Það þarf Þorp

Jón Hjörvar Valgarðsson

Orðtakið; „Það þarf þorp til að ala upp barn“ merkir að uppeldi barns er ekki einungis á ábyrgð foreldra heldur samfélagsins alls. Ég hef oft sagt að þetta orðtak eigi hvergi eins vel við og hér á Akranesi vegna þess frábæra starfs sem unnið er í Þorpinu frístundamiðstöð.

Með innleiðingu farsældarlaga og barnvæns sveitarfélags, með faglegu íþróttastarfi og sterkum menntastofnunum, höfum við sem samfélag náð að grípa vel utan um börn og ungmenni bæjarins. Næstu skref eru að efla félagslega þáttinn og þar spilar Þorpið stórt hlutverk.

Að leika og prófa

Í Þorpinu er unnið frábært starf sem hefur sannað verðgildi sitt, þó svo að það fari lítið fyrir starfseminni í fjárhagsáætlun bæjarins eða pólitískri umræðu. Í Þorpinu er starfsemi frá klukkan 8:00 á morgnana til 23:00 á kvöldin fyrir öll á aldrinum 8 til 25 ára. Öllum aldurshópum er mætt af fagmennsku og með ólíkri nálgun til þess að öll fái að njóta félagsstarfs við sitt hæfi. Í Þorpinu fá börn og ungmenni tækifæri til að þroskast, leika og prófa sig áfram á eigin forsendum. Þar eru þau í öruggu umhverfi með stuðning starfsfólks sem leggur sig fram um að skapa faglegan vettvang þar sem öll fái að njóta sín.

Með gleðina í fyrirrúmi

Akranes er vaxandi samfélag og kröfur til frístundaþjónustu vaxa í takt við það, en fjármagn hefur ekki fylgt þeirri þróun. Þorpið hefur brugðist við með mikilli útsjónarsemi og lausnamiðuðum hætti þar sem starfsfólk er með marga hatta og heldur mörgum boltum á lofti undir miklu álagi. Þetta er þó alltaf gert með jákvæðni, gleði og samvinnu í fyrirrúmi. Með auknu fjármagni sjáum við fram á fjölbreyttara framboð í félagsstarfi fyrir börn og ungmenni, betri mönnun og bætta aðstöðu.

 

Jón Hjörvar Valgarðsson

Höfundur skipar 5. sæti á lista Samfylkingarinnar á Akranesi