
Vindmyllur og raflínur, baráttan um sveitirnar og hálsana
Haukur Þór Hauksson
Ef maður kynnir sér lítillega þróun í vindorkumálum t.d. á Norðurlöndum þá er þróunin sú að vindorkuverin eru að fara út á sjó og mikil andstaða er allsstaðar við því að fá vindorku í nærumhverfi sitt. Ástæðan er sjónmengun, hávaðamengun, ógn við fuglalíf og fleira. Sama á að nokkru leyti við um Holtavörðuheiðarlínu sem mun skerða ásýnd héraðsins, rýra gildi margra jarða og hafa nánast eingöngu neikvæð áhrif á héraðið okkar.
Við verðum að átta okkur á því að ef við viljum koma í veg fyrir að vindmyllugarðar og Holtavörðuheiðalínu rísi þá þurfum við að berjast. Skipulagsvald sveitarfélagsins nær skammt. Rammaáætlanir og eignarnám er á vegum ríkisns. Núverandi sveitarstjórn hefur ekki staðið í lappirnar á neinu leyti. Sveitarstjórn breytti aðalskipulagi á Grjóthálsi og gaf út framkvæmdaleyfi til að reisa tilraunamastur. Meirihluti sveitarstjórnar hefur skipað í raflínunefnd en raflínunefnd er sérstök nefnd sem ráðherra skipar til að undirbúa, kynna og afgreiða raflínuskipulag vegna framkvæmda í flutningskerfi raforku sem ná yfir tvö eða fleiri sveitarfélög. Nefndin afgreiðir einnig umsóknir um framkvæmdaleyfi. Skipunin felur í sér að skipulagsvald er fært frá viðkomandi sveitarfélögum yfir til nefndarinnar. Þar kom það! Skipulagsvaldið er þegar farið frá sveitarfélaginu.
Þegar ekki er barist þá tapar maður, ef það er barist þá er alltaf von. Ég hvet alla kjósendur í Borgarbyggð til að kjósa Miðflokkinn og gefa Framsókn frí. Við ætlum að berjast, berjast fyrir því að raflínan fari um Heiðarleið og að engar vindmyllur rísi í Borgarbyggð.
Haukur Þór Hauksson
Höf. er oddviti Miðflokksins í sameinuðu sveitarfélag Borgarbyggðar og Skorradalshrepps