Það á að vera Gott að eldast – Farsæl efri ár og góð tengsl

Laufey Jónsdóttir

Gott að eldast er aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk sem byggir á nýrri hugsun í þjónustu við þennan stækkandi hóp í samfélagi okkar. Með henni er leitast eftir að breyta og bæta þjónustu við eldra fólk, meðal annars með því að gera hana einstaklingsmiðaðri. Jafnframt er áhersla lögð á andlega, líkamlega og félagslega heilsueflingu en með virkni og félagslegri samveru er stuðlað að heilbrigðri öldrun.

Sex heilbrigðisstofnanir og 22 sveitarfélög voru valin til þátttöku í þróunarverkefni sem gengur út á að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi voru valin til að taka þátt í tilraunaverkefninu og eru það níu sveitarfélög sem að verkefninu koma.

Það eru ýmis verkefni sem unnið er að samkvæmt aðgerðaáætlun sem unnin var fyrir Gott að eldast. Meðal annars er lögð áhersla á að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu í hverju sveitarfélagi fyrir aldrað fólk sem býr heima. Lögð er mikil áhersla á að skapa aðstæður svo fólk geti aukið virkni sína. Þar kemur heilsuefling og félagsstarf sterkt inn og einnig öldrunarráðgjöf. Upplýsingar eiga að verða aðgengilegar á www.island.is og nú þegar er farið að safna þeim upplýsingum saman.

Lögð verður mikil áhersla á virkni fólks. Félagsleg einangrun er vaxandi í nútímasamfélagi og rannsóknir sýna að til mikils er að vinna með aukinni félagslegri virkni enda félagsleg einangrun stór áhættuþáttur einmanaleika. Nú hafa sveitarfélögin sem þátt taka í þróunarverkefninu hafið þátttöku í spennandi tilraunaverkefni með ráðningu svokallaðra tengiráðgjafa.

Hlutverk tengiráðgjafa er að leitast við að rjúfa einangrun eldra fólks með símtölum og heimsóknum og því að finna leiðir til að auka virkni. Það getur verið auðvelt úrlausnar, eins og með því að tengja saman fólk með svipuð áhugamál, eða krafist flóknara samstarfs milli þjónustustofnana.

Tengiráðgjafi þarf að hafa yfirsýn yfir bjargir nærsamfélagsins, sérstaklega þau úrræði sem eru líkleg til að auka félagsleg samskipti viðkvæmra hópa og vinna gegn einmanaleika. Tengiráðgjafi er þannig í góðum tengslum við aðila í heimabyggð til að nýta sem best þær bjargir sem fyrir eru til að ryðja úr vegi hindrunum á milli mismunandi þjónustuaðila og byggja upp tengingar á milli þjónustuveitenda í sveitarfélaginu.

Á flestum stöðum mun þetta fela í sér samtal milli félagsþjónustu og heilsugæslu, félags eldra fólks, félagasamtaka, trúfélaga, sjálfboðaliðasamtaka o.s.frv. Með þessu er nærumhverfið virkjað til þess að taka betur utan um þau sem eru félagslega einangruð eða einmana. Hlutverk tengiráðgjafa er þannig að stíga inn og finna lausn sem hentar hverjum og einum.

Félags- og vinnumarkaðsráðherra hefur lagt áherslu á að allir séu með í samfélaginu og taki þátt út frá sínum forsendum. Tengiráðgjafarnir munu fjölga tækifærum fyrir margt eldra fólk til félagslegrar virkni, draga úr einangrun í samvinnu við sveitarfélögin. Hægt er að skoða nánari upplýsingar um verkefnið á www.stjornarrad.is/gott-ad-eldast

Opið hús, allir velkomnir!

Dagana 4.-6. nóvember verður boðið upp á íbúafundi í sjö sveitarfélögum á Vesturlandi. Þar verður verkefnið betur kynnt og íbúar hvattir til að taka þátt með okkur því nærsamfélagið þarf að taka virkan þátt. Viðburðir verða nánar auglýstir á samfélagsmiðlum og á heimasíðum viðkomandi sveitarfélaga.

Undirrituð er tengiráðgjafi fyrir Vesturland og hefur aðsetur á velferðarsviði Akraneskaupstaðar. Velkomið er að hafa samband varðandi ráðgjöf og upplýsingar um þá þjónustu sem er í boði.

 

Laufey Jónsdóttir

Höf. er tengiráðgjafi Gott að eldast á Vesturlandi

laufey@akranes.is – Sími 899-3056