Velferð og mannréttindi í forgrunni á Akranesi – eða er það ekki? Fyrri hluti

Aníta Eir Einarsdóttir

Fyrir kosningarnar 2022 gafst mér tækifæri til þess að blanda mér í bæjarmálin, og að taka sæti á lista var á þeim tíma stór ákvörðun. En frá því að ég ákvað að taka slaginn hef ég aldrei séð eftir því – og það sem meira er, mig langar að gera svo miklu meira. Á vettvangi farsældar, frá vöggu til grafar.

Á kjörtímabilinu hef ég átt sæti í Velferðar- og mannréttindaráði og það hefur gefið mér nýja og breiðari sýn á þarfir samfélagsins. Við vorum oft sammála – ekki alltaf, en oft. Og er það ekki einmitt þannig sem þetta á að vera?

Hér á Akranesi búum við yfir öflugu samfélagi þar sem velferð og mannréttindi ættu að vera í forgrunni allrar stefnumótunar. Á síðustu árum hefur margt áunnist, en verkefnin fram undan eru ekki síður mikilvæg. Það er lykilatriði að við höldum áfram að byggja upp þjónustu sem tekur mið af þörfum allra íbúa – með virðingu, jöfnuð og mannúð að leiðarljósi.

Sem hjúkrunarfræðingur á heilsugæslunni sé ég einnig skýr tækifæri til að bæta samvinnu milli kerfa. Við þurfum að opna dyrnar betur beggja vegna og vinna markvisst saman.

Mig langar að staldra við nokkur verkefni sem hafa verið mér ofarlega í huga á kjörtímabilinu.

Fjöliðjan er verndaður vinnustaður þar sem fólki með skerta starfsgetu gefst tækifæri til þátttöku og virkni í samfélaginu. Vinnustaður sem við eigum svo sannarlega að vera stolt af. Á síðustu árum hefur starfsemin tekist á við áskoranir, meðal annars hvað varðar húsnæði og stækkandi hóp starfsfólks með ólíkar þarfir. Stjórnendur hafa sýnt mikla fagmennsku og metnað í að leita lausna og efla starfsumhverfið – en við megum ekki staðna. Við þurfum að auka fjölbreytni í störfum og efla stuðning við atvinnuþátttöku fatlaðs fólks. Fjölbreytni á vinnumarkaði er styrkur sem skilar sér til samfélagsins alls.

Þá eru það búsetukjarnarnir. Á kjörtímabilinu 2018–2022 kom Beykiskógar 17 inn, en þar á undan hafði ekki verið tekinn í notkun nýr kjarni í um tuttugu ár. Því voru miklar væntingar bundnar við nýtt úrræði við Skógarlund 42. Því miður hefur sú vegferð reynst þyngri en vonir stóðu til og verkefnið tafist. Það er sárt að horfa upp á slíkt, sérstaklega þegar þörfin er augljós og fer vaxandi. En við verðum að læra af reynslunni og halda áfram. Búsetuúrræði skipta sköpum fyrir sjálfstæði, öryggi og lífsgæði fólks – og eiga því að vera í forgangi.

Sama má segja um samfélagsmiðstöð sem hefur verið töluvert rædd, en ekki fengið þann kraft sem ég hefði viljað sjá á þessu kjörtímabili. Ég er þó sannfærð um að hennar tími muni koma – og að hún eigi eftir að verða mikilvægur hluti af samfélaginu okkar.

Þetta eru verkefni sem snerta líf fólks beint – sjálfstæði, öryggi og lífsgæði.

Og kannski er spurningin sem situr eftir einföld:

Erum við að gera nóg – eða vitum við innst inni að við getum gert betur?

 

Aníta Eir Einarsdóttir

Höf. skipar 5. sæti á lista Framsóknar og frjálsra á Akranesi.