Var harðákveðin í að læra ekki hjúkrunarfræði

Helga Guðrún Jómundsdóttir

Í ár eru 100 ár liðin frá stofnun Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Af því tilefni stemdir stjórn deildar hjúkrunarfræðinga á Akranesi og nágrenni fyrir því á afmælisárinu að birta greinar eftir hjúkrunarfræðinga í Skessuhorni. Greinarnar eru birtar jafnt og þétt yfir afmælisárið og í þeim munu lesendum fá smá innsýn í þau fjölbreyttu störf og áskoranir sem hjúkrunarfræðingar fást við. Að þessu sinni kynnir sig til leiks Helga Guðrún Jómundsdóttir nemandi í hjúkrunarfræði við HÍ.

“Ég heiti Helga Guðrún Jómundsdóttir og er 21 árs. Ég bý á Heggsstöðum í Andakílshreppi, foreldrar mínir heita Margrét Friðjónsdóttir og Jómundur Geir Hjörleifsson. Ég á eina systur sem heitir Björk og hún á eina þriggja ára dóttur sem heitir Dagný Freyja. Einnig á ég tvær yndislegar ömmur sem heita Guðrún Jómundsdóttir og Björk Halldórsdóttir. Ég stunda nám í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands. Á meðan ég stunda nám bý ég í Reykjavík en ég er svo heimakær að ég kem heim í sveitina við hvert tækifæri sem gefst. Ég er mikil sveitastelpa og hef áhuga á allri útivist, elska að vera með fjölskyldu og vinum, hlusta á tónlist og svo spila ég líka á píanó. Ég var í Grunnskóla Borgarfjarðar, lauk stúdentsprófi frá Menntaskóla Borgarfjarðar árið 2016 og árið 2017 hóf ég nám í Hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands.

Var hrædd við nálar og ábyrgðina

Ég var harðákveðin í því að ég ætlaði aldrei í hjúkrunarfræði því ég var svo hrædd við nálar og ábyrgðina sem fylgdi starfinu. En sem betur fer tók ég U-beygju í þeirri hugsun og skráði mig í námið og sé ekki eftir því. Ég valdi það útfrá því að mér hefur alla tíð fundist gott að vera í nærveru fólks, geta aðstoðað og gefið af mér. Ég hef unnið í nokkur ár á hjúkrunarheimilinu Brákarhlíð og þar fann ég hvað mér fannst gott að vinna við umönnunarstörf. Ég valdi námið einnig út frá því að það er svo góður grunnur fyrir margt annað, fjölbreytt nám sem býður uppá marga möguleika. Ég kynntist starfinu á Landspítalanum í vetur í verknámi og svo vann ég þar aðeins samhliða námi. Þar sá ég hvað starfið er fjölbreytt og áhugavert og þar er enginn dagur eins. Að geta gefið af sér í vinnunni er svo góð tilfinning og mér finnst ég vera að sinna mikilvægu starfi. Starfið getur verið mjög krefjandi því aðstæður fólks geta verið mjög erfiðar. Ábyrgð starfsfólks er mikil og álagið einnig. Starfið er krefjandi en jafnframt mjög gefandi.

Menntun sem býður upp á mikla möguleika

Menntunin hefur uppá margt að bjóða fyrir mig. Hjúkrunarfræði er góður grunnur að svo mörgu öðru. Það opnast margar dyr að námi loknu, ég get bætt við mig mastersgráðu eða farið í diplómunám í ótal mörgu sem er mjög spennandi. Ég hlakka til að finna út hvað heillar mig mest. Menntunin gefur mér þá möguleika að geta unnið hvar á landi sem er og einnig víða erlendis. Alls staðar er þörf á hjúkrunarfræðingum. Mér finnst þetta mjög flottur titill, að geta kallað sig heilbrigðisstarfsmann. Það segir manni hvað námið og starfið er mikilvægt. Hjúkrunarfræði er menntun og reynsla sem nýtist vel í samfélaginu. Kostur þess að vera hjúkrunarfræðingur er að sinna mikilvægu starfi og að geta gert góðverk á hverjum degi þegar þú mætir til vinnu. Atvinnutækifærin eru ótalmörg, spennandi og auðvelt fyrir hjúkrunarfræðinga að fá vinnu.

Lifandi og skemmtilegt nám

Að mínu mati er þetta mjög gott nám og sérstaklega er ég ánægð með verklegu kennsluna. Við öðlumst góða færni í verklegri kennslu sem gerir okkur örugg fyrir verknám og að fara út á vinnustað. Við æfum okkur hvert á öðru sem er mjög skemmtilegt. Þetta er lifandi og skemmtilegt nám því það er blandað af verklegri og bóklegri kennslu. Strax á fyrsta ári förum við í verknám og lærum klínísk atriði, eins og að sprauta og setja upp æðaleggi. Á fyrri önninni á öðru ári fórum við í verknám á Landspítalanum. Það var mjög gaman að fá tækifæri til að bæði nýta og framkvæma þá þekkingu og færni sem við höfðum öðlast í verklegri kennslu. Ásamt því að fá að sinna störfum hjúkrunarfræðinga í verknáminu fengum við líka að fylgjast með aðgerðum og rannsóknum, sem var mikil upplifun.

Eignast dýrmæta vini í náminu

Nú á vorönninni er námið að mestu leyti bara bóklegt. Við erum í mjög áhugaverðum áföngum eins og skurðlækningafræði, lyfjafræði, sálfræði og næringarfræði. Hefðbundinn skóladagur hjá mér núna er að mæta í skólann klukkan 8:20 og sitja á fyrirlestrum til kl. 11:30. Þá er skólinn búinn og fer ég oftast niður í lærdómsaðstöðuna í skólanum og nota tímann til að læra. Nýlega var opnuð lærdómsaðstaða fyrir okkur í Eirbergi en þar er einnig eldhússaðstaða svo umhverfið er bæði mjög huggulegt og heimilislegt og þar er gott að læra. Út frá verklegri kennslu kynnist maður samnemendunum sínum enn betur. Ég hef því eignast fullt af dýrmætum vinum í náminu sem er ómetanlegt. Eftir 10-30 ár sé ég fyrir mér að ég verði búin að mennta mig enn meira og öðlast sérþekkingu á einhverju sviði sem ég heillast af.

Margt sem ég hefði getað hugsað mér

Ef ég hefði ekki farið í hjúkrun er margt sem ég hefði getað hugsað mér, t.d. sjúkraþjálfun, sálfræði, næringarfræði eða að starfa sem námsráðgjafi. Það er svo mikið námsframboð og margt sem mér finnst áhugavert. Það er ekki skrýtið að fólki finnist erfitt að finna sér háskólanám þegar það er svona margt spennandi í boði, sem er frábært.

Þessi tvö fyrstu ár í náminu hafa verið krefjandi, lærdómsrík og skemmtileg. Félagslífið í skólanum er mikið og alltaf eitthvað skemmtilegt í gangi. Ég er ánægð með valið mitt á hjúkrunarfræði og mæli með því námi því það eru ótal margir möguleikar sem fylgja því.

Helga Guðrún Jómundsdóttir