Fréttir

true

Erlendur gestur á leik Víkings Ólafsvík

Menn lögðu misjafnlega mikið á sig til að verða viðstaddir þegar Víkingur í Ólafsvík tók á móti ÍBV síðastliðinn sunnudag í leik í Pepsideildinni. Af þeim 480 sem sóttu leikinn kom í það minnsta einn áhorfandi alla leið frá Skotlandi en hann heitir Marc Boal. Boal er mikill áhugamaður um íslenska knattspyrnu og gefur reglulega…Lesa meira

true

Orkustofnun telur ON hafa þríbrotið vatnalög

Orkustofnun hefur kallað eftir andmælum Orku náttúrunnar vegna meint brots á ákvæðum vatnalaga og umhverfisskaða í Andakílsá af völdum fyrirtækisins, þegar þúsundum rúmmetra af aur var hleypt úr uppistöðulóni Andakílsárvirkjunar í síðustu viku. Það er niðurstaða Orkustofnunar að Orka náttúrunnar hafi brotið þrjár greinar vatnalaga og þannig með ólögmætum hætti valdið tjóni á lífríki í…Lesa meira

true

Manuel mun ekki þjálfa Skallagrím áfram

Manuel Rodriguez mun ekki þjálfa kvennalið Skallagríms á næsta keppnistímabili. Manuel greinir sjálfur frá þessu á Facebook-síðu sinni. Þar segir hann að forsvarsmenn félagsins hafi greint frá ákvörðun sinni um að þeir hyggðust leita annað eftir þjálfara. Samningur hans við liðið yrði því ekki endurnýjaður. Manuel tók við þjálfun liðsins fyrir tveimur árum síðar, þegar…Lesa meira

true

Leikskólinn Vallarsel Stofnun ársins

Fyrir í þessum mánuði voru á Hilton Nordica í Reykjavík kynntar niðurstöður úr könnun SFR stéttarfélags yfir stofnanir ársins. Verðlaunin eru tvískipt, annars vegar eru veitt verðlaun fyrir Stofnun ársins en sú könnun nær yfir alla ríkisstarfsmenn og hins vegar er veitt verðlaun fyrir Stofnun ársins- borg og bær, þar sem könnunin nær aðeins yfir…Lesa meira

true

Á rafdrifnu flutningatæki um götu Borgarness

Jafnan þegar hlýna tekur í veðri á sumrin fara allskonar óvenjuleg farartæki að sjást á götum landsins. Árni Guðjónsson í Borgarnesi var á ferðinni á þessu kínverska rafdrifna flutningatæki þegar Þorleifur Geirsson ljósmyndari varð á vegi hans um helgina. Fínt að aka um á svona tæki þegar hitinn var um tuttugu gráðurnar.Lesa meira

true

Fundu sjálfa sig á forsíðunni

Bræðurnir Daníel Freyr og Alexander Örn Skjaldarsynir eru nemendur í 5. bekk Auðarskóla í Búðardal. Þeir eru þessa stundina staddir í skólaferðalagi á Akranesi ásamt samnemendum sínum. Meðal þeirra staða sem krakkarnir hafa heimsótt er Akranesviti. Í þeirri heimsókn ráku bræðurnir augun í Ferðablað Skessuhorns, Travel West Iceland 2017, sem liggur þar frammi. Það væri…Lesa meira

true

Skagakonur féllu úr í leik í bikarnum í gær

ÍA mætti Þrótti frá Reykjavík á Akranesvelli í gær í Borgunarbikar kvenna. Bæði lið leika í fyrstu deild; þar sem ÍA er með sex stig eftir tvo leiki og Þróttur þrjú. Leikurinn var jafn og spennandi fram á síðustu mínútu en það var Þróttur sem sigraði Skagakonur með þremur mörkum gegn tveimur. Það var strax…Lesa meira

true

Salsatónleikar í Stykkishólmi

Stórsveit Snæfellsness blés til salsatónleika í Tónlistarskóla Stykkishólms síðastliðinn sunnudag. Á dagskrá voru lög af ýmsum meiði. Allt frá framandi og frískandi tónlist en einnig gömul og kunnugleg lög. Leikin voru lög af fjölmörgum tónlistarstefnum, þar á meðal bæði salsa og jazz. Stjórnandi Stórsveitar Snæfellsness er Andreas Fossum en sérstakir gestir á tónleikunum voru þeir…Lesa meira

true

Lýsti lyklinum að heilsueflandi samfélagi

Í síðustu viku var haldinn fjölmennur íbúafundur í Borgarnesi þar sem skrifað var undir að Borgarbyggð verður þrettánda sveitarfélagið hér á landi til að gerast Heilsueflandi samfélag. Meðal frummælenda þar var Magnús Scheving frumkvöðull að átaki á heimsvísu sem nefnist Latibær. Hvatti hann íbúa sinnar gömlu heimabyggðar til að leggja línur sem allir geta farið…Lesa meira

true

Vonast eftir að ljúka framkvæmdum fyrir Akranesleikana

Í lok síðasta árs hófust framkvæmdir  á sundlaugarsvæði á Jaðarsbökkum. Þeim framkvæmdum mun ljúka innan tíðar, en að sögn Harðar Kára Jóhannessonar umsjónarmanns íþróttamannvirkja hjá Akraneskaupstað er stefnt að því að ljúka framkvæmdum fyrir Akranesleikana í sundi sem hefjast 2. júní næstkomandi. „Það er lítið eftir en mósaíkflísalögnin í pottana er tímafrekari en búist var…Lesa meira