Vertu til er vorið kallar á þig

Andrea Ýr Arnarsdóttir

Vorinu fylgir ákveðin eftirvænting. Í ár er það ekki aðeins vegna hækkandi sólar og hlýrra daga, heldur einnig vegna þeirrar lýðræðislegu hátíðar sem fram undan er þann 16. maí n.k. þegar sveitarstjórnarkosningar fara fram.

Tæp fjögur ár eru liðin síðan ég tók við hlutverki oddvita sveitarstjórnar í Hvalfjarðarsveit. Á þessum tíma hef ég öðlast dýrmæta reynslu, kynnst fjölda fólks og fengið einstakt tækifæri til að vinna að málefnum sveitarfélagsins sem ég ann svo mjög. Starfið hefur verið krefjandi á köflum, enda fátt í lífinu sem ekki reynir á mann að einhverju leyti, ekki síst þegar ráðist er í ný verkefni. Fyrst og fremst er ég þó þakklát fyrir þennan tíma. Eftir vandlega ígrundun hef ég þó ákveðið að láta staðar numið í sveitarstjórnarmálum við lok þessa kjörtímabils, að minnsta kosti í bili. Ég gef því ekki kost á mér til áframhaldandi setu í sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar í næstu sveitarstjórnarkosningum.

Framtíðin er björt í Hvalfjarðarsveit og ég vona innilega að íbúar sveitarfélagsins sjái þau tækifæri sem fram undan eru og láti til sín taka í komandi sveitarstjórnarkosningum. Í því samhengi er afar ánægjulegt að sjá Samband íslenskra sveitarfélaga standa nú fyrir landsátaki sem hefur það að markmiði að efla þátttöku og styrkja lýðræðið á sveitarstjórnarstiginu. Ég vil taka undir þá hvatningu og hvet íbúa Hvalfjarðarsveitar til að taka virkan þátt í sveitarstjórnarmálum, hvort sem það er með því að gefa kost á sér í sveitarstjórn, starfa í nefndum eða ráðum eða einfaldlega með því að mæta á kjörstað. Allt skiptir þetta máli.

Gott samfélag verður ekki til af sjálfu sér, það byggist upp dag frá degi af fólki sem er tilbúið að leggja sitt af mörkum. Ég vil færa öllum þeim sem hafa tekið þátt í sveitarstjórnarstarfi, sem og þeim sem hyggjast bjóða sig fram, mínar bestu þakkir. Það skiptir máli að fólk sé tilbúið til að leggja hönd á plóg.

 

Andrea Ýr Arnarsdóttir

Höfundur er oddviti sveitarstjórnar í Hvalfjarðarsveit