Þjónusta við fatlað fólk og áherslur Borgarbyggðarlistans – English below

Hákon Konráðsson

Þjónusta við fatlað fólk í Borgarbyggð byggir á lögum nr. 38/2009 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Markmið hennar er að tryggja sjálfstætt líf, þátttöku í samfélaginu og aðgengi að viðeigandi stuðningi.

Í Borgarbyggð er margt vel gert. Þar má nefna búsetuþjónustu, liðveislu og starfsemi Öldunnar, sem gegnir mikilvægu hlutverki í virkni og þátttöku þeirra sem sækja þjónustu þangað. Í dag er hluti þjónustunnar staðsettur á jaðri samfélagsins. Aldan, sem er mikilvægur vettvangur fyrir þá sem sækja þjónustu þar daglega, er staðsett í iðnaðarhverfi með takmörkuðum gönguleiðum og litlum tengslum við daglegt líf íbúa. Slík staðsetning vinnur gegn markmiðum um þátttöku og aðgengi.

Þá er enn alvarlegra að notendasamráð, sem á að vera hornsteinn þjónustunnar, hefur ekki verið virkt sem skyldi. Þrátt fyrir að skipað hafi verið í notendaráð í byrjun árs 2025 og fólk hafi gefið kost á sér til þátttöku, hefur starfsemin einungis verið í formi þriggja kynningarfunda og hefur notendaráð í málefnum fatlaðra í Borgarbyggð ekki fengið raunverulegt tækifæri til að hafa áhrif. Það er ekki nóg að stofna ráð á pappír.

Borgarbyggðarlistinn vill bregðast við þessu með skýrum aðgerðum. Við viljum:

  • Efla og virkja notendaráð þannig að það fundi reglulega og hafi raunveruleg áhrif á ákvarðanir.
  • Auka fjölbreytni úrræða svo þjónustan mæti ólíkum þörfum, áhuga og getu einstaklinga.
  • Styrkja samvinnu milli þjónustuþátta til að tryggja samfellu og skilvirkni.
  • Færa þjónustuna nær daglegu lífi fólks og grunnþjónustu sveitarfélagsins.

Fólk á ekki að þurfa að laga sig að kerfinu.

Kerfið á að laga sig að fólkinu.

Hákon Konráðsson

Höf. skipar 10. sæti Borgarbyggðarlistans

 

Borgarbyggðarlistinn: Service for people with disabilities

Services for people with disabilities in Borgarbyggð are based on Act No. 38/2009 on services for individuals with long-term support needs.The aim is to ensure independent living, participation in society, and access to appropriate support for people with disabilities.

In Borgarbyggð, many things are done well. These include residential services, personal support, and the activities at Aldan, which plays an important role in promoting social engagement and participation for those who attend there on a daily basis. However, part of the service is currently located on the margins of the community. Aldan, which is an important daily setting for its users, is situated in an industrial area with limited pedestrian access and little connection to everyday community life. Such a location works against the goals of participation and accessibility.

More concerning is that user involvement intended to be a cornerstone of the service has not been functioning as it should. Although a user council was formally established at the beginning of 2025 and individuals stepped forward to participate, its activity has been limited to three introductory meetings. As a result, the user council for disability services in Borgarbyggð has not been given a genuine opportunity to influence decisions.

It is not enough to establish a council on paper.

The Borgarbyggð List wants to address this with clear actions. We want to:

  • Strengthen and activate the user council so that it meets regularly and has real influence on decision-making
  • Increase the diversity of services so they meet the different needs, interests, and abilities of individuals
  • Improve coordination between services to ensure continuity and efficiency
  • Bring services closer to people’s everyday lives and to core municipal services

People should not have to adapt to the system.

The system should adapt to people.

The author is the 10th candidate on the Borgarbyggð List.