
Velkomin í Dalina um helgina!
Lilja Björg Ágústsdóttir
Um helgina verða Dalirnir iðandi af lífi þegar haustfagnaður Félags sauðfjárbænda fer fram í sveitarfélaginu. Af því tilefni vil ég fyrir hönd íbúa og sveitarstjórnar Dalabyggðar bjóða gesti nær og fjær hjartanlega velkomna í Dalina til að njóta samveru, menningar og þeirra fjölbreyttu viðburða sem boðið verður upp á.
Dagskráin er glæsileg og hefur eitthvað að bjóða fyrir alla aldurshópa. Gestir geta meðal annars sótt hrútasýningu, kynnt sér fjölbreyttan matar- og handverksmarkað og fylgst með Íslandsmeistaramótinu í rúningi þar sem fremstu rúningsmenn landsins etja kappi.
Hápunktur helgarinnar verður svo án efa hin víðsfræga sviðaveisla á laugardagskvöldið sem hefur um árabil verið einn vinsælasti viðburður hátíðarinnar. Áhugi hefur verið gríðarlegur og þegar hafa yfir 300 miðar verið seldir.
Haustfagnaðurinn er einstakt tækifæri til að upplifa sveitalífið, hitta fólk, njóta góðrar stemningar og kynnast því sem Dalabyggð hefur upp á að bjóða. Við Dalamenn erum stolt af því að taka á móti gestum og hlökkum til að sjá sem flest um helgina.
Allir eru hjartanlega velkomnir í Dalina. Komið og skemmtið ykkur með okkur!
Lilja Björg Ágústsdóttir, sveitarstjóri Dalabyggðar
Dagskrá:
Föstudagurinn 23. október
18:00 Hrútasýning sunnan varnargirðingar á Bæ í Miðdölum. Þar mæta glæsilegustu lambhrútar haustsins til sýningar og samanburðar. Jafnframt verður tækifæri til að sýna og sjá skrautlegustu gimbrarnar.
Laugardagurinn 24. október
10:00-11:00 Kaffispjall með sveitarstjórn. Sveitarstjórn og sveitarstjóri bjóða í morgunkaffi. Allir geta komið, fengið sér kaffi og með því og spjallað um þau mál sem á þeim brenna.
11:00-16:00 Matar- og handverksmarkaður í Reiðhöllinni í Búðardal en þar verður hægt að komast í návígi við allt það sem Dalirnir hafa upp á að bjóða þegar kemur að mat og handverki. Í reiðhöllinni verður einnig veitingasala auk þess sem önnur fyrirtæki í landbúnaði verða á staðnum og kynna sínar vörur og þjónustu.
11:00 Hrútasýning norðan varnargirðingar í Reiðhöllinni í Búðardal. Þar verður seinni hluti sýningarinnar með efnilegustu hrútunum í Dalahólfi nyrðra. Jafnframt verður tækifæri til að sýna og sjá skrautlegustu gimbrarnar.
13:00 Íslandsmeistaramótið í rúning verður haldið og spennandi að sjá hver hreppir titilinn í ár. Sigurbjörn Árni Arngrímsson lýsir keppninni.
19:30 Sviðaveisla að Laugum í Sælingsdal: Sígilt hlaðborð sviða með tilheyrandi meðlæti, hjúin Regína Ósk og Svenni Þór verða veislustjórar kvöldsins og hljómsveitin Sunnan 6 spilar á balli í kjölfar veislunnar. Mögulegt verður að kaupa miða inn á ballið í dyrunum.
Sunnudagurinn 25. október
14:00 – 15:00 Guðþjónusta í Hjarðarholtskirkju. Boðið verður upp á guðþjónustu í Hjarðarholtskirkju og eru allir hvattir til að mæta. *Lát ekki hið illa sigra þig en sigra þú illt með góðu.