leikinn og ræddu knattspyrnuspekingar það fyrir leikinn að Skagamenn yrðu að sigra ætluðu þeir…Lesa meira

true

Naumt tap í stórleik umferðarinnar

ÍA tók á móti HK/Víkingi í stórleik 1. deildar kvenna í knattspyrnu á laugardag, en því var spáð fyrir tímabilið að bæði lið yrðu í toppbaráttu í deildinni í sumar. Þrátt fyrir að gestirnir hafi verið meira með boltann í upphafi leiks voru Skagakonur sprækari á upphafsmínútunum. Mátti engu muna að þær kæmust yfir strax…Lesa meira