Þessu þarf að breyta

Bjarni Jónsson

Á ferðum mínum undanfarna daga hefur fólk hvarvetna kvartað yfir lélegri póstþjónustu. Bréf, blöð og bögglar koma seint  á leiðarenda og fólk í fjarlægari byggðum á í miklum erfiðleikum að koma póstsendingum frá sér með eðlilegum hætti.  Ítrekað hefur verið ályktað um þessi mál og ég þau tekin upp á sveitarstjórnar- og á landshlutavettvangi. Við þekkjum vel baráttu íbúa víða um land fyrir pósthúsinu sínu. Stefna stjórnvalda í póstmálum hefur  hinsvegar verið sú  að skera þjónustuna niður, fækka pósthúsum og dreifidögum. Þá hefur verið verulega vegið að héraðsfréttablöðum sem þjónusta landsbyggðina. Fyrir dreifingu á blöðum eins og Feyki og Skessuhorni þarf að borga með öllum afsláttum um 117 á hvert blað á meðan aðeins þarf að greiða um 12 kr. fyrir fríblöð sem send eru á hvert heimili.

Í stað þess að tengja póstflutninga almenningssamgöngum með strætó eða flugi vítt og breytt um landið er hluti þjónustunnar nú einkavædd. Ekið er svo  með póstinn á sér bílum með skertri dreifingu um landið með stórauknum kostnaði.  Virðist þarna litlu skipta hverjir hafa setið í stjórn Íslandspósts eða farið  með mál hans í ríkisstjórn á undaförnum árum.

Það kemur því ekki á óvart að í  nýbirtri skoðanakönnun í Evrópulöndum, sem greint er frá á Eyjunni, sýni að póstþjónustan  á Íslandi  er sú lélegasta í álfunni og óánægja íbúana mest  með póstþjónustuna.

Þessu þarf að breyta. Póstþjónustan er mikilvægur hluti almannaþjónustu landsmanna, ekki síst í hinum dreifðu byggðum sem standa þarf vörð um og  afar brýnt er að færa hana  til betri vegar.

 

Bjarni Jónsson

Höf. býður sig fram til að leiða lista VG í Norðvesturkjördæmi