VG í sókn – baráttusætið í augsýn

Bjarni Jónsson

„Hvers vegna fara nú allir á Alþingi að tala um landsbyggðarmál svona rétt fyrir kosningar og telja svo núna upp allt sem þarf að gera,“ spurði glöggur 16 ára bróðursonur minn. Þessi frændi minn fær ekki að kjósa í þessum kosningum en fylgist þó betur með stjórnmálaumræðunni en margir sem hafa náð kosningaaldri. Hann bætti síðan við: „Hvers vegna er þá ekki búið að gera neitt af þessu á kjörtímabilinu? Eru byggðamál eitthvað sem gleymdist að tala um á Alþingi nema rétt fyrir kosningar og svo búið?“

Ég gat ekki annað sagt en að ég væri sammála þessum unga frænda mínum. Ég benti honum þó að Vinstri græn hefðu að vísu ekki verið í stjórn á síðasta kjörtímabili – og það dugi lítt að tala í þingsal þar sem valdið til framkvæmda liggur hjá ráðherrum og ríkisstjórn að miklu leyti.

VG hefur frá upphafi beitt sér mjög í byggðamálum og átt sterka landsbyggðarþingmenn. Baráttumálin er skýr:  Vegirnir, einbreiðu brýrnar, heilbrigðismálin, menntamálin, náttúrvernd, atvinnumálin, kjör aldraðra á landsbyggðinni, jöfnun lífskjara óháð búsetu. Þetta eru mín baráttu mál eins og fólk þekkir.

 

Vinsæl og öflugur leiðtogi

Formaður flokksins, Katrín Jakobsdóttir, nýtur virðingar og trausts langt út fyrir raðir flokksfélaga VG. Sterk staða Katrínar kom glögglega í ljós við umræður manna meðal fyrir forsetakosningarnar í sumar þar sem fjöldi fólks skoraði á hana í framboð. Ég held að það megi fullyrða að hún sé sá stjórnmálaforingi íslenskur sem flestir landsmenn treysta og vilja sjá sem forsætisráðherra ef miðað er við skoðanakannanir.

Allt fellur þetta að sama ósi. Vinstrihreyfingin grænt framboð er í kjöraðstöðu til þess að verða leiðandi aðili í næstu ríkisstjórn. Hagsmunir hinna dreifðu byggða er því eitthvað sem við höfum ávallt lagt áherslu á en stundum, því miður, fyrir daufum eyrum.  Það eru jú verkin sem tala. Forystufólk okkar nýtur einnig trausts og þjóðin vill sjá það við stjórnvölinn í landsmálum. Við þurfum félagshyggjustjórn sem er aðeins möguleg með VG sem forystuafl.

 

Baráttusætið í augsýn

Við í VG í þessu kjördæmi eigum góða möguleika  á tveimur alþingismönnum. Ég skipa baráttusætið og hef verið félagi í VG frá stofnun, í forystu á vettvangi sveitarstjórna og landshlutasamtaka, farið víða um og þekki vel til mála. Kjördæmið þarf á öflugum talsmanni að halda sem þekkir vel aðstæður. Með góðum stuðningi kjósenda er baráttusætið í augsýn.

 

Bjarni Jónsson.

Höf. skipar 2. sætið á lista VG í Norðvesturkjördæmi.