
Tölum um heilabilun – fræðsla fyrir íbúa
Thelma Jónsdóttir
Í næstu viku koma fulltrúar frá Heilahjálp – samtökum um heilabilun (áður Alzheimersamtökin) og halda fræðsluerindi fyrir íbúa í Borgarbyggð. Markmiðið er að auka þekkingu og opna umræðu um heilabilun, sem snertir þúsundir Íslendinga og fjölskyldur þeirra.
Hvað er heilabilun?
Heilabilun er regnhlífarhugtak yfir rúmlega 200 sjúkdóma sem hafa áhrif á starfsemi heilans. Alzheimer er þar algengast, en einnig eru sjúkdómar á borð við Lewy Body, framheilabilun og æðatengd heilabilun. Áhrifin birtast meðal annars í skertu minni, breyttum skilningi og dómgreind, erfiðleikum í samskiptum og breytingum á hegðun.
Á Íslandi er talið að hátt í 6.000 einstaklingar lifi með heilabilun. Mikilvægt er að hafa í huga að heilabilun er ekki eðlilegur hluti öldrunar og ekki svokallaður öldrunarsjúkdómur. Fólk getur jafnvel greinst um fimmtugt.
Heimilislæknir fyrsti viðkomustaður
Fyrstu einkenni geta verið mismunandi eftir einstaklingum og sjúkdómstegundum. Þegar grunur vaknar er mikilvægt að leita til heimilislæknis, sem er fyrsti viðkomustaður í greiningarferlinu. Heimilislæknir getur metið einkenni, útilokað aðra sjúkdóma og vísað áfram í frekari rannsóknir ef þörf krefur.
Opnum umræðuna
Það skiptir sköpum að tala opinskátt um heilabilun. Að segja frá greiningu getur dregið úr kvíða og einangrun, bæði fyrir þann sem greinist og aðstandendur. Með aukinni umræðu getum við einnig unnið gegn fordómum og stuðlað að skilningsríkara samfélagi.
Þjónusta samtakanna
Heilahjálp leggur sig fram við að vera til staðar fyrir einstaklinga með heilabilun og aðstandendur þeirra og bjóða upp á stuðning, ráðgjöf og fræðslu.
Haldnir eru fjölmargir stuðningsfundir fyrir aðstandendur, þar á meðal reglulegir fundir í Borgarbyggð en einnig rafrænir fundir sem henta vel fólki á landsbyggðinni. Þá starfa félagsráðgjafi og sálfræðingur hjá samtökunum sem veita viðtöl í húsnæði samtakanna í Hafnarfirði en einnig í gegnum fjarfund. Fjölbreytt fræðsluerindi samtakanna eru einnig aðgengileg á vefnum heilahjalp.is
Fræðsla í Borgarnesi
Opið fræðsluerindi fyrir almenning verður haldið í hátíðarsal Brákarhlíðar fimmtudaginn 19. nóvember næstkomandi kl. 17:00. Það eru allir velkomnir, einstaklingar með heilabilun, aðstandendur, fagfólk og aðrir áhugasamir.
Erindið verður flutt af greinarhöfundi og Ástu Kristínu Guðmundsdóttur, ráðgjafa hjá samtökunum.
Thelma Jónsdóttir
Höf. er fræðslustjóri Heilahjálpar – samtaka um heilabilun