
Velferð og mannréttindi á Akranesi – hvert viljum við fara? Seinni hluti
Aníta Eir Einarsdóttir
Í síðustu viku fór ég yfir nokkur af þeim verkefnum sem hafa verið mér ofarlega í huga í starfi mínu í Velferðar- og mannréttindaráði. Verkefni sem sýna að margt hefur áunnist – en líka að við stöndum frammi fyrir skýrum áskorunum.
Ein þeirra snýr að ungu fólki með heilabilun. Þetta er hópur sem á ekki heima á hefðbundnum öldrunar- og hjúkrunarheimilum, en hefur þó takmörkuð önnur úrræði. Málefnið hefur verið til umræðu og við höfum hlustað á aðstandendur sem lýsa bæði áhyggjum og þörf fyrir breytingar. Hér þurfum við að stíga skref fram á við og þróa úrræði sem styðja við sjálfstæði og lífsgæði – og veita aðstandendum nauðsynlega hvíld.
Þá er það farsæld barna. Akraneskaupstaður var fyrsta sveitarfélagið til að ljúka innleiðingu farsældarlaganna, sem snúa að samþættingu þjónustu í þágu barna. Það er stór áfangi og ber vott um öflugt starf. En þó innleiðingu sé lokið er verkefnið langt frá því að vera búið. Þetta er lifandi kerfi sem þarf stöðugt að þróa áfram – með það að markmiði að grípa börn snemma og styðja fjölskyldur á réttum tíma.
Skammtímavistun fyrir börn er annað verkefni sem ég hef lagt mikla áherslu á. Fyrir fjölskyldur sem þurfa stuðning og hvíld er slíkt úrræði ekki munaður – heldur nauðsyn. Við höfum lengi leitað leiða til að koma slíku úrræði á fót á Akranesi. Nú hefur opnast mikilvægt tækifæri með samstarfi sveitarfélaga á Vesturlandi og Þroskahjálpar um rekstur í Holti í Borgarbyggð. Það er jákvætt og mikilvægt fyrsta skref. Það er þó áfram markmiðið að byggja upp öflugt og aðgengilegt úrræði nær okkar eigin samfélagi, það er því gaman að segja frá því að þetta góða tækifæri og samstarf leiddi til þess að markviss umræða er hafin um skammtímavistun á Akranesi.
Í allri þessari umræðu megum við ekki gleyma einu því mikilvægasta – starfsfólkinu. Fólkinu sem stendur vaktina dag eftir dag, oft við krefjandi aðstæður, en með fagmennsku og seiglu að leiðarljósi. Það á skilið þakklæti, virðingu og ekki síst að við búum því skilyrði sem gera því kleift að sinna starfi sínu vel.
Verkefnin eru mörg og áskoranirnar raunverulegar – en tækifærin eru líka til staðar. Það sem skiptir máli er hvernig við nýtum þau. Með skýrri sýn, aukinni samvinnu og metnaði getum við haldið áfram að byggja upp samfélag þar sem velferð og mannréttindi eru ekki bara orð á blaði – heldur lifandi raunveruleiki.
Þar liggur hinn raunverulegi mælikvarði.
Aníta Eir Einarsdóttir
Höf. skipar 5. sæti á lista Framsóknar og frjálsra á Akranesi.