Velferð í forgrunni í Hvalfjarðarsveit

Guðrún Sigríður Gísladóttir

Framtíðarsýn okkar hjá A-listanum Samhentri sveit er að Hvalfjarðarsveit verði samfélag þar sem velferð íbúa, jöfn tækifæri og góð þjónusta eru ávallt í forgrunni og leiðarljós í allri starfsemi sveitarfélagsins.

Til að byggja upp traust velferðarsamfélag er mikilvægt að horfa til framtíðar og skapa umgjörð sem styður vel við einstaklinga og fjölskyldur, á öllum aldursskeiðum. Við leggjum því ríka áherslu á áframhaldandi uppbyggingu innviða, meðal annars með því að ljúka byggingu leikskóla í Melahverfi og undirbúa leikskólabyggingu í Krosslandi.

Öflugir leik- og grunnskólar eru ein af mikilvægustu stoðum samfélagsins og við viljum stuðla að fyrirmyndar skólastarfi með góðri stoðþjónustu, þar sem vellíðan og jöfn tækifæri barna eru í forgrunni. Innleiðing á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna er á lokametrunum og mikilvægt að vinna að því að öðlast viðurkenningu hjá UNICEF sem barnvænt sveitarfélag og viðhalda þeirri stöðu.

A-listinn Samhent sveit vill stuðla að því að móta heildstæða lýðheilsustefnu fyrir íbúa á öllum aldursskeiðum, í samstarfi við öldungaráð, ungmennaráð og notendaráð um málefni fatlaðs fólks. Í þeirri vinnu verður áhersla lögð á hreyfingu, félagslega þátttöku, andlega vellíðan og markvissar forvarnir eins og til dæmis ,,Tengjumst í leik“ (e. Invest in Play).  Við viljum tryggja að einstaklingar sem þurfa á stuðningi að halda fái viðeigandi þjónustu og tækifæri til þátttöku í samfélaginu.  Vinna þarf áfram að verkefnum sem stuðla að heilsueflingu og vellíðan svo sem ,,Gott að eldast‘‘ og þróa í  samstarfi við öldungaráð heilsupassa fyrir 60 og eldri.

Heiðarborg á að verða lifandi hjarta samfélagsins og mikilvægur samkomustaður fyrir íbúa á öllum aldri. Þar sjáum við fyrir okkur öflugan vettvang fyrir félagsstarf, menningu, íþróttir og samveru. Þannig styrkjast tengsl kynslóðanna. Í samfélagsmiðstöðinni viljum við byggja upp góða aðstöðu fyrir félagsstarf eldra fólks í samræmi við þarfir og þróun félagsstarfsins.  Með opnun félagmiðstöðvar fyrir mið- og unglingastig í varanlegri aðstöðu, viljum við nýta tækifærið til að efla starfið með því að auka opnunartíma hennar.

Hvalfjarðarsveit á að vera eftirsóttur valkostur til búsetu fyrir ungt fólk og fjölskyldur. Þess vegna er mikilvægt að vinna að réttlátari flokkun sveitarfélagsins í hlutdeildarlánakerfi HMS við fyrstu íbúðarkaup. Þar er sveitarfélagið núna flokkað í lægsta flokk.  Einnig er mikilvægt að greina og meta þörf fyrir þjónustuíbúðir fyrir einstaklinga með fötlun.

Við viljum að Hvalfjarðarsveit sé eftirsóknarverður vinnustaður þar sem metnaðarfullt starfsfólk fær tækifæri til að vaxa og þróast í góðu starfsumhverfi. Sterkur mannauður er ein mikilvægasta auðlind sveitarfélagsins og forsenda þess að hægt sé að veita faglega og góða þjónustu við íbúa.

A- listinn Samhent sveit ætlar að standa vörð um hagsmuni og rekstur Hvalfjarðarsveitar, af festu og ábyrgð og þannig tryggja sterkan grunn fyrir öfluga velferðarþjónustu til framtíðar. Þannig viljum við halda áfram að gera gott samfélag enn betra — samfélag þar sem gott er að búa, ala upp börn, starfa og eldast.

Við óskum eftir þínum stuðningi og hvetjum þig til að setja X við A- lista Samhentar sveitar, þann 16. maí 2026.

 

Guðrún Sigríður Gísladóttir

Höf. skipar 2. sæti á A-lista Samhentrar sveitar í Hvalfjarðarsveit