Þakkir til íbúa fyrir stuðninginn

Viðreisn á Akranesi

Kæru íbúar á Akranesi!

Við í Viðreisn viljum senda ykkur öllum innilegar þakkir fyrir að taka vel á móti glænýju framboði okkar í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí. Fjölmörg lögðu leið sína til okkar á kosningaskrifstofuna fyrir kjördag og deildu með okkur reynslu sinni, áhyggjum og áherslum.

Fyrir þessi samtöl erum við afskaplega þakklát og munum hafa þau að leiðarljósi í öllu okkar starfi komandi kjörtímabil. Eflaust munum við leita aftur til ykkar áður en langt um líður og nýta okkur ykkar reynslu og þekkingu innan t.d. málaflokks fatlaðra, aldraðra og tómstundamála. Ykkar raddir höfðu mikil áhrif á okkur og við viljum fylgja ykkar góðu ábendingum eftir alla leið.

Við höldum áfram að byggja undir okkar stefnumál í samráði og samtali við íbúa næstu fjögur árin og hlökkum til að bretta upp ermar og ganga í verkin með oddvitanum okkar í bæjarmálunum.

Við vonum að íbúar haldi áfram að leita til okkar með málefni bæjarfélagsins sem liggja þeim á hjarta. Við erum hér til að vinna fyrir ykkur.

Við erum hér til að vinna fyrir alla íbúa, hvað sem þeir kusu, og tökum þá ábyrgð sem umboði okkar í bæjarstjórn fylgir mjög alvarlega.

Með auðmýkt og þakklæti fyrir traustið sem okkur er sýnt,

 

Viðreisn á Akranesi