Stöndum þétt saman

Geir Þorsteinsson

Ég vil byrja á því að þakka Skagamönnum góðar kveðjur og Knattspyrnufélaginu ÍA fyrir traustið að ráða mig til starfa sem framkvæmdastjóra félagsins. Knattspyrnan á Akranesi á sér langa og glæsta sögu sem nær langt út fyrir landsteinana. Það er okkar sameiginlega hlutverk að halda merki ÍA á lofti og ná árangri í starfi og leik á komandi keppnistímabili sem verður ólíkt öllum öðrum vegna Covid-19 veirunnar.

Rekstrarskilyrði knattspyrnufélaga hafa ávallt verið og munu áfram vera krefjandi, þar sem treysta verður á ómælt framlag félagsmanna, stuðningsmanna, atvinnulífsins og ýmissa viðburða félagsins. Nú hefur Covid-19 faraldurinn breytt rekstrarforsendum knattspyrnufélaga með áður óþekktum hætti. Frá síðari hluta janúar á þessu ári hafa hlaðist upp óveðurský í rekstri félagsins en með samkomubanni hafa rekstrarhorfur knattspyrnufélaga versnað til mikilla muna þannig að í reynd hefur ástandið á nokkrum vikum orðið kolsvart.

Knattspyrnufélag ÍA hefur orðið að bregðast við nýju aðstæðum með áður óþekktum hætti til að vernda starfsemi félagsins. Stjórnin félagsins ákvað, sem fyrsta skref, að beita neyðarúrræðum strax um þessi mánaðamót og skerða launagreiðslur til þjálfara og leikmanna umtalsvert. Ráðstöfunin er sársaukafull en nýtur skilnings þessara aðila sem er gott dæmi um að okkar fólk er með stórt ÍA hjarta. Mikilvægt er að upplýsa bæjarbúa og stuðningsmenn um þessar ráðstafanir félagsins. Við berum þá von í brjósti að skilningur á sérstöðu íþrótta verði til þess að úrræði ríkisvaldsins um minnkað starfshlutfall nýtist þjálfurum og leikmönnum okkar.  Það er mikilvægt að stjórnvöld, bæði ríkisvaldið og bæjaryfirvöld, sýni því skilning hve mikilvægu hlutverki þjálfarar og leikmenn gegna í samfélagi okkar við uppbyggingu íþróttar fyrir líkamlegt og andlegt heilbrigði ungs fólks. Orðstír knattspyrnunnar á Akranesi hefur farið víða og aukið hróður bæjarfélagsins langt út fyrir landsteinana. Stuðningur bæjarfélagsins við starf knattspyrnufélagsins er nú mikilvægari en nokkru sinni fyrr.

Knattspyrnufélag ÍA hefur staðið sig vel í uppeldi knattspyrnumanna eins og kunnugt er. Kröfur á leikmenn í dag eru allt aðrar og meiri en áður og því eðilegt að umbuna þeim í hlutfalli við framlag þeirra fyrir félagið og í senn bæjarfélagið. Án umbunar er erfitt að gera allar þær kröfur til leikmanna sem í dag þykja sjálfsagðar og án hennar komumst við ekki í fremstu röð. Hins vegar er það jafnframt mikilvægt hlutverk knattspyrnufélagsins að halda rekstri þess í góðu jafnvægi milli tekna og gjalda. Við viljum ná því jafnvægi í góðri sátt við þjálfara og leikmenn með stuðning allra þeirra sem að félaginu koma.

Því er ekki að leyna að í hönd fara erfiðir tímar í rekstri Knattspyrnufélags ÍA en í mótbyr kunna að felast ný tækifæri. Með samstöðu, mikilli vinnu og skynsemi verðum við í fremstu röð íslenskra knattspyrnufélaga innan sem utan vallar og það er þekkt úr sögunni að sætir sigrar hafa unnist á knattspyrnuvellinum þegar á móti blés í rekstrinum. Þrátt fyrir framlag okkar sem ráðnir erum til starfa, framlags sjálfboðaliða í stjórn og ráðum, mun framlag almennra sjálfboðaliða, velunnara félagsins, stuðningsaðila og þín stuðningsmaður góður skipta sköpum fyrir framtíð ÍA í miklum ólgusjó. Við þurfum allan þann stuðning sem við getum fengið. Ég skora á Skagamenn að standa saman sem einn maður á erfiðum tímum. Standa við bakið á leikmönnum, þjálfurum og félaginu okkar, Knattspyrnufélaginu ÍA, á krefjandi tímum. Öll él birtir upp um síðir og þá er mikilvægt að við séum öll klár í leikinn.

Áfram ÍA!

Geir Þorsteinssson

Höf. er framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags ÍA