
Uppbygging íþróttamannvirkja í Borgarbyggð – íþróttahúsið næst
Birgir H Andrésson
Í Borgarbyggð er að finna fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf sem hentar öllum aldurshópum. Borgarbyggð getur með stolti státað sig af ýmiss konar frábærri aðstöðu sem hefur verið byggð upp á undanförnum áratugum með eða án aðkomu sveitarfélagsins.
Þar má nefna meðal annars frábæra aðstöðu hjá hestamönnum, þar sem haldin hafa verið stórmót á borð við Íslandsmót og fjórðungsmót og er svæðið allt til fyrirmyndar.
Í Borgarbyggð eru þrír glæsilegir golfvellir þar sem kylfingar geta stundað sína íþrótt við góða aðstöðu. Golfvellir skapa töluverðar tekjur fyrir bæjarfélagið. Margir hópar, stórir sem smáir, leggja leið sína í Borgarbyggð til að stunda golf og nýta oftar en ekki aðra þjónustu og verslun á svæðinu. Þess má geta að Golfklúbbur Borgarness er að byggja þessa dagana móttöku- og starfsaðstöðu fyrir starfsemi klúbbsins og er sú vinna unnin að miklu leyti af kraftmiklum sjálfboðaliðum undir forystu framkvæmdarstjóra klúbbsins, Bjarka Péturssonar.
Sjálfstæðisflokkurinn vill styðja við starfsemi Golfklúbbs Borgarness og hefja undirbúning að uppbyggingu nýs klúbbhúss á svæðinu.
Sundlaugarnar eru okkur til sóma og eru vel sóttar. Við hjá Sjálfstæðisflokknum viljum endurskoða opnunartíma sundlauga, opna sundlaugina á Kleppjárnsreykjum fyrir almenning yfir vetrartímann og lengja opnunartíma um helgar í Borgarnesi í samráði við íbúa. Jafnframt viljum við ráðast í nauðsynlegt viðhald íþróttamannvirkja, þar á meðal endurnýjun á gólfi íþróttahússins á Kleppjárnsreykjum, sem er komið til ára sinna.
Grasvöllurinn okkar er einn sá fegursti á landinu og hefur oft fengið hrós fyrir. Fjölnota knatthúsið, sem hefur verið í byggingu á kjörtímabilinu, er langt komið og mun, þegar það verður tilbúið, gjörbreyta æfingaaðstöðu fyrir fótbolta, frjálsar íþróttir og fleiri greinar.
Íþróttahúsið næst
Undirbúningur að nýju parketíþróttahúsi hófst fyrir tveimur kjörtímabilum. Fyrir síðustu kosningar hafði sveitarfélagið keypt eignir til að rýma fyrir fyrirhugaðri byggingu. Vinnuhópur á vegum sveitarfélagsins vann að þarfagreiningu ásamt íþróttafélögum innan UMSB og deildum Skallagríms. Þar kom skýrt fram að íþróttahúsið, eins og það er í dag, annar ekki eftirspurninni og er löngu sprungið. Eftirspurn eftir tímum er langt umfram framboð og aðstaða fyrir starfsfólk, gesti og iðkendur er úrelt. Aðstaðan telst ófullnægjandi fyrir þær greinar sem þar eru stundaðar, hamlar framþróun iðkenda og takmarkar verulega möguleika á að bæta við nýjum greinum.
Íþróttahúsið var næst í röðinni og undirbúningur í fullum gangi, en núverandi meirihluti ákvað að setja verkefnið til hliðar og færa það aftar í forgangsröðuninni.
Með nýju íþróttahúsi tryggjum við ekki aðeins betri aðstöðu, heldur líka öruggt og heilsusamlegt starfsumhverfi fyrir allt það frábæra fólk sem heldur starfinu gangandi.
Íþróttahús þjóna einnig því hlutverki að þar komum við saman, bæði til að stunda hreyfingu og efla félagslíf. Þar hittast einstaklingar á öllum aldri, taka þátt í æfingum, keppnum og viðburðum þar sem myndast tengsl sem styrkja samfélagið. Íþróttahús eru því ekki aðeins staðir fyrir líkamlega þjálfun heldur einnig mikilvægir samkomustaðir sem stuðla að samkennd og samvinnu.
Orðatiltækið „oft er þörf en nú er nauðsyn“ á vel við þegar rætt er um íþróttahúsið í Borgarnesi. Uppsöfnuð innviðaskuld og brýn þörf fyrir bætta aðstöðu kalla á skýra forgangsröðun fjármuna sveitarfélagsins. Það er brýnt að bregðast við fyrir núverandi íbúa og komandi kynslóðir. Núverandi staða er ekki ásættanleg og þolir ekki frekari bið.
Sjálfstæðisflokkurinn í Borgarbyggð og Skorradalshreppi leggur áherslu á uppbyggingu nýs íþróttahúss til að styrkja aðstöðu samfélagsins.
Setjum X við D — íþróttahúsið næst.
Birgir H. Andrésson
Höf. skipar 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps