Tími til að vakna

Haukur Þór Hauksson

Ég hef í ræðu og riti fjallað um fjárhag og efnahag Borgarbyggðar í aðdraganda kosninga í vor. Mér hefur borist sú gagnrýni, bæði frá keppinautum okkar í Miðflokknum og öðrum, að ég sé að nýta þekkingu mína á greiningu ársreikninga til að villa um fyrir fólki og gera stöðuna verri en raun ber vitni. Svo er alls ekki.

Eins og ég hef rakið var tap af rekstri Borgarbyggðar í fyrra – og það þrátt fyrir að fjármagnskostnaður af nýbyggingum hafi verið eignfærður í stað þess að vera gjaldfærður eins og tíðkast. Niðurrif bygginga í Brákarey var einnig eignfært, raunverulegt tap er því mun meira en ársreikningur sýnir. Rekstrarjöfnuðinn er hægt að bæta með markvissum aðgerðum og aðhaldi, en það krefst þess að við náum raunverulegri stjórn á fjármálum sveitarfélagsins.

Meira áhyggjuefni er þó þetta: vaxtaberandi langtímaskuldir sveitarfélagsins eru að nálgast 8 milljarða króna, sem þýðir að fjármagnskostnaður þessa árs nemur tæpum 500 milljónum. Stefna meirihluta Framsóknarflokksins er að hefja tafarlaust viðbyggingu við íþróttahúsið – framkvæmd sem að öllum líkindum kostar yfir tvo milljarða. Sjálfstæðisflokkurinn er með sambærilegar stórar áætlanir. Ef gengið er strax í þessar framkvæmdir verður ekkert svigrúm til að takast á við áföll eða annað óvænt.

Samanburður við önnur sveitarfélög er gagnlegur. Ísafjarðarbær á vel við í því samhengi: Íbúafjöldi er svipaður, um 4.000 manns, og tekjustofnar eru álíka og í Borgarbyggð. Í lok árs 2024 voru skuldir Ísafjarðarbæjar um 5,8 milljarðar en í lok árs 2025 höfðu þær lækkað í 3,8 milljarða – lækkun um tvo milljarða á einu ári og þeir vinna að enn frekari lækkun skulda. Þetta sýnir að Ísfirðingar hafa haldið vel á sínum málum. Meirihlutinn í Borgarbyggð stefnir hins vegar að því að skuldir fari upp í um tíu milljarða.

Kosningarnar í vor bjóða upp á skýrt val: Að halda áfram á þeirri braut sem stefnir á enn meiri skuldsetningu, eða velja varfærnari leið sem verndar hagsmuni sveitarfélagsins til lengri tíma. Við í Miðflokknum trúum því að sú leið sé réttari – við hvetjum ykkur til að ganga þá leið með okkur.

 

Haukur Þór Hauksson

Höf. skipar oddvitasætið á lista Miðflokksins í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps