Við byggjum Vesturland til framtíðar

María Rut Kristinsdóttir

Vesturland er landshluti á mikilli siglingu. Íbúum hefur fjölgað um 29% frá árinu 1998 og í dag búa um 18 þúsund manns í átta sveitarfélögum á svæðinu. Hér er öflugt atvinnulíf, fjölbreytt samfélag og mikil tækifæri til frekari uppbyggingar. En vöxtur samfélagsins kallar á eitt mikilvægt verkefni. Innviðirnir þurfa að fylgja fólkinu.

Þetta var eitt af meginviðfangsefnum mínum þegar ég ávarpaði aðalfund Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi í gær. Þar ræddi ég stöðu samgöngu- og innviðamála, áherslur ríkisstjórnarinnar og þær áskoranir og tækifæri sem fram undan eru á Vesturlandi.

Við eigum að horfa raunsætt á stöðuna. Þegar ríkisstjórnin tók við var fjárfesting í samgönguinnviðum hér á landi ein sú minnsta innan OECD og innan við 40% vegakerfisins var metið í góðu ástandi. Á sama tíma hafði engin samgönguáætlun verið samþykkt frá árinu 2020.

Breyttir tímar

Þetta hefur nú breyst. Ný samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040 hefur verið samþykkt, ásamt fimm ára aðgerðaáætlun. Fjárfesting í samgönguinnviðum verður aukin og sérstök áhersla lögð á viðhald vegakerfisins. Þremur milljörðum var strax bætt við í viðhald og gert er ráð fyrir um 17,5 milljörðum króna til viðhalds árið 2026 og um 17,6 milljörðum árið 2027.

Þetta skiptir Vesturland miklu máli. Hér eru um 1.845 kílómetrar af vegum, eða um 14% af vegakerfi landsins. Sveitarfélögin hafa bent sérstaklega á slæmt ástand Snæfellsnesvegar og Vestfjarðavegar í Miðdölum og Saurbæ. Aukið álag vegna ferðaþjónustu, flutninga og atvinnustarfsemi gerir kröfurnar enn meiri. Viðhald er því ekki aukaatriði. Það er fjárfesting í öryggi, atvinnulífi og byggðafestu.

Sterk framtíðarsýn

En við þurfum líka að horfa lengra. Á Vesturlandi bíða stór verkefni. Skógarstrandarvegur fær fjárveitingu samkvæmt nýrri samgönguáætlun en við þurfum jafnframt að halda áfram undirbúningi stærri verkefna. Þar skipta framkvæmdir við þjóðveg 1, tvöföldun Hvalfjarðarganga, 2+1 vegur að Borgarnesi, Kjalarnes og Sundabraut miklu máli fyrir framtíð landshlutans. Samgöngur snúast nefnilega ekki bara um það að komast frá einum stað til annars. Þær snúast um að tengja fólk við vinnu, nám, þjónustu og tækifæri. Sama gildir um orkuna og flutning á orku.

Vesturland hefur mikla möguleika til atvinnuuppbyggingar og nýsköpunar. Grundartangi er eitt mikilvægasta iðnaðarsvæði landsins og á Akranesi eru tækifæri til frekari uppbyggingar. En það er ekki hægt að byggja upp atvinnulíf ef raforkan er ekki til staðar. Þess vegna eru verkefni eins og Holtavörðuheiðarlína, styrking raforkukerfisins á Snæfellsnesi og efling svæðislínunnar á Akranesi mikilvæg. Raforka er ekki bara orkumál. Hún er atvinnu- og byggðamál.

Við þurfum einnig að tryggja góð fjarskipti, öflugar almenningssamgöngur og trausta vetrarþjónustu. Þetta eru allt hlutar af sama púslinu. Við eigum að tryggja fólki raunverulegt val um hvar það vill búa og fyrirtækjum möguleika til að vaxa. Það var líka skýr skilaboð frá sveitarfélögunum á aðalfundinum. Þau vilja samstarf við ríkið. Þau vilja sjá framkvæmdir verða að veruleika og þau vilja taka þátt í að móta þær áherslur sem mestu máli skipta fyrir sín samfélög. Ég tel að þar liggi mikilvægur styrkur okkar. Því við erum öll í sama liði þegar kemur að því að gæta hagsmuna svæðisins.

Nærsamfélagið veit best

Ríkið hefur ábyrgð á stórum hluta innviðauppbyggingarinnar, en sveitarfélögin þekkja samfélögin sín best. Þau vita hvar íbúafjölgunin er, hvar atvinnulífið er að vaxa og hvar innviðirnir eru að verða flöskuháls. Við eigum því ekki að byggja innviði fyrir Ísland eins og það var. Við eigum að byggja þá fyrir Ísland eins og við viljum að það verði. Og Vesturland á að vera stór hluti af þeirri framtíð. Þetta er landshluti sem hefur vaxið, sem vill vaxa áfram og sem hefur alla burði til þess. Verkefni okkar er að tryggja að innviðirnir standi undir þeim metnaði.

 

María Rut Kristinsdóttir

Höf. er alþingismaður Viðreisnar í NV kjördæmi