
Sveitarstjórnarmenn reistu kjósendum Níðstöng á nýliðnu kjörtímabili
Vilhjálmur Diðriksson
Allt var þetta gert undir öruggri forystu Framsóknarmanna sem keyrðu í gegn samþykkt málsins. Framsóknarflokkurinn sem leiðandi afl í Borgarbyggð á því kjörtímabili sem nú er að ljúka verður fjölmörgum íbúum í sveitarfélaginu ógleymanlegur. Ekki þó fyrir jákvæðan árangur heldur vegna ótrúlegrar fullvissu um ágæti eigin skoðana – umfram skoðanir kjósenda í uppsveitum Borgarfjarðar.
Þeir íbúar og eigendur fasteigna sem mættu á fund í Þverárrétt þar sem fjalla átti um hugmyndir um vindvirkjanir á eignarlöndum bænda máttu þar sitja undir því að ekki var annað að heyra á framsóknarleiðtoganum í forsæti sveitarstjórnar en að henni þætti hugmyndir um vindvirkjanir verulega spennandi kostur.
Öll þau áform sem þó voru og eru í fullkominni andstöðu við vilja alls meginþorra landeigenda og eigenda fasteigna. Allt þetta mál hefur valdið miklum óróa í sveitarfélaginu og íbúum hefur fundist eins og þeir búi í einræðisríki þar sem taka á eignir af fólki og að kúga fólk til hlýðni. Ekki var annað að heyra á Framsóknarmönnum á áðurnefndum fundi en að þetta væri bara eðlileg framþróun á svæðinu.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir féllst forysta Framsóknarmanna ekki á að segja að ekki yrði gengið gegn vilja meirihluta hagsmunaaðila.
Síðan tók steininn úr þegar bæjarstjórn samþykkti uppsetningu á mælimastri á Grjóthálsi – sem undanfara að uppsetningu á vindvirkjunum, þvert gegn háværum andmælum íbúa á svæðinu. Formaður byggingarnefndar samþykkti að snara upp mastrinu í dagslok þegar umsagnarfrestu vegna málsins rann út. Lýðræðisleg stjórnsýsla það? Með þeim verknaði virtu forystumenn Framsóknar í Borgarbyggð fullkomlega að vettugi vilja nánast allra íbúa í uppsveitum héraðsins, vilja sem þú var áréttaður á áðurnefndum fundi.
Með því að samþykkja þetta mælimastur reisti forysta sveitarstjórnar fólki á svæðinu níðstöng eins og garpa var háttur til forna. Sú níðstöng er jafnframt reist gegn öllu því sem kalla má lýðræði og samráð við kjósendur og eigendur fasteigna á svæðinu. Sannkallað Framsóknarlýðræði eins og þolendur komust að orði.
Framsóknarmenn sem að þessum verknaði stóðu fara nú fram og og óska eftir stuðningi til áframhaldandi setu í sveitarstjórn, með einhver ný andlit í framlínu en væntanlega sömu lýðræðisástina í farteskinu.
Nú er lag í aðdraganda kosninga að fara að dæmi Hallgerðar á Hlíðarenda og „muna Framsóknarmönnum kinnhestinn,“ það er þann yfirgang sem þau sýndu við framgang þessa máls í sveitarstjórn.
Stjórnmálahreyfing sem hefur sýnt slíka einræðistilburði eins og Framsóknarmenn gerðu á líðandi kjörtímabili á það eitt skilið að vera sett algerlega til hliðar.
Nú er tækifæri til að skipta út og sýna að kjósendur láta ekki kúga sig til hlýðni.
Vilhjálmur Diðriksson
Höf. skipar 17. sæti á lista Miðflokksins í Borgarbyggð og Skorradalshreppi