
Tækifærin liggja í Hvalfjarðarsveit
Einar Þórarinsson
Það er eftirsótt að búa í Hvalfjarðarsveit. Það kemur skýrt fram í samtölum við íbúa; hér er gott að búa. Íbúðarlóðum hefur verið úthlutað í Melahverfi, íbúum fjölgar í Krosslandi og víða um sveitina rísa nýbyggingar á jörðum, sumar nýreistar, aðrar á framkvæmdastigi. Brátt verður ný samfélagsmiðstöð í Heiðarborg tekin í notkun, íbúum á öllum aldri til samveru, hreyfingar og bættrar lýðheilsu.
Í samtölum frambjóðenda við íbúa undanfarnar vikur hefur komið skýrt fram að heilt yfir er lögbundin þjónusta sveitarfélagsins í góðum farvegi. Ábendingar koma vissulega fram um atriði sem betur mega fara og við hlustum eftir þeim. En áhugi íbúa á samfélaginu sjálfu, á því sem hér er að gerast og því sem framundan er, er mikill og sterkur. Það er gott merki um lifandi samfélag.
Á atvinnuhliðinni hefur markviss vinna Þróunarfélags Grundartanga skilað sér í því að mörg stór áform eru nú í gangi, hvert á sínu stigi skipulags og umhverfismats. Til viðbótar við þau hafa þjónustufyrirtæki á svæðinu vaxið jafnt og þétt á undanförnum árum. Þetta eru atriði sem skapa atvinnu og hagsæld langt út fyrir Hvalfjarðarsveit. Fyrir Akranes, Borgarbyggð, höfuðborgarsvæðið og nágrenni. Það er sókn sem skiptir máli fyrir allt Vesturland.
Á sama tíma og þetta er allt í gangi hafa stjórnvöld kynnt áform um að svipta sveitarfélagið réttmætum fasteignaskatti af stórnotendum raforku. Það er stór ógn við þá undirstöðu sem öll þessi uppbygging samfélagsins hvílir á, bæði sú sem þegar hefur verið unnin og sú sem framundan er. Myndin sem blasir við er vissulega flókin og eðlilegt er að íbúar staldri við. En því flóknari sem hún er, þeim mun mikilvægara er að næsta sveitarstjórn hafi þá fólk með skýra sýn til góðra verka, fjölbreytta reynslu og ólík sjónarhorn.
A-listinn hefur sett fram skýra stefnu í öllum helstu málaflokkum og tilgreint aðgerðir til að fylgja henni eftir. Í umhverfismálum á Grundartanga viljum við umhverfismælingar í armslengd frá rekstraraðilum, opin gögn og rauntímamælingar þar sem þeim verður við komið, ásamt fagráði til betri upplýsingamiðlunar og samtals. En slík stefna verður ekki að veruleika nema fjármagn fylgi og það fjármagn kemur að stórum hluta einmitt frá þeim fasteignasköttum sem nú er sótt að. Hagsmunagæsla gegn þeim áformum er ekki valkostur. Hún er forsenda þess að við getum staðið undir því sem við viljum gera til að halda samfélaginu sterku og lifandi.
Til þess þurfum við öflugan og fjölbreyttan hóp sem getur fundið leiðir til að virkja tækifærin án þess að glata neinu af því sem gerir Hvalfjarðarsveit að þeim stað sem hér er gott að búa í. A-listinn býður fram þann fjölbreytileika. Hljóti listinn umboð kjósenda mun Bjarki Þorsteinsson taka við sem sveitarstjóri. Hann er farsæll sveitarstjóri í dag og öflugur í hagsmunagæslu fyrir það sveitarfélag sem hann hefur leitt. Um leið og við fáum reynslu hans, fáum við líka ferskt sjónarhorn. Við það leysast sjálfkrafa kraftar úr læðingi, líkt og þegar tún er endurræktað. Það er eðli endurnýjunar, ekki gagnrýni á forvera.
Vaxandi samfélagi fylgja áskoranir. Við komumst ekki undan þeim með einföldum svörum. Það þarf blöndu af styrk og næmni, af reynslu og ferskum hugmyndum, af djörfung og varúð. Það er einmitt það sem A-listinn býður fram, fólk sem er tilbúið að nýta reynslu sína til þess að tiltölulega fámennt sveitarfélag geti haldið áfram að veita öllum íbúum framúrskarandi þjónustu.
Setjum X við A laugardaginn 16. maí fyrir Hvalfjarðarsveit sem heldur áfram að dafna á eigin forsendum.
Einar Þórarinsson
Höf. skipar 4. sæti á A lista Samhentrar sveitar í Hvalfjarðarsveit