
Sveitarfélög standa vörð um íslenskan landbúnað
Sonja Lind Estrajher Eyglóardóttir
Borgarbyggð er rík af landbúnaði, hann er og hefur verið órjúfanlegur hluti af atvinnulífi, menningu og samfélagi sveitarfélagsins. Landbúnaður skapar ekki bara störf heldur er hann rótgróinn í þjóðarsál okkar Íslendinga og grundvöllur fyrir byggð í dreifbýli. Það er því sérstakt áhyggjuefni þegar ríkisstjórnin tekur ákvarðanir sem virðast skorta bæði skilning á mikilvægi íslensks landbúnaðar og aðstæðum fólks í hinum dreifðu byggðum Íslands.
Ríkisstjórnin með Viðreisn í fararbroddi hefur gert atlögu að íslenskum landbúnaði úr fleiri en einni átt. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hefur m.a. boðað að breyta eigi lögum þannig að „rifinn mozzarella-ostur með viðbættum jurtaolíum“ verði ekki skilgreindur sem ostur við innflutning heldur sem jurtaostur þrátt fyrir að eftir ítrekuð málaferli heildsala hafi verið staðfest að jurtaostur ekki ostur. Samkvæmt fréttum RÚV frá 12. október síðastliðnum hefur innflutningur á kjöti aukist um 14% það sem af er ári.
Óvissuferð
Gagnrýni á ríkisstjórnina snýst ekki aðeins um einstakar ákvarðanir heldur einnig um þá sýn sem liggur að baki þeim. Það virðist sem ríkisstjórnin skilji ekki mikilvægi atvinnugreina sem byggja á auðlindum landsins. Umræða um tollvernd, innflutning og tollflokkun matvæla er til þess fallin að vekja óvissu um framtíð íslensks landbúnaðar.
Bændur þurfa að takast á við aukinn kostnað vegna eldsneytis, áburðar, aðfanga, flutninga og véla. Þegar opinber gjöld og annar kostnaður eykst þurfa stjórnvöld að spyrja hvort afkoma búa og samkeppnisstaða íslenskrar matvælaframleiðslu sé tryggð.
Í fjárlagafrumvarpi ársins 2027 er meðal annars gert ráð fyrir að kílómetragjaldið hækki um 15,9%. Í landbúnaðarsveitarfélögum eru samgöngur og flutningar mikilvægur hluti daglegs rekstrar. Þessi hækkun kemur beint niður á bændum, fyrirtækjum og heimilum sem eru háð bílnum til að sinna daglegum störfum og nauðsynlegum erindum. Ákvarðanir um fjárfestingu og þróun rekstrar í landbúnaði verða ekki teknar nema í umhverfi þar sem er fyrirsjáanleiki, stöðugleiki og skýr framtíðarsýn.
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á að efla íslenskan landbúnað, auka verðmætasköpun í matvælaframleiðslu, auðvelda nýliðun bænda og draga úr orkukostnaði garðyrkjunnar. Því er eðlilegt að spyrja hvernig niðurfelling tolla, aukin gjöld og kostnaðarhækkanir samræmist þessum markmiðum og hvernig ríkisstjórnin ætli að tryggja samkeppnishæfni íslensks landbúnaðar og byggðafestu til framtíðar.
Íslenskur landbúnaður þjóðaröryggi
Íslenskur landbúnaður gegnir lykilhlutverki í þjóðaröryggi. Atburðir undanfarinna ára hafa sýnt hversu viðkvæmar alþjóðlegar aðfangakeðjur geta verið. Stríð, náttúruhamfarir, viðskiptadeilur og truflanir á flutningum geta haft áhrif á aðgengi að matvælum og nauðsynlegum aðföngum.
Fyrir utan heilnæmi íslensks landbúnaðar getum við heldur ekki gert ráð fyrir að alltaf verði hægt að flytja inn þau matvæli sem við þurfum. Öflugur íslenskur landbúnaður er því hluti af fæðuöryggi þjóðarinnar. Það er mikilvægt að viðhalda þekkingu, framleiðslugetu, ræktarlandi og innviðum sem gera okkur kleift að framleiða matvæli hér á landi.
Borgarbyggð á beinna hagsmuna að gæta
Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur samþykkt að sveitarfélagið sé stofnaðili að Samtökum landbúnaðarsveitarfélaga. Það er mikilvægt skref og skýr viðurkenning á því að landbúnaður er eitt af grundvallarhagsmunamálum sveitarfélagsins.
Þessi nýju samtök eru vettvangur sveitarfélaga sem eiga beina hagsmuni af landbúnaði, matvælaframleiðslu, landnýtingu og byggðaþróun. Markmiðið er meðal annars að standa vörð um hagsmuni sveitarfélaganna og íbúa þeirra, vinna að sameiginlegum hagsmunamálum gagnvart stjórnvöldum, stuðla að öflugri matvælaframleiðslu og efla atvinnuuppbyggingu í dreifbýli.
Þetta samstarf er mikilvægt vegna þess að ákvarðanir um landbúnaðarmál hafa áhrif á mun fleiri en bændurna sjálfa. Þær snerta störf í vinnslu, flutningum og þjónustu, nýtingu lands, viðhald innviða og framtíð samfélaganna sem byggja afkomu sína að hluta á landbúnaði.
Við vitum að öflugt landbúnaðarsamfélag og blómlegt sveitarfélag fara saman. Það er því eðlilegt að sveitarfélagið taki virkan þátt í að móta umræðu um framtíð greinarinnar og tryggja að sjónarmið landsbyggðarinnar heyrist þegar ákvarðanir eru teknar á landsvísu.
Landsbyggðin verður að standa saman
Það er mikilvægt að landbúnaðarsveitarfélög standi saman. Þau þurfa að miðla reynslu, tala einni röddu um sameiginlega hagsmuni og þrýsta á stjórnvöld um skýra stefnu sem tekur mið af raunverulegum aðstæðum á landsbyggðinni.
Landbúnaðurinn er ekki sérhagsmunamál einstakra sveitarfélaga. Hann er sameiginlegt hagsmunamál þjóðarinnar allrar. Borgarbyggð hefur bæði skyldu og hagsmuni af því að standa vörð um þessa mikilvægu atvinnugrein. Nú sem aldrei fyrr er mikilvægt að sveitarfélög landsbyggðarinnar standi saman og geri skýra kröfu til stjórnvalda um fyrirsjáanleika, raunhæf rekstrarskilyrði og framtíðarsýn fyrir íslenskan landbúnað.
Sonja Lind E. Eyglóardóttir
Höf. er sveitarstjórnarfulltrúi Framsóknar í Borgarbyggð