
Vilt þú hafa athafnasvæði í bakgarðinum?
Valgerður Jóna Oddsdóttir
Við hjónin keyptum landskika í Hvalfirði og byggðum okkur hús, Glóru, þar sem við höfum búið síðan árið 2006. Val okkar á búsetu réðst af nálægð við ósnortna náttúru og þeim friði sem svæðinu fylgir. Útsýnið yfir Faxaflóa og inn Hvalfjörðinn hefur verið órjúfanlegur hluti af okkar daglega lífi og lífsgæðum.
Nú standa yfir breytingar á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar sem heimila landeiganda í Galtarlæk að breyta landnotkun undir 30 athafnalóðir. Samkvæmt áformum er gert ráð fyrir vörugeymslum, léttum iðnaði og þjónustusvæðum vegna hafnsækinnar starfsemi. Jafnframt er áætlað að reisa höfn og viðlegukant fyrir flutninga- og skemmtiferðaskip (sjá mál nr. 63/2025 í Skipulagsgátt).
Rekstur Grundartangahafnar og athafnasvæðisins á Grundartanga er á hendi Faxaflóahafna, sem sveitarfélagið á sjálft hlut í ásamt öðrum sveitarfélögum. Það lýsir því miklu stefnuleysi af hálfu sveitarstjórnar að vinna nú að breytingu á aðalskipulagi til að liðka fyrir nýrri stórskipahöfn og 30 athafnalóðum á landi Galtarlækjar þegar litið er til þess að á Grundartanga er þegar til staðar mikið ónýtt landrými, auk þess sem leyfi liggur fyrir til stækkunar á viðlegukanti þar, þegar og ef þörf krefur. Með þessu er Hvalfjarðarsveit ekki aðeins að ganga gegn þeirri stefnumörkun sem hefur verið í aðalskipulagi til langs tíma, heldur einnig að vinna gegn hagsmunum Faxaflóahafna og þar með hagsmunum samstarfssveitarfélaganna. Það er því bókstaflega engin þörf á þessari aðalskipulagsbreytingu og óskynsamlegt að taka upp aðalskipulagið nú til þess dreifa starfsemi sem rúmast vel innan Grundartangasvæðisins, víðar um sveitarfélagið.

Eins og sjá má á mynd hér að ofan, sést fyrirhugað athafnasvæði í Galtarlæk og íbúðarhúsið okkar Glóra er merkt með rauðum hring. Á myndinni sést mjög vel hversu nálægt athafnasvæðið er okkar íbúðarhúsi.
Þótt atvinnusköpun sé almennt jákvæð, er óhjákvæmilegt að spyrja hvaða áhrif slík starfsemi hefur á nærumhverfið. Ég hvet nýkjörna sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar, landeigendur og íbúa til að setja sig í okkar spor og íhuga eftirfarandi:
Nálægð og truflun: Mynduð þið telja ásættanlegt að fá athafnasvæði í einungis 100 metra fjarlægð frá heimili ykkar, með tilheyrandi hljóð-, ljós- og sjónmengun?
Óvissa um mannvirki: Áætlanir gera ráð fyrir allt að þriggja hæða byggingum en skýr svör vantar um hve nálægt þessar byggingar verða okkar húsi og hversu háar byggingarnar verða. Hvernig verðum við varin fyrir þeirri truflun sem af þeim hlýst?
Náttúra og dýralíf: Fyrirhuguð stórskipahöfn mun hafa í för með sér loftmengun og hávaða sem hefur áhrif á alla í firðinum, ekki síst á dýralífið. Við fjöruna okkar verpa æðarkollur sem munu óhjákvæmilega verða fyrir verulegri truflun.
Skortur á samráði: Við höfum þegar sent inn athugasemdir í Skipulagsgáttina en spyrjum okkur hvort raunverulegt tillit verði tekið til sjónarmiða íbúa. Er samráð við hagsmunaaðila í nærumhverfi fullnægjandi?
Ef þessi áform ganga eftir er um algjöran forsendubrest að ræða fyrir búsetu okkar í sveitinni. Við hvetjum hlutaðeiganda til að endurskoða þessa vegferð.
Valgerður Jóna Oddsdóttir, Glóru í Hvalfjarðarsveit