
Sveitarfélagið Stykkishólmur, ríkið og við
Björn Ásgeir Sumarliðason
Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga í Sveitarfélaginu Stykkishólmi höfum við frambjóðendur farið víða og rætt við íbúa sveitarfélagsins. Íbúar hafa rætt hvað betur hefði mátt fara eða hvaða leiðir séu færar til að bæta lífskjör og þjónustu. Íbúar hafa lýst ánægju með margt sem gert hefur verið á undanförnum árum í sveitarfélaginu. Það er mikilvægur hluti kjörinna fulltrúa að hlusta á sjónarmið sem flestra og taka ákvarðanir út frá þeim. Við frambjóðendur H-listans höfum leitast við að gera það og ætlum að halda þessu samtali áfram næstu fjögur árin.
Eftir þessi samtöl er mér enn ljósara að sveitarstjórnarfólk þarf að sækja fastar og af meiri krafti að ríkinu og alþingismönnum fyrir hönd íbúa. Mörg þeirra verkefna sem skipta samfélagið okkar miklu máli eru og verða ekki leyst af sveitarfélögum einum og sér, heldur af ríkinu eða í samvinnu ríkis og sveitarfélaga. Þar má nefna ríkisstörf, uppbyggingu samgangna, öruggar ferjusiglingar yfir Breiðafjörð, bættar almenningssamgöngur og öflugri heilbrigðisþjónustu.
Samgöngumál
Vegagerðin vinnur nú að endurbyggingu Stykkishólmsvegar 58 inn í Stykkishólm. Ástand hans var orðið það slæmt að fræsa þurfti efsta lagið af honum löngu áður en framkvæmdir hófust. Ótækt er að vegir séu það illa farnir að þeir séu nánast ónýtir þegar loks kemur að nauðsynlegu viðhaldi. Við þurfum að fylgja því fast eftir að uppbygging vega til og um Snæfellsnes verði stóraukin.
Almenningssamgöngur á Snæfellsnesi þarf jafnframt að endurskoða og tryggja að þær séu betur sniðnar að þörfum íbúa, sérstaklega ungs fólks. Þá þurfum við áfram að standa vörð um öruggar og áreiðanlegar ferjusiglingar Baldurs yfir Breiðafjörð.
Greiðar samgöngur eru frumskilyrði góðrar búsetu, öflugs atvinnulífs og fjölbreyttrar ferðaþjónustu.
Ríkisstörfum fækkar
Við þurfum að standa sérstakan vörð um störf ríkisins á landsbyggðinni og sækja fast á að fleiri verkefni og störf verði unnin utan höfuðborgarsvæðisins. Á sama tíma og störfum á vegum ríkisins hefur fjölgað á landsvísu hefur þeim fækkað í Sveitarfélaginu Stykkishólmi. Því þarf að breyta.
Mörg störf á vegum ríkisins væri vel hægt að vinna á landsbyggðinni og Stykkishólmur hefur alla burði til að taka við fleiri verkefnum og þjónustu á vegum ríkisins.
Heilbrigðismál
Við viljum beita okkur fyrir því að legurými sjúkrahússins séu nýtt allt árið, að áfram verði unnið að samþættingu heimahjúkrunar og velferðarþjónustu í gegnum verkefnið Gott að eldast og að íbúar hafi gott aðgengi að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Þá munum við áfram standa vörð um bakdeildina í Stykkishólmi. Við teljum jafnframt mikilvægt að tryggja fastráðningu læknis og beita okkur fyrir því að dagdvöl verði aftur í boði í Stykkishólmi og að dagdvalarrýmum verði fjölgað.
Það er erfitt að horfa upp á fólkið okkar vera flutt í önnur sveitarfélög vegna þess að ekki er hægt að nýta þá sjúkradeild sem er í Stykkishólmi. Því þurfum við að breyta.
Munum öll að kjósa
Þetta er einungis hluti af þeim málum sem við höfum orðið áskynja um að liggja þungt á íbúum og við viljum leggja allt okkar í að tryggja betri þjónustu til að mæta þeim þörfum sem samfélagið hér hefur. Þessar áherslur, ásamt mörgum öðrum, endurspeglast í stefnuskrá okkar fyrir komandi kjörtímabil og hvetjum við íbúa til að kynna sér hana vel.
Að þessu sögðu hefur aðdragandi kosninganna verið lærdómsríkur og gefandi. Við á H-listanum ætlum að sækja fram fyrir og með íbúum sveitarfélagsins. Við viljum halda áfram að vera sterk rödd fyrir samfélagið gagnvart ríkinu og láta verkin tala. Því óska ég, fyrir hönd listans, eftir þínum stuðningi þann 16. maí.
Munum öll að kjósa!
Björn Ásgeir Sumarliðason
Höf. skipar 1. sæti H-lista í Sveitarfélaginu Stykkishólmi