Þegar við veljum samstarf fram yfir skotgrafir

Liv Åse Skarstad

Í síðustu viku fjallaði ég um þær áskoranir sem hafa einkennt samskipti Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar undanfarið og hversu mikilvægt það er að við náum að byggja aftur upp traust og eðlilegt samtal. Viðbrögðin sem ég fékk við þeirri grein voru bæði mikil og einlæg; mér bárust fjölmörg skilaboð, bæði frá Hvalfirðingum og Akurnesingum, og það var eitt sem stóð upp úr – þetta skiptir fólk máli. Fólk vill færa umræðuna í annan farveg, losna við þennan leiðindatón sem hefur einkennst af heift og reiði og vill sjá meiri virðingu og raunverulegan vilja til að vinna saman.

Þar þurfum við að byrja. Þegar við stöldrum við og horfum á stærri myndina, þá sjáum við að sagan snýst ekki bara um ágreining, heldur einnig um tækifæri – raunveruleg og framkvæmanleg tækifæri sem geta skilað betri þjónustu fyrir íbúana okkar, beggja megin marka sveitarfélaganna. Það kallar á að að við færum fókusinn, frá því að velta fyrir hvort við eigum að sameinast, yfir í það að hvernig við getum unnið betur saman.

Samstarf er nefnilega ekki bara fallegt orð, heldur eitthvað sem verður til í raunverulegum ákvörðunum og verkefnum. Við sjáum það til dæmis í skólamálum, þar sem vel má velta því fyrir hvort hægt væri að byggja upp lausnir sem þjóna báðum sveitarfélögum, eins og leikskóla á mörkum þeirra, sem myndi nýta fjármuni betur og skapa meiri sveigjanleika fyrir fjölskyldur. Sama á við um velferðar- og öldrunarmál, þar sem þörfin mun bara aukast á næstu árum og kallar á lausnir sem byggja á samnýtingu þekkingar og aðstöðu, þannig að þjónustan verði bæði skilvirk og mannleg.

Tækifærin liggja líka í stjórnsýslunni sjálfri, þar sem aukið samstarf gæti gert okkur kleift að byggja upp sameiginlegt sérfræðingateymi á sviði lögfræði, sálfræði eða mannauðsmála, sem myndi styrkja faglegt starf beggja sveitarfélaga og nýta fjármuni betur án þess að skerða sjálfstæði hvors um sig. Og þegar horft er til framtíðar blasir við að við stöndum sterkari saman, til dæmis í ferðaþjónustu, þar sem Akranes og Hvalfjörður geta myndað eina sterka heild, í stað þess að keppa við hvort annað, með náttúru, sögu og mannlíf sem styrkja hvort annað.

Við vitum vel að þetta er hægt, því við höfum þegar séð það í framkvæmd; sameiginleg verkefni eins og slökkviliði, dvalarheimili, samstarf um tónlistarskóla og bókasafn, hafa orðið til þess vegna þess að vilji var til staðar til að finna lausnir saman. En slíkur vilji kviknar ekki í skotgröfum heldur í samtali sem byggir á trausti, virðingu og þeirri einföldu ákvörðun að horfa frekar á það sem sameinar okkur en það sem skilur okkur að.

Við erum öll að vinna að sama markmiði; að bæta þjónustu og skapa gott samfélag fyrir fólkið sem býr hér. Það er löngu kominn tími til þess að setjast niður með opnum huga og móta sameiginlega sýn til framtíðar sem snýst ekki um sameiningu heldur samstarf; raunhæf verkefni og skýran vilja til að gera gott samfélag enn betra.

Við þurfum ekki að sameinast til að ná árangri, en ef við veljum að vinna saman getum við náð enn lengra – og gert það á þann hátt sem skiptir mestu máli fyrir fólkið okkar.

 

Liv Åse Skarstad

Höf. er bæjarfulltrúi Framsóknar og frjálsra á Akranesi og skipar annað sæti listans í komandi sveitarstjórnarkosningum