Tölum aðeins um… Börn og barnvænt samfélag

Jónína Margrét Sigmundsdóttir

Í hverju samfélagi eru börnin framtíðin og þannig höfum við unnið að mikilvægum málum er snúa að börnum. Það er sameiginleg ábyrgð okkar allra að tryggja að þau fái að vaxa og dafna í umhverfi sem skapar öryggi og veitir stuðning. Við viljum að þau fái raunveruleg tækifæri til að láta raddir sínar heyrast og að óskum þeirra sé mætt þar sem því verður við komið. Við í bæjarstjórn hófum þá vegferð með því að byggja upp og innleiða Barnvænt samfélag og mættum þeim kröfum sem lágu fyrir. Þetta verkefni var ekki átak – þetta er komið til að vera. Við hófum innleiðingu á Farsældarlögum og stöndum í dag uppi sem forystusveitarfélag í þeirri innleiðingu. Það var ekki átak – Farsældarlögin eru lykilþáttur í velferð og þjónustu við börn og fjölskyldna þeirra.

Við höfum skapað traustan vettvang til þess að á Akranesi er sem áður gott að slíta barnsskónum.

 

Jónína Margrét Sigmundsdóttir

Höf. er starfandi bæjarfulltrúi og skipar 2. sæti á lista Samfylkingarinnar á Akranesi